Morgunblaðið - 09.09.2016, Síða 31

Morgunblaðið - 09.09.2016, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 arlega fjölmarga og óralanga und- irbúningsfundi okkar vegna kennslunnar þar sem Sigga lagði jafnan gott til mála og skreytti auk þess verkefnin, sem lögð voru fyrir nemendur, með skondnum smáteikningum. Hún er líka minnisstæð úr löngu liðnum sum- arbústaðaferðum okkar þegar við tókum okkur til með börn og buru og nutum nokkurra daga leyfis í sameiningu. Börnin okkar, sem nú eru orðin harðfullorðið fólk, minn- ast þess með bros á vör þegar hún hljóp að næturlagi á náttkjól og gúmmístígvélum til að reka kind- ur úr túni, eða þegar hún sagði sögur og lék skessur og skrímsli til að skemmta þeim. Þá var ekki síður gaman þegar pjattrófan frú Sigríður tók sig til og „setti á sig andlitið“ úr snyrtivöruúrvali okk- ar allra, auk þess sem hún með handlagni sinni sýndi listræna til- burði við andlitssnyrtingu ann- arra viðstaddra. Glæsileika og fáguðum smekk Siggu var viðbrugðið. Það sópaði alls staðar að henni, hún bar sig svo vel og var svo örugg í fram- komu. Henni lét líka vel að koma fram, standa á sviði, fara með texta, jafnvel eigin texta því hún var liðtæk við slíkt og hafði afar glögga máltilfinningu. Á seinni ár- um átti hún við ýmsa líkamlega krankleika að stríða en mætti þrátt fyrir það hnarreist á manna- mót og ferðaðist víða, einkum með kórfélögum sínum. Enn einn dýrmætan hæfileika átti vinkona okkar, hún var frá- bær upplesari. Hún starfaði um hríð sem þulur við Ríkisútvarpið og í mörg ár valdi hún efni úr dag- blöðum og las inn á disklinga á vegum Blindrabókasafnsins auk þess sem hún þjálfaði nemendur með mjög góðum árangri fyrir Upplestrarkeppni grunnskól- anna. Þessi störf létu henni mjög vel. Okkur hlýnar um hjartarætur þegar við minnumst fágaðrar, skýrrar raddarinnar og þess hvernig hún beitti harða, norð- lenska framburðinum sem varð mildur og þýður í hennar meðför- um. Einn annmarki þess að eldast er sá að ættingjar og vinir hverfa úr hópnum. Sigríður Guðmunds- dóttir er fyrst okkar litla vin- kvennahóps til að yfirgefa þessa jarðvist. Við og fjölskyldur okkar minnumst hennar með mikilli hlýju. Hennar verður sárt saknað. Svanhildur, Elínborg, Guð- björg, Kristjana og Magnea. Það var á árshátíð í Mennta- skólanum á Akureyri og komið að því að dansa á sal skólans. Eitt af fyrstu pörunum sem svifu léttilega um dansgólfið var Sigríður Guðmundsdóttir, Sigga, ásamt föður sínum, Guðmundi Karli, yfirlækni. Þessi mynd af þeim feðginum hefur aldrei liðið mér úr minni eða hversu glæsileg Sigga var. Hún líktist helst fannst mér Kleópötru forðum daga! Þó ég hafi ætíð fylgst með Siggu þá kynntist ég henni fyrst þegar við fórum að kenna saman í Fossvogsskóla. Það var haustið 1972, en skólinn var tilraunaskóli, opinn skóli að breskri fyrirmynd. Við unnum mikið saman og hitt- umst oft á kvöldin að skipuleggja skólastarfið og búa til alls konar verkefni. Það var einstaklega gef- andi samstarf, því að Sigga var hugmyndarík, frjó og einstaklega gefandi. Vorið 1973 fórum við saman til Eynsham í Oxford í Englandi til að kynnast opnum skóla þar. Það var sérlega fróðlegt og lærdóms- ríkt og við fengum margar hug- myndir, sem notaðar voru næsta vetur í skólanum. Við höfðum t.d. það sem kallað var „salur“, en þá var einn eða tveir bekkir með dag- skrá á sviði, en restin af krökk- unum sat og horfði á. Ég minnist þegar við Sigga sömdum með krökkunum leikritið Kristnitök- una á Þingvöllum. Börnin tóku þátt og komið var á móts við alla, líka þá sem þóttu sérstakir. Einn strákur lék prest og átti að segja: „Pax vobis cum“. Áratugum seinna hitti ég drenginn og þá sagði hann. Áslaug, manstu þegar þú og Sigga létuð mig segja „Pax vobis cum“. Hann hafði ekki geymt latínunni sinni. Sigga var frábær kennari og reyndi að koma til móts við nem- endur sína eftir getu þeirra og hæfileikum. Það urðu miklar breytingar