Morgunblaðið - 09.09.2016, Side 1
F Ö S T U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 211. tölublað 104. árgangur
Á MISJÖFNU
ÞRÍFAST
BÖRNIN BEST BEST Í KÖLDUM SJÓ
EYJAR Á HIMNI OG
JÖRÐ SÍÐASTA
SÝNINGIN Í SAFNINU
BOÐSUND 12 EYJÓLFUR EINARSSON 3824 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Við erum á réttri leið
Kjósum Jón Gunnarsson í 2. sæti
Jón Gunnarsson býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Kosið verður laugardaginn 10. september nk. og eru allir hvattir til þess að kjósa.
Upplýsingar um kjörstaði er að finna á www.xd.is
Jón
Justin Bieber steig á svið í Kórnum í Kópavogi
á slaginu klukkan 20.30 í gærkvöldi við mikil
fagnaðarlæti. Hann söng fyrst lagið „Mark My
Words“ af plötunni Purpose sem tónleikaferð-
in er kennd við. Síðan rann þaulæfð dagskráin
hnökralaust í klukkustund og 45 mínútur með
söng og dansi listamanna.
Um 19.000 tónleikagestir fögnuðu poppgoð-
inu innilega og tóku upp á farsíma sína sem
mest þeir máttu til að deila á hinum ýmsu
samfélagsmiðlum. Olli þetta miklu álagi á far-
símakerfið um tíma.
Löng röð myndaðist framan við Kórinn
löngu fyrir tónleikana. Hnökralaust gekk að
hleypa fólki inn í húsið.
Seinni tónleikar Justins Biebers verða í
Kórnum í kvöld. Líkt og í gær verður umferð
um Kórahverfi takmörkuð frá klukkan 16.00
og fram yfir tónleikana. »41
Söngur, dans og fagnaðarlæti
Justin Bieber brást ekki aðdáendum sínum í Kórnum í gærkvöldi
Morgunblaðið/Ófeigur
Tónleikarnir Fjöldi dansara þeyttist um ljósaskreytt svið Kórsins í takt við tónlist Justins Biebers.
Tilhlökkun Tónleikagestir biðu spenntir í biðröðinni.
Mjög mikil aðsókn er í nám flug-
umferðarstjóra og segir Guðni Sig-
urðsson, upplýsingafulltrúi Isavia,
mun færri komast að en vilja.
Isavia annast nú alla þjálfun flug-
umferðarstjóra og þegar tekið var
við umsóknum í grunnnámið sem
hófst í janúar á þessu ári sóttu alls
120 manns um námið. Af þeim var 21
tekinn inn. Þegar opnað var fyrir
umsóknir í sumar, vegna náms sem
hefst eftir áramót, sóttu 220 manns
um, en af þeim voru 12 teknir inn.
„Þetta nám hefur alltaf verið mjög
eftirsótt, en það má e.t.v. segja að
það sé orðið enn vinsælla eftir breyt-
ingarnar,“ segir Guðni og vísar m.a.
til þess að nám í flugumferðarstjórn
er nú, eftir að Isavia tók yfir, nem-
endum að kostnaðarlausu. »11
Aðeins
tólf af 220
komust inn
Margir vilja læra
flugumferðarstjórn
Vélar Isavia annast nú allt nám flug-
umferðarstjóra hér á landi.
Snöggan og óvæntan óveðurshvell
gerði á Siglufirði í gær. Björg-
unarsveitin Strákar var kölluð út
og voru nokkur tjón tilkynnt lög-
reglu.
Hvellurinn byrjaði um klukkan
15 og slotaði upp úr klukkan 17.
Snarpar vindhviður af norðaustri,
allt upp undir 40 m/s, blésu beint
inn fjörðinn og gerðu talsverðan
usla í bænum. Trampolín fuku og
lenti eitt þeirra á ljósastaur og
skemmdi hann. Tré kubbaðist í
tvennt, rúður brotnuðu, tryggja
þurfti vinnupall sem skemmdist,
lausar þakplötur fuku og hjólhýsi
fór á hliðina. Engin slys urðu á
fólki.
„Það voru rosalegar hviður.
Þetta kom svolítið óvænt,“ sagði
Hrólfur Baldursson, formaður
Björgunarsveitarinnar Stráka. Sex
björgunarsveitarmenn sinntu óveð-
ursútköllunum. gudni@mbl.is
Óveður
gerði usla á
Siglufirði
Nokkur foktjón
Ljósmynd/Einar Áki Valsson
Siglufjörður Björgunarsveitin
Strákar sinnti útköllum í gær.
Könnunarpróf í íslensku og
stærðfræði standa nú yfir í Versl-
unarskólanum. Ingi Ólafsson skóla-
stjóri segir niðurstöðu prófanna
samt sem áður ekki koma niður á
veru nemenda í skólanum. Með
þessu fáist skýrari mynd af því
hvort sé verið að blása upp ein-
kunnir nemenda úr tíunda bekk og
einnig er hægt bjóða þeim slökustu
upp á frekari aðstoð í náminu, segir
Ingi. »2
Nýnemar taka
könnunarpróf í
Verslunarskólanum