Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Fæst í apótekum, Lyfju, Apótekið, Lyf og Heilsu, Apótekarinn, Fjararkaupum, verslunum Hagkaupa, 10-11 og Iceland Engihjalla. balsam.is Það hefur aldrei verið auðveldara að fá börnin með sér í lið… Nauðsynleg vítamín fyrir litla kroppa sem eru að stækka og þroskast frá degi til dags. Henta öllum börnum frá 3 ára aldri. Nú er ekkert mál að taka inn vítamín því þau eru lostæti Bragðgóð, skemmtileg og hressandi gúmmívítamín fyrir klára krakka Glúten FRÍTT Soja FRÍTT ENGIN mjólkENG AR hnet ur ENGIN egg STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Loksins er farið að rigna á Vestur- landi en úrkomuleysið hefur sett mark sitt á laxveiðina að undan- förnu. Og þegar vatnsborðið steig í ám, sem voru nánast komnar niður í grjót og allur fiskur lagstur í dýpstu holur og leit vart við agni, þá jókst tökugleðin að vonum. „Áin lifnaði aftur við,“ sagði einn við Haukadalsá þar sem veiðimenn hafa þó verið í hvað bestu málunum. Reyndur leiðsögumaður sagði að þótt veiðin tæki einhvern kipp núna þá spáði hann því að heildarveiðin yrði aldrei nema í slöku meðalári. Stórlaxinn gekk snemma og mikið af honum í kjölfar góðs smálaxasumars um mestallt land í fyrra, en síðan hefur lítið skilað sér af smálaxi nú. „Og göngurnar eru búnar á Vestur- landinu, „præmið“ þar er búið,“ sagði hann. Þetta yrði kropp héðan af. „Jafnvel með því minna, lengi lengi,“ þótt vissan um stóra laxa í ánum haldi mönnum við efnið. „Allt í lagi“ Ytri-Rangá heldur áfram að stinga aðrar laxveiðiár landsins af hvað aflatölur varðar. Nálgast fimm þúsund laxana og í liðinni viku voru 648 færðir til bókar; er það fyrsta vikan í mánuð þar sem ekki eru rúm- lega hundrað laxar veiddir á dag að meðaltali. Miðfjarðará nálgast 3.000 laxa í bók, þar veiddust 329 í vikunni á stangirnar tíu, 4,7 að meðaltali á stöng á dag. Í Eystri-Rangá, sem er í þriðja sæti, var vikuveiðin 327 laxar en í Blöndu veiddust 170 í vikunni. Í Selá í Vopnafirði veiddust tæp- lega eitt hundruð laxar á stangirnar sex í liðinni viku, rúmlega tveir á stöng á dag. Veiðin er á svipuðu róli og 2014 og hefur venjulega verið betri á þessum tíma. „Það er allt í lagi gangur í þessu en það þarf samt að hafa fyrir veið- inni,“ segir Gísli Ásgeirsson, stað- arhaldari við Selá. „Við verðum kannski í svipaðri lokatölu og í fyrra.“ Hann bætir við að í ná- grannaánni, Hofsá, verði lokatölur líklega ívið betri en í fyrra en veiðin í henni hefur verið í niðursveiflu. „Enn eru stöku lúsugir fiskar að veiðast og menn lenda í smá skotum, fá tvo eða þrjá í röð ef þeir eru heppnir. Hundrað laxar á sex stang- ir á viku er allt í lagi,“ segir Gísli. Þegar spurt er um smálaxinn skýtur Gísli á að hann sé ekki nema tuttugu til þrjátíu prósent af veiðinni í Selá. „Það er mikið af vænum fiski í ánni, þeir komu snemma og dreifðu sér mjög vel. Menn eru því að koma að hvíldum hyljum og alltaf að kasta á fiska. En auðvitað vildum við hafa meira af fiski og að meira af smálaxi hefði komið inn. Við erum að upp- skera erfitt vor í fyrra. Að auki erum við að upplifa niðursveiflu í laxveið- inni á norðausturhorninu í heild.“ Gísli segir menn hafa allskonar hugmyndir um það hvaða áhrif það að veiða-og-sleppa hefur á fjölda fiska í ánum. „En ég er sannfærður um að magnið af þeim löxum sem nú eru að ganga til baka í annað sinn hefur aukist; en í fyrri niðursveiflum eins og kringum 1980 þegar veiðin í þessum ám fór niður fyrir 200 laxa, þá erum við nú að halda hærri veiði- tölum því fiskarnir eru að koma aft- ur sem ekki voru drepnir í fyrra og hittifyrra. Ég fullyrði að ég sjái það á sumum löxum sem ég handfjatla að þetta eru laxar sem eru að koma aftur.