í lífi Siggu, þegar hún fluttist til Hornafjarðar árið 1974. Sigga gerðist kennari á Höfn og það var til marks um kraft hennar og fé- lagsmálaáhuga að hún varð for- maður Kennarasambands Aust- ur-Skaftfellinga og var einnig í fræðsluráði Austurlands. Sigga hafði alla tíð mikinn áhuga á leik- list og lék í leikritum á yngri árum og var hún fljótt kosin í stjórn Leikfélags Hafnar, en var jafn- framt kjörin formaður menning- armálanefndar Hafnarhrepps. Örlögin réðu því að 1978 flutti Sigga aftur til Reykjavíkur og fór að kenna í Fossvogsskóla og þar kenndi hún uns hún fór á eftirlaun. Hún var ætíð lifandi og frábær kennari, sem börnin dáðu, en hún var góður félagi þeirra. Sigga hafði unun af söng og var árum saman í kvennakór og fór vítt um heim. Sigga var skarpgreind kona með frábært skopskyn og gott var að eiga hana að vinkonu. Ég minn- ist hennar með hlýju, þökk og söknuði. Ég veit að þau eru orðin mörg börnin sem eru henni þakk- lát, börn sem hún örvaði, fræddi, studdi og skildi. Sárastur er söknuður hennar eigin barna, þeirra Ingu, Hall- dóru, Guðmundar Karls og Sigríð- ar, sem öll eru vel gert og mynd- arlegt fólk. Að leiðarlokum sendi ég börnunum, systrum Sigríðar og fjölskyldunni allri mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Megi minningin um góða konu og kenn- ara lifa um ókomin ár. Áslaug Brynjólfsdóttir. Það er erfitt að kveðja góða vin- konu eftir áratuga vináttu.Við kynntumst Siggu G. í kórnum okkar Léttsveit Reykjavíkur fyrir hartnær tuttugu árum og með okkur tókst fljótlega góður vin- skapur. Við höfum farið margar ferðir saman með kórnum okkar, bæði innanlands og utan, æfinga- búðaferðir og allskyns skemmtan- ir á vegum kórsins, allt eru þetta ógleymanlegar stundir, já og allar sumarbústaðaferðir okkar þriggja, fórum bæði haust og vor- ferðir, þá var gjarnan lagt af stað eftir æfingu á þriðjudögum, búnar að nesta okkur með góðum mat og guðaveigum þetta voru miklar gleðistundir og ýmislegt brallað, borðuðum góðan mat smá rauðvín í nokkrar tær, spilað og heiti pott- urinn óspart notaður. Einnig var farið í góðar gönguferðir, sem sumar enduðu næstum með vin- slitum þar sem göngustjórinn fór ekki alltaf auðveldustu leiðina en alltaf endaði allt vel og mikið hleg- ið. Við stofnuðu líka klúbb innan kórsins fyrir „einstakar“ konur, „Klúbbur Vonn“, og höfum haldið vel hópinn og gert margt saman eins og farið í leikhús, bíó og kaffi- húsaferðir, svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleyma aðalferðinni, þar sem hluti af Klúbbi Vonn fór í sigl- ingu um Miðjarðar- og Svartahaf- ið. Við vorum átta saman og áttum ógleymanlega tíma á þessari sigl- ingu. Sigga var yndisleg vinkona, víð- lesin og talaði gott mál og kom vel fyrir sig orði, hafði fallega fram- komu og var glæsileg, þegar hún klæddi sig upp enda var eftir því tekið um borð í skemmtiferðaskip- inu. Að hafa átt Siggu að vinkonu og samferðafélaga eru forréttindi og mikil gæfa. Við komum síðast heim til hennar í júní með smá af- mælisgjöf og þá var hún að und- irbúa ferð norður í tilefni 60 ára stúdentsafmælis frá MA og var búin að undirbúa ræðuna sem hún hélt fyrir hönd árgangsins.Var hún svolítið kvíðin því þarna var hún farin að finna fyrir einhverj- um ónotum, sem voru undanfari þess sem síðar kom í ljós. Og eins og við margar var hún haldin val- kvíða um það í hverju hún ætti að vera. Við gerðum oft grín að þessu hjá okkur, en norður fór Sigga og hélt sína ræðu, glæsileg að vanda. Nú hefur hún kvatt þessa jarð- vist eftir stutta sjúkrahúslegu, laus við þjáningar og kvíða. Takk fyrir allar samverustund- irnar, elsku vinkona, við hittumst svo síðar syngjandi glaðar í Sum- arlandinu. Elín Stella Gunnarsdóttir, Sigríður Friðþjófsdóttir. Kveðja frá Kvennadeild Rauða krossins í Reykjavík Á hálfrar aldar afmæli Kvenna- deildarinnar kveðjum við Sigríði Guðmundsdóttur og þökkum af al- hug samstarf og samveru á