Morgunblaðið - 09.09.2016, Side 38

Morgunblaðið - 09.09.2016, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 Soap ljós Ármúla 24 - s. 585 2800 - www.rafkaup.is Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 Hvert ljós er einstakt Norðlenskar konur í tónlist efna til tónleikaraðar nú á haustdögum þar sem viðfangsefnin eru sjór, loft og land. Fram koma Ásdís Arnardóttir kontrabassaleikari, Helga Kvam pí- anóleikari, Kristjana Arngríms- dóttir söngkona, Lára Sóley Jó- hannsdóttir söngkona og fiðluleikari og Þórhildur Örvarsdóttir söngkona. Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð- inni verða sunnudaginn 11. sept- ember kl. 20.30 á Loftinu á veit- ingastaðnum Bryggjunni á Akureyri. „Á tónleikunum verður flutt tónlist um sjóinn, sjósókn, sjó- mennsku og ævintýr. Oft eru textar laganna karllægir en í flutningi kvenna eru lögin í nýju samhengi. Lög sem verða flutt eru t.d. „Stolt siglir fleyið mitt“, „Simbi sjómaður“, „Einsi Kaldi“ og „Sjómenn íslenskir erum við“ ásamt mörgum þekktum lögum sem tengjast sjónum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að sér- stakur gestur á tónleikunum er Ave Sillaots harmonikkuleikari. Norðlenskar konur syngja um sjómennsku Sjósókn Ásdís Arnardóttir, Kristjana Arngrímsdóttir, Þórhildur Örv- arsdóttir, Helga Kvam og Lára Sóley Jóhannsdóttir koma fram. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Hér er sköpunin,“ segir Eyjólfur Einarsson myndlistarmaður og leið- ir blaðamann að tveimur málverkum þar sem fingur sést á öðru skjóta ljósi út í geiminn en á hinu má sjá sprengingu og við það skjótast lit- fagrar hringekjur í allar áttir. „Ég kalla þessi verk „Verði ljós – og það varð ljós“, eða „Stórahvell“. Það er sami hluturinn. Hringekj- urnar eru myndhverfing lífsins, þetta snýst allt. Þessi stóru verk hér á endaveggn- um kalla ég síðan „Handan vetrar- brautarinnar“. Hann skýrir hvernig hann málaði þennan blásvarta him- ingeim sem litríkar hringekjurnar snúast í en í honum miðjum er björt stjörnuþoka. „Fyrst málaði ég hana hvíta en lagði svo litalög yfir, þannig að ljósið kæmi í gegn. Að „lass- úrera“ var það kallað í gamla daga en Rembrandt er mesti snillingur sögunnar í því…“ Eyjólfur er að svara spurningum um verkin á sýningunni sem hann opnar í Listasafni ASÍ við Freyju- götu á morgun, laugardag, klukkan 15. Sýninguna kallar hann Eyjar á himni og jörð, og er hún sögð fantas- ía um lífið og tilveruna og spurn- ingar sem engin svör fást við. Sýn- ingin er í öllu húsinu og sú síðasta sem sett er upp undir merkjum Listasafns ASÍ í þessu merka húsi sem Ásmundur Sveinsson mynd- höggvari byggði en eins og kunnugt er hefur húsið verið selt og leggst sýningahald Listasafnsins af. Eyjólfur tileinkar sýninguna Ás- mundi og sýnir meðal annars tvær leirstyttur sem hann vann 11 til 12 ára undir handleiðslu meistarans. Einskonar endastöðvar Í Gryfjunni sýnir Eyjólfur stytt- urnar tvær, röð vatnslitamynda frá 1966, lokaári náms hans við mynd- listarakademíið í Kaupmannahöfn, og nýtt málverk sem kallast á við þær. Í Arinstofu eru ný vatns- litaverk en við erum á efri hæðinni að skoða þessi nýju málverk utan úr geimnum. „Ég hef verið svolítið upptekinn af stjörnufræði, hef gaman af að sökkva mér niður í það og það fór að blandast inn í verkin með þessum hætti“ segir Eyjólfur til skýringar. „Verkin hinumegin í salnum kalla ég síðan „Á jörð“.