“ Gísli segir niðurgöngu seiða í sumar lofa rosalega góðu. Í Vestur- dalsá er til að mynda seiðagildra og óhemju magn gekk þar niður, segir hann. „Ef við yfirfærum það í sam- ræmi milli ára ættum við að sjá ein- hver þúsund laxa koma til baka á næsta ári – en það verður bara að koma í ljós,“ segir hann og hlær. Urriðinn tekur á kvöldin Að loknum sjö veiðivikum í Veiði- vötnum hafði um liðna helgi verið landað alls 17.141 silungi, 6.850 urr- iðum og 10.291 bleikju. Veiðin er meiri nú en síðustu þrjá ár, á pari við aflann á þessum tíma sumarið 2011 en heldur minni en 2012. Örn Óskarsson hefur um árabil haldið utan um veiðitölur vatnanna. „Í Veiðivötnum eins og annars stað- ar hefur verið mikil gróska í öllu þannig að urriðinn hefur nóg að éta, hann er á kafi í skötuormi og öðru slíku niðri á botninum. Það er helst að hann taki seint á kvöldin, hann kemur upp að í rökkrinu,“ segir Örn. „En bleikjan veiðist stöðugt, til dæmis er enn mokveiði í Langa- vatni. Ein rúmlega áttræð var þar með syni sínum og þau fengu um sjötíu bleikjur.“ Örn segir bleikjuna halda veiðitöl- unum uppi. „Stærsti silungur sum- arsins veiddist í vikunni, 12 punda urriði sem tók svartan Toby í Grænavatni,“ segir hann. Veitt er til 24. ágúst í ár en í sumar var einni viku bætt við veiðitímann. „Það var vegna ásóknar og svo er bara orðið miklu hlýrra en hér áður, þetta er allt önnur tíð.“ Veitt á 100 dag- stangir og komast færri að en vilja. „Að uppskera erfitt vor í fyrra“  Lélegar smálaxagöngur víða  Veiðin tekur kipp eftir rigningar  „Auðvitað vildum við hafa meira af fiski,“ segir Gísli Ásgeirsson um ganginn á norðausturhorninu og segir niðursveiflu þar Maríulax Ian Maguire náði 96 cm laxi í Kirkjustreng í Þverá. Leiðsögumaðurinn Erik Koberling heldur á laxinum. Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is* upplýsingar vantar Ytri-Rangá & Hólsá (20) Miðfjarðará (10) Eystri-Rangá (18) Blanda (14) Þverá - Kjarrá (14) Norðurá (15) Haffjarðará (6) Langá (12) Laxá í Aðaldal (18) Víðidalsá (8) Haukadalsá (5) Selá í Vopnafirði (6) Elliðaárnar (6) Hítara (6) Vatnsdalsá (6) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Á sama tíma í fyrra Á sama tíma 2014 Staðan 10. ágúst 2016 3248 3092 1458 3561 1577 2263 1221 1581 811 854 * 746 627 855 730 1146 1035 1608 1681 941 780 620 253 617 370 110 677 387 312 425 4664 2666 2481 2028 1469 1039 964 875 818 700 678 600 549 525 532 Svala Nielsen, söng- kona, lést að morgni mánudagsins 8. ágúst að heimili sínu að Drop- laugarstöðum í Reykja- vík, 83 ára að aldri. Svala Sigríður Niel- sen var fædd í Reykja- vík 5. desember 1932, dóttir hjónanna Marzel- ínu Friðriksdóttur Niel- sen og Hjartar Aage Nielsen, bryta á Hótel Borg, síðar kaupmanns í Reykjavík. Hjörtur stofnaði verslunina Hjörtur Nielsen sem var í árafjöld til húsa við Templarasund og seldi krist- alsvöru og bolla- og matarstell; mun hafa verið fyrsta verslun þeirrar teg- undar hér á landi. Svala var fædd í Tjarnargötu 10B, fluttist þaðan 4 ára gömul á Sól- vallagötu 3, flutti svo 1940 með for- eldrum sínum og bróður á Reynimel 52 og bjó þar til ársins 1962. Þá flutti hún á Bræðraborgarstíg, síðan Hagamel og á Meistaravelli 31. Af Meistaravöll- unum flutti hún í Bólstaðarhlíð 45 og á Droplaugarstaði haustið 2015. Svala lærði söng á Ítalíu og í Þýska- landi og var þjóðkunn óperusöngkona. Í Þjóðleikhúsinu söng hún m.a. hlut- verk Rósalindu í Leðurblökunni, Sú- zúkí í Madame Butterfly og hlutverk einnar þriggja ástkvenna Hoffmanns í Ævintýrum Hoffmanns. Hún söng einnig mikið í útvarp eða í um 30 ár og fór í söng- ferðalög með karlakór- um. Hún söng og við jarðarfarir, giftingar, skírnir og við marg- vísleg önnur tækifæri. Svala söng í frum- flutningi á 9. sinfóníu Beethovens í Há- skólabíói árið 1966. Hún söng m.a. undir stjórn Carls Billich, Róberts Abrahams Ottóssonar, Fritz Weisshappel og Victors Urbancic. Þá gaf Svavar Gests út plötu með söng Svölu. Svala söng með Karlakór Reykja- víkur, bæði heima og erlendis. Hún söng í heimsókn Íslendinga á Heims- sýninguna í Kanada 1967 og til Mið- jarðarhafslanda 1966. Svala söng einn- ig með Fóstbræðrum á styrktartónleikum þeirra. Þá söng hún ameríska negrasálma á tónleikum með Pólýfónkórnum í Gamla bíói undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. Svala söng einnig fyrir Íslendingafélögin í New York og Kaupmannahöfn. Svala giftist Ragnari Þjóðólfssyni, en þau skildu. Sonur þeirra er Rafn, flugvirki, fæddur 31. ágúst 1957, látinn 23. júlí 1987. Dóttir hans er Jóhanna Svala Rafnsdóttir og ólst hún upp hjá Svölu. Útför Svölu verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. ágúst kl. 13. Andlát Svala Nielsen söngkona

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.