Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ólöf Nordal innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Próf- kjörið verður 3. september. Ólöf lauk krabbameinsmeðferð öðru sinni en segist hafa fullt starfsþrek og leggur nú verk sín og framtíð- arhugsun á borðið í komandi próf- kjöri og kosningum. Framboðið hefur átt sér aðdrag- anda. Ólöf bauð sig ekki fram til end- urkjörs við þingkosningarnar 2013, eftir sex ára þingsetu. Hún ákvað einnig að sækjast ekki eftir endur- kjöri sem varaformaður flokksins. Tómas Már Sigurðsson, eiginmaður hennar, hafði ráðið sig í vinnu sem krafðist búsetu erlendis og fjöl- skyldan ákvað að flytjast til Sviss. Fyrsta skrefið inn í stjórnmálin á nýjan leik tók Ólöf þegar hún þáði óvænt boð um að taka sæti í rík- isstjórninni í desember 2014. „Eftir því sem leið á árið 2015 gerði ég það upp við mig að stíga skrefið lengra inn í stjórnmálin og ákvað að bjóða mig fram til Alþingis. Það var á þeim grundvelli sem ég óskaði eftir stuðn- ingi landsfundar við það að verða varaformaður Sjálfstæðisflokksins,“ segir Ólöf. Góð tilfinning fyrir framtíðinni Hún hafði þá stigið upp úr erf- iðum veikindum eftir baráttu við krabbamein á árinu 2014. „Ég taldi góðar líkur á því, miðað við þær upp- lýsingar sem ég hafði allt árið 2015, að ég hefði komist yfir veikindin. Það var því mikið áfall fyrir mig þeg- ar það kom í ljós rétt fyrir jólin í fyrra að meinið hafði tekið sig upp. Ég hóf meðferð að nýju í upphafi þessa árs og henni er nú lokið. Það er ekkert launungarmál að sú stað- reynd að meinið tók sig upp að nýju breytti eðli sjúkdómsins. Hann verð- ur viðvarandi verkefni sem ég þarf að takast á við. Sjúkdómnum er haldið niðri með lyfjum og eins og alltaf er í veikindum sem þessum verður að líta til þess sem maður treystir sér til að gera. Meðferðin gekk mjög vel. Niðurstöður rann- sókna eftir meðferðina voru góðar. Ég hef fullt starfsþrek og hef ágætis tilfinningu fyrir framtíðinni. Það er á þeim grundvelli sem ég segi við kjósendur hér í höfuðborg- inni, þá sem fylgja Sjálfstæð- isflokknum að málum, að ég legg mín verk og allt mitt þrek á borðið og mína framtíðarhugsun og óska eftir stuðningi.“ – Hvarflaði það ekki að þér að láta gott heita þegar meinið tók sig upp? „Reyndar hef ég alltaf haft það í bakhöndinni, bæði nú og áður þegar ég hef boðið mig fram, að ég myndi þurfa að taka ákvörðun um að halda áfram og ekkert væri sjálfgefið í því. Stjórnmálaþátttaka og það að vera fulltrúi kjósenda er ekki starf sem maður getur litið á sem varanlegt. Maður spyr kjósendur að því hvort þeir vilji að maður sé áfram í verk- unum. Þegar þetta kom upp um ára- mótin hugleiddi ég það og við rædd- um það í minni fjölskyldu hvort ég ætti að einbeita mér að einhverju öðru eða eins og ég segi stundum: Gera það sem mig langar til. En þetta er það sem mig langar til að gera. Starf að stjórnmálum hefur gefið mér mikið. Ég veit hvernig fólk lítur á stjórnmálin. Sumir segja: Mér finnst óskiljanlegt að þú sért að slíta þér út í stjórnmálum. Af hverju ferðu ekki að gera eitthvað sem er meira gefandi. Ég svara því til að þetta er gefandi starf. Mér finnst ég hafa eitthvað fram að færa. Það er á þeim nótum sem ég gef kost á mér. Ég myndi aldrei gera þetta núna ef ég treysti mér ekki til þess. En ég get ekki gefið nein loforð um fram- tíðina, ekki frekar en aðrir. Þau okk- ar sem hafa fengið það verkefni frá Stjórnmálin eru gefandi  Ólöf Nordal sækist eftir 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík  Hún segir að viðureign við krabbamein geri sig enn ákveðnari í að berjast fyrir grundvallarhugmyndum sínum  Ólöf vill hleypa meiri bjartsýni inn í stjórnmálin  Kjósendur fái nú tækifæri til að ákveða leiðina áfram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.