liðnum árum. Sigríður gerðist stofnfélagi í Kvennadeild Rauða krossins í Reykjavík 12. desember 1966. Eftir að formlegri starfsævi lauk vann hún með deildinni af miklum krafti, fyrst á bókasafninu á Land- spítalanum í Fossvogi og síðar á Landakoti. Þegar heilsan leyfði ekki lengur að ýta þungum bóka- vögnum eftir spítalagöngunum þá kom hún einu sinni í viku og las fyrir sjúklinga. Þessi upplestur var afar vel þeginn enda hafði Sig- ríður ótrúlega fallega og hljóm- mikla rödd og hafði m.a. lesið inn á hljóðbækur hjá Blindrabókasafn- inu. Hún tók virkan þátt í fé- lagsstarfi Kvennadeildarinnar og allar samkomur voru skemmti- legri ef hún var með okkur. Stórt skarð er nú höggvið í okk- ar hóp, sem byggist einmitt á fólki eins og Sigríði sem er tilbúið að gefa af sjálfu sér og tíma sínum til þess að stuðla að betri líðan ann- arra. Sigríður var kona sem gott var að kynnast og heiður að mega kalla félaga sinn. Kvennadeildin sendir fjölskyld- unni allri innilegar samúðarkveðj- ur og biður góðan Guð að varð- veita þau og styrkja í sorginni. Oddrún Kristjánsdóttir, formaður Kvennadeildar. Látin er fyrrverandi samstarfs- kona, Sigríður Guðmundsdóttur. Sigga, eins og hún var jafnan köll- uð, var ráðin kennari að Fossvogs- skóla haustið 1972 og starfaði þar þá í tvö ár, fór síðan austur á land um tíma en kom svo aftur til starfa haustið 1978. Aðalstarf Siggu í Fossvogsskóla var umsjónar- kennsla en einnig kenndi hún þar ensku í nokkur ár og síðustu starfsárin starfaði hún í náms- verinu og aðstoðaði þar fjölda barna við hin ýmsu verkefni. Sigga hafði gott lag á börnum, ekki síst þeim sem stóðu á ein- hvern hátt höllum fæti, og nem- endum hennar þótti ákaflega vænt um hana. Hún var fróð, skemmtileg og afburða sögumað- ur. Sigga hafði ríka kímnigáfu, var orðheppin og fljót að svara fyrir sig. Matar- og kaffitímar á kenn- arastofunni voru oft uppspretta alls konar glens og gríns og þar leiddist sannarlega engum þegar Sigga var þar innan dyra og fór á kostum í frásögnum sínum. Sigga var skapmikil en einnig ákaflega hlý og notaleg og ein- staklega samviskusöm við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Hún hafði mjög fallega rithönd og var jafnan beðin að skrifa á kort fyrir hönd starfsfólksins þegar afmæli eða aðrir viðburðir stóðu fyrir dyrum. Hún hafði líka skýra og fallega rödd og var í nokkur ár þulur hjá RÚV í afleysingum og las þá frétt- ir. Sigga hafði mikinn áhuga á leiklist og í Fossvogsskóla setti hún oft upp heilu leikritin og fór það vel úr hendi. Þegar skólinn átti 40 ára afmæli haustið 2011 var Sigga fengin til að koma og skemmta börnunum. Þar var hún í essinu sínu, las og sagði sögur, lék allar sögupersónurnar og hélt óskiptri athygli hjá fullum sal af börnum á aðra klukkustund. Sigga var góður vinnufélagi, heilsteypt og vönduð á allan hátt og var sárt saknað þegar hún lét af störfum vorið 2004. Við þökkum henni samfylgdina og margar ánægjulegar samverustundir í gegnum árin og biðjum afkom- endum hennar blessunar. Fyrir hönd starfsfólks Foss- vogsskóla, Stefanía Björnsdóttir. Sigríður Guðmundsdóttir kennari hefur kvatt þessa jarðvist. Sigríður réðst sem kennari við Fossvogsskóla 1972, en skólinn var þá tilraunaskóli með breytta kennsluhætti. Sigríður var glæsi- leg kona á velli, há og tíguleg. Hún samlagaðist mjög vel þeim starfs- mönnum sem fyrir voru í skólan- um. Hún starfaði þar til 1974 og hafði þá farið til Englands til að kynna sér fyrirkomulag kennslu í opnum skólum eins og þessi teg- und skóla var nefnd. Á þessum ár- um var afskaplega gaman að vinna í skólanum og kennarar og annað starfsfólk mjög áhugasamt. Það var mikið á sig lagt hvað vinnu snerti og kennarar ósparir á tíma sinn. Sigríður var þar enginn eftirbátur og raunar unni hún starfinu þar og skólanum allt til endadægurs. Árið 1974 flytur Sigríður til Hafnar í Hornafirði en fyrrver- andi eiginmaður hennar, Friðjón Guðröðarson, hafði