Morgunblaðið - 09.09.2016, Side 11
Fylgist með okkur á faceboock Kringlunni 4c – Sími 568 4900
HAUST
VÖRUM
FULL BÚÐ AF GLÆSILEGUM
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Greint var frá því í maí á seinasta
ári að Isavia myndi framvegis
annast alla þjálfun flugumferðar-
stjóra, en fyrirtækið annast einnig
rekstur íslensku flugleiðsöguþjón-
ustunnar og er eini starfsvett-
vangur flugumferðarstjóra hér á
landi. Áður en Isavia tók námið
yfir að fullu buðu flugskólarnir
nemendum upp á grunnnámskeið í
flugumferðarstjórn.
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir mjög mikla
aðsókn vera í námið og komast því
mun færri að en vilja. Þannig má
nefna að í ágúst 2015, þegar tekið
var við umsóknum í grunnnámið
sem hófst í janúar 2016, sóttu alls
120 manns um námið. Af þeim var
21 tekinn inn. Þegar opnað var
fyrir umsóknir í sumar, vegna
náms sem hefst eftir áramót, sóttu
220 manns um, en af þeim voru 12
teknir inn.
Orðið að einu samfelldu námi
„Þetta nám hefur alltaf verið
mjög eftirsótt, en það má e.t.v.
segja að það sé orðið enn vinsælla
eftir breytingarnar,“ segir Guðni
og vísar m.a. til þess að nám í
flugumferðarstjórn er nú, eftir að
Isavia tók yfir, nemendum að
kostnaðarlausu. Þá eru umsækj-
endur einnig boðaðir í inntöku-
próf, sem skipt er í nokkrar lotur,
áður en námið hefst, en þegar
flugskólarnir sáu um hluta náms-
ins þurftu nemendur að greiða
skólagjöld og gátu jafnvel síðar
lent í þeirri stöðu að uppfylla ekki
sett skilyrði til þess að ljúka
seinni hluta námsins, þ.e. verklega
þættinum.
„Hér áður fyrr voru miklu fleiri
einstaklingar sem kláruðu grunn-
inn en komust svo ekki lengra til
að klára allt námið. Þeir greiddu
því fyrir grunnnám en urðu aldrei
flugumferðarstjórar,“ segir Guðni
og bætir við að nú sé í raun um að
ræða eitt samfellt nám, þ.e. eftir
að viðkomandi er kominn inn í
námið og ef hann stendur sig vel
þá útskrifast hann sem flug-
umferðarstjóri og fær vinnu sem
slíkur hjá Isavia.
„Okkar stefna er sú að taka inn
nemendur eftir þörfum. Við gerum
því ráð fyrir því að fólk gangi í
gegnum þetta nám og hefji svo
störf,“ segir Guðni, en námstími
er um tvö ár og eru starfandi flug-
umferðarstjórar hér á landi um
120 talsins.
Öllum kennt - svo síað eftir á
Sigurjón Jónasson, formaður
Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra, segir núverandi fyrir-
komulag flugumferðarstjóranáms-
ins vera betra en áður.
„Þegar flugskólarnir voru með
þetta þá var öllum kennt og svo
síað eftir á sem reyndist ekki vel.
Það er auðvitað vont að vera bú-
inn með hluta af náminu og kom-
ast svo að því að viðkomandi
stenst jafnvel ekki læknisskoðun
til að klára námið,“ segir Sigurjón
Mikil aðsókn er í nám
flugumferðarstjóra
Í sumar sóttu alls 220 einstaklingar um en 12 fengu inni
Morgunblaðið/Ernir
Reykjavíkurflugvöllur Starfandi flugumferðarstjórar hér á landi eru um
120 talsins og er mikil aðsókn í námið að sögn upplýsingafulltrúa Isavia.
Afar hörð bar-
átta er háð í
opnum flokki í
riðli Íslands um
sæti í 16 liða úr-
slitum heimsleik-
anna í brids, sem
haldnir eru í
Wroclaw í Pól-
landi.
Þegar tveimur leikjum er ólokið
er Ísland í 6. sæti í riðlinum, 10
stigum á eftir Bandaríkjunum,
einu stigi fyrir ofan Tyrki og
tveimur stigum fyrir ofan Noreg.
Keppt er í þremur riðlum og fimm
efstu liðin í hverjum riðli komast
áfram auk liðsins sem er með
hæsta skorið í 6. sæti.
Ísland vann Mexíkó og Líbanon í
gær en tapaði fyrir Póllandi. Í dag
spilar liðið við Mónakó og Bosníu.
Fyrrnefndi leikurinn verður sýnd-
ur á vefnum bridgebase.com og
hefst klukkan 8:30.
Í kvennaflokki er Ísland í 14.
sæti í sínum riðli. Liðið vann Kan-
ada í dag en tapaði fyrir Frakk-
landi og Hong Kong. Spilað er við
Taívan í lokaumferðinni í dag.
Hart barist um úr-
slitasæti í brids
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VANDINN LIGGUR
OFT HJÁ OKKUR
SJÁLFUM.
SAMÞYKKIR ÞÚ
KYNFERÐISOFBELDI?
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Kvarterma-
bolir
Str. S-XXL
Litir:
Svart og
dökkblátt
Kr. 4.900
Laugavegi 52 | 101 Reykjavík
Sími 552 0620 | gullogsilfur.is
Stórhöfða 31 Δ 110 Reykjavík Δ sími 569 3000 Δ stafir@stafir.is
stafir.is
Aukaársfundur
Stafa lífeyrissjóðs
Stafir lífeyrissjóður boðar til aukaársfundar á Grand Hóteli
Reykjavík fimmtudaginn 29. september 2016 og hefst kl. 16.
Fundarefni:
Fyrirhuguð sameining Stafa lífeyrissjóðs
og Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
mbl.is
Í þriðju tilraun seldust aflaheim-
ildir á fimm þúsund tonnum af kol-
munna á uppboði í Færeyjum í gær.
Tíu aurar danskir voru greiddir
fyrir kílóið eða 1,74 krónur íslensk-
ar. Alls fékkst því hálf milljón
danskra króna fyrir heimildirnar
eða tæplega níu milljónir íslenskar.
Í fyrsta uppboðinu á mánudag
gerði færeyska landstjórnin kröfu
um 30 aura danska fyrir kílóið, en
lækkaði lágmarksverðið í 18 aura í
uppboði á þriðjudag. Það var síðan
lækkað enn frekar á uppboðinu í
gær. aij@mbl.is
Kolmunninn seldist
í þriðju tilraun
Morgunblaðið/Ómar
Færeyjar Tinganes í Þórshöfn.