Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Reynisfjara Náttúran tekur á sig ólíklegustu myndir og þótt allt virðist vera slétt og fellt leynast hætturnar víða, ekki síst í ólgandi briminu í Reynisfjöru, og því eins gott að fara varlega. Ómar Í sjö ár hef ég verið oddviti Sjálfstæð- isflokksins í Suður- kjördæmi og leitt flokk- inn í kjördæminu í gegnum tvennar kosn- ingar með þeim árangri að kjördæmið er orðið eitt sterkasta vígi flokksins á landsvísu. Það hafa verið sann- kölluð forréttindi að vinna með öllu því kröft- uga og öfluga fólki sem í kjördæm- inu býr að fjölmörgum viðfangs- efnum, stórum og smáum. Ég hef heimsótt ótal fyrirtæki heima og heiman og brugðist við þeim ábendingum um hluti sem betur mega fara eins fljótt og mögulegt hefur verið. Ég hef auk þess leitt fjölmargar íslenskar sendinefndir á erlendum vettvangi og lagt mitt af mörkum við að koma þeim til að- stoðar. Það er með þann árangur í farteskinu sem ég býð mig fram til áframhaldandi forystu í kjördæm- inu og óska eftir stuðningi í 1. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri flokks- ins sem verður 10. september. Atvinnuleysi nánast horfið Það var mikil áskorun í upphafi kjörtímabils og ábyrgð sem fylgdi því að taka við ráðuneyti atvinnu- mála þegar at- vinnuástand víða á landinu var erfitt og atvinnuleysi á stórum svæðum Suðurkjördæmis hafði lengi verið það mesta á land- inu. Það var raun- verulegt vandamál. Það er því einkar ánægjulegt að sjá hvernig þessari þróun hefur verið snúið við á kjörtímabilinu, atvinnu- leysi hefur sjaldan verið minna á landinu og hefur viðsnúningurinn einmitt verið mestur í Suður- kjördæmi þar sem fjölmörg ný og fjölbreytt störf hafa orðið til í öll- um atvinnugreinum. Einföldun regluverks og „Hnappurinn“ Ég hef á kjörtímabilinu sem iðn- aðar- og viðskiptaráðherra lagt áherslu á að stuðla að aukinni at- vinnuuppbyggingu með því að bæta umgjörð atvinnulífsins. Regluverkið hefur verið einfaldað, við bættum lagaumgjörðina og efldum hvers konar nýsköpun. Þar má nefna tilkomu „Hnappsins“ sem mun einfalda ársreikningaskil fyrir yfir 80% fyrirtækja á Íslandi, ný heildarlög hafa verið sett um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, starfsemi bílaleiga, fasteigna- viðskipti og heimagistingu, svo eitthvað sé nefnt. Með nýrri lög- gjöf um heimagistingu verður ein- staklingum heimilt að leigja út heimili sitt og aðra fasteign í allt að 90 daga á ári án þess þurfa að sækja um rekstrarleyfi. Allir þess- ir þættir einfalda regluverk og styðja jafnframt við hina ört vax- andi atvinnugrein, ferðaþjón- ustuna, þar sem lítil fyrirtæki spretta upp í ört stækkandi sam- félagi. Skýr stefna í ferðamálum Það stefnir í 1,7 milljónir ferða- manna á árinu sem er 35% fjölgun á milli ára. Málefni ferðaþjónust- unnar eru komin í skýran farveg með stefnu til framtíðar – Vegvísi í ferðaþjónustu – og Stjórnstöð ferðamála sem samráðs- og sam- hæfingarvettvang ríkisins, sveitar- félaga og greinarinnar sjálfrar. Þar sitja fjórir ráðherrar, tveir fulltrúar frá sveitarfélögum og fjórir fulltrúar ferðaþjónustunnar og er þetta verklag og samhæfð vinnubrögð þegar farin að skila ár- angri. Aldrei hefur meiri fjár- munum verið veitt til uppbygg- ingar á fjölsóttum ferðamannastöðum eins og á þessu kjörtímabili, eða 2,3 milljörðum króna til fleiri tuga verkefna um allt land. Húshitunarkostnaður jafnaður Orkan er ein okkar mikilvæg- asta auðlind og allir landsmenn eiga að hafa jafnan aðgang að henni. Nú loksins hefur húshit- unarkostnaður í landinu verið jafn- aður að fullu óháð orkugjafa með lagabreytingu sem ég beitti mér fyrir. Sömuleiðis hefur kostnaður vegna dreifingar á raforku um allt land verið jafnaður. Með því er viðurkennt að flutningskerfið er grunnþjónusta sem allir eigi að hafa jafnan aðgang að. Alþingi samþykkti að minni tillögu þings- ályktun um loftlínur og jarðstrengi og er markmiðið að horfa til jarð- strengja þegar það hentar t.a.m. vegna íbúabyggðar, ferðaþjónustu og náttúruverndar. Iðnaður og hönnun Skrifað var undir fimm fjárfest- ingarsamninga á kjörtímabilinu, þar af fjóra í Suðurkjördæmi, og þrjú sérleyfi til rannsóknar og vinnslu kolefnis gefin út. Lög um endurgreiðslur vegna kvikmynda- gerðar hafa verið framlengd og hlutfallið hækkað í 25% til þess að tryggja áframhaldandi samkeppn- isstöðu Íslands í þessari vaxandi atvinnugrein sem skapar yfir 1.000 störf á ári hverju hér á landi. Á kjörtímabilinu hefur verið sett ný hönnunarstefna, hugverkastefna, aðgerðaráætlun í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, Vegvísir í ferðaþjónustu og þannig lagður enn sterkari grunnur til framtíðar í öllum þessum mikilvægu mála- flokkum. Uppbygging innviða Þessi mikli árangur í atvinnu- uppbyggingu er grundvöllurinn fyrir þeirri nauðsynlegu uppbygg- ingu innviða samfélagsins sem ráð- ast þarf í á komandi árum og þeirri velferð sem að við viljum tryggja í samfélagi okkar til fram- tíðar þar sem allir, jafnt ungir sem aldnir, fá notið bestu lífskjara. Með sjálfbærri og sterkri atvinnu- stefnu tryggjum við öfluga velferð þjóðarinnar og bætt lífsgæði. Þar vil ég halda áfram að leggja mitt lóð á vogarskálarnar. Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur »Regluverkið hefur verið einfaldað, við bættum lagaumgjörðina og efldum hvers konar nýsköpun. Ragnheiður Elín Árnadóttir Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Suðurkjördæmi stendur sterkt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.