þá verið skip- aður lögreglustjóri á Höfn. Hún hóf kennslu við grunnskólann á Höfn og varð reyndar fljótt mjög virk í menningarlífi staðarins. Eft- ir að þau hjón slitu samvistum kom Sigríður aftur til Reykjavík- ur og hóf á ný kennslu við Foss- vogsskóla og vann þar til loka starfsaldurs. Hún fékk ársleyfi frá störfum og gegndi þá starfi út- varpsþular og gerði það með mikl- um ágætum en að því ári loknu tók hún aftur við sínu fyrra starfi í Fossvogsskóla. Hún var mjög drífandi í allri leiktengdri starfsemi í skólanum og leiðbeindi öðrum kennurum hvað framsögn snerti. Hún náði sérlega vel til nemenda og sem sögumaður var hún einstök. Þó hún væri skapmikil og tilfinninga- rík og gæti á stundum gustað af henni þótti nemendum öllum vænt um hana. Það má segja að það hafi verið mikill styrkur fyrir skólann að hafa kennara með þá hæfileika sem hún bjó yfir. Eins og oft vill verða á fjölmennum vinnustað þá myndast ákveðnir kjarnar sam- starfsfólks. Svo var um þann hóp sem saman hóf kennslu í upphafi skólans. Þar var Sigríður ein af drif- fjöðrunum en hún hafði líka þann góða kost að ná strax góðu sam- bandi við nýja kennara sem komu til starfa. Hún var mjög skemmti- leg og gat verið ansi hnyttin í til- svörum. Þá hafði hún mikla ánægju af tónlist og söng í mörg ár í Léttsveit kvenna. Einnig starfaði hún um tíma með Leik- félagi Kópavogs. Hún hafði sem fyrr er sagt fjölbreytta hæfileika sem við samstarfsfólk hennar fengum oft að njóta í ríkum mæli og erum þakklát fyrir. Hún hélt alltaf góðum tengslum við okkur hjónin og alltaf jafn hressandi að hitta hana þó svo síðustu árin hafi hún átt við veikindi að stríða. Síðast þegar ég hitti Sigríði var þegar hún flutti kveðju 60 ára stúdenta frá MA við skólaslit 17. júní á þessu ári. Hún gerði það með mikilli reisn og maður renndi ekki grun í að svo skammt væri til endadægurs, en krabbinn, sá vá- gestur, lagði hana að velli eftir stutta legu. Hún hefði orðið 80 ára á næsta ári. Ég þakka Sigríði fyrir mjög gott samstarf í gegnum árin og fyrir starf hennar í Fossvogs- skóla. Við hjónin sendum innileg- ar samúðarkveðjur til barna og annarra afkomenda. Kári Arnórsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU ÞÓRHALLSDÓTTUR, Hæðargarði 35. . Rögnvaldur Gunnarsson, Þ. Kolbrún Ásgrímsdóttir, Jónína I. Gunnarsdóttir, Steinþór Gunnarsson, Inga Hlíf Ásgrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, VIGDÍS PÁLSDÓTTIR handavinnukennari, er látin. . Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir, Páll Baldvin Baldvinsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON, Kópavogsbraut 82, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum að kvöldi 6. september. . Fanney Einarsdóttir, Brynjúlfur Brynjólfsson, Einar Bárður Brynjólfsson, Lúðvík Brynjólfsson og afabörn. Okkar ástkæra SVALA DÍS, Hafnargötu 8, Siglufirði, lést af slysförum sunnudaginn 4. september. Útförin verður auglýst síðar. . Guðný og Örvar, Guðmundur og Ásta Sóllilja, Kristinn Dagur, Aníta Maren, Haraldur Björn, Andrea Sif og aðrir ástvinir. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORLEIFUR STEFÁN GUÐMUNDSSON, löggiltur fasteignasali og líffræðingur B.Sc., Jakaseli 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. september. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 15. september klukkan 15. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 11G fyrir einstaka umönnun og hlýju. . Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigurður James Þorleifsson, Ólöf B. Margrétardóttir, Elín Þorleifsdóttir, Pétur Rúnar Sverrisson, Kári Þorleifsson, Bjarki Þorleifsson, Bjartur Þorleifsson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS S. HAFDAL, Hamratúni 36, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar og heimahlynningar sjúkrahússins á Akureyri. . Þóra Kristín Flosadóttir, synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.