“ Þar má sjá par- ísarhjól snúast einsemdarleg á eyju úti í hafi og sitja í þeim nokkrar mannverur. „Ég hugsa þetta sem einskonar endastöðvar. Maður endar einhvers- staðar … Það má segja að ég hafi lengi verið upptekinn af eyjum en sem strákur var ég oft í sveit í Skagafirði, á Reykjum á Reykjaströnd; í sex sum- ur horfði ég til Drangeyjar. Móður- systir mín bjó þar. Drangey situr síðan alltaf í mér, í undirmeðvitund- inni, og brýst svona fram hér,“ segir hann og brosir. „Í vatnslitamyndunum í Arinstof- unni er ég síðan staddur á jörðinni,“ segir hann og við göngum niður. Öðlingurinn Ásmundur Eyjólfur segir að hann sé í verk- um sínum iðulega á grensunni við súrrealisma og vissulega getur að líta einmanalegar furðustemningar í verkunum. Skip siglir sjó en skuggi þess tekur að sökkva eins og fyr- irboði, í annarri eru fótspor í snjó en hverfa skyndilega. Í verkum Eyjólfs má iðulega sjá furðulegar og ógn- vekjandi uppákomur. „Já, ég hef svo gaman af því,“ seg- ir hann. „Að vera einhvers staðar á grensunni, en samt natúralistískur.“ Og í Gryfju getur að líta fyrr- nefndar leirstyttur og fimmtíu ára gamlar vatnslitamyndir, verk sem Eyjólfur gerði á lokaári námsins í Kaupmannahöfn 1966 og vinkona hans þar úti fann fyrir nokkru. „Ég var búinn að steingleyma þeim,“ segir hann. „Þarna er ég orð- inn abstrakt en byrjaði á að mála landslag og þróaðist út í þetta af þörf fyrir að breyta og leika sér.“ En stytturnar eru enn eldri náms- verk, frá 1951 til 53. „Ég gerði þær þegar ég var 11 til 12 ára, undir handleiðslu Ásmundar. Ég var í skóla Félags íslenskra frí- stundamálara að Laugavegi 166. Þar kenndu menn eins og Ásmundur, Þorvaldur Skúlason og Kjartan Guð- jónsson. Ég var í barnadeild fyrst en var alltaf að þvælast á efri hæðinni þar sem Ásmundur var meðal ann- ars að kenna fullorðnun og að lokum sagði hann: Þú ert alltaf hérna, byrj- aðu bara að módelera hjá okkur! Það varð ekki aftur snúið, ég lærði hjá honum í þrjú ár. Þessar tvær styttur hafa bara varðveist. Það réð úrslitum um ævi mína að vera þarna hjá Ásmundi. Hann var svo skemmtilegur og mikill öðlingur. Hann talaði við mig eins og fullorð- inn mann en meðal skólabræðranna voru Ragnar Kjartansson í Glit og Guðmundur Benediktsson mynd- höggvari. Ég teiknaði líka nokkur módel hjá Þorvaldi og það má segja að ég hafi orðið nánast fullnuma í anatómíu enda er maður svo mót- tækilegur á þessum aldri. En Ás- mundur var alveg frábær maður og mig langar að heiðra minningu hans með því að sýna stytturnar hér.“ „Einhvers staðar á grensunni“  Fantasíur um lífið og tilveruna á sýningu Eyjólfs Einarssonar í Listasafni ASÍ  Síðasta sýningin í safninu  Heiðrar minningu Ásmundar Sveinssonar með styttum sem hann gerði í tímum hjá honum Morgunblaðið/Einar Falur Fantasíur „Ég hef verið svolítið upptekinn af stjörnufræði og það fór að blandast inn í verkin,“ segir Eyjólfur Ein- arsson um ný málverk á sýningunni í Listsafni ASÍ þar sem sjá má Stórahvell í túlkun hans, með svífandi hringekjum. Sláttumaður Önnur leirstyttnanna sem Eyjólfur gerði barnungur í námi hjá Ásmundi Sveinssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.