Morgunblaðið - 10.09.2016, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 212. tölublað 104. árgangur
FAGNA ÚT-
GÁFU FYRSTU
VERKA SINNA
BALTASAR
KORMÁKUR
FÆR FULLT HÚS
EIÐURINN 54Í FÓTSPOR FEÐRANNA 14
Frír ís
fyrir
krakka!
í september
Nánar ábls 15
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórnarráðið er að leita lausna á þeim vandamálum
sem upp koma ef lagning háspennulína frá Þeista-
reykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka við
Húsavík verður bönnuð eða tefst mikið. Málið er á
verksviði fleiri en eins ráðherra og hefur Sigurður
Ingi Jóhannsson forsætisráðherra haft forystu um
vinnuna, samkvæmt heimildum blaðsins.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er
með til umfjöllunar kæru Landverndar vegna út-
gáfu framkvæmdaleyfa sveitarfélaga fyrir lagningu
háspennulína Landsnets á milli Þeistareykjavirkj-
unar og Bakka og tengingu við landskerfið. Fram-
kvæmdir voru hafnar en úrskurðarnefndin stöðvaði
þær að kröfu Landverndar á meðan fjallað er um
málið.
Nokkrar leiðir ræddar
Búist er við endanlegum úrskurði fyrir áramót.
Stjórnvöld og hagsmunaaðilar, meðal annars
bæjarstjórn Húsavíkur, óttast mjög afleiðingar
þess fyrir virkjun og uppbyggingu kísilvers PCC á
Bakka ef miklar tafir verða á verkefninu. Vitað er
að fulltrúar þýska bankans sem fjármagnar bygg-
ingu kísilversins hafa lýst áhyggjum sínum á fundi
með fulltrúum stjórnvalda og óskað eftir öðrum
fundi fljótlega. Fulltrúar stjórnvalda hafa rætt við
fleiri, meðal annars Landvernd sem rekur málið.
Nokkrar leiðir hafa verið til skoðunar hjá stjórn-
völdum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Meðal annars hefur verið rætt um að setja lög á
deiluna eða að skerpa á ákvæðum nýlegra náttúru-
verndarlaga með það að markmiði að verkefni sem
komin voru á beinu brautina fyrir gildistöku lag-
anna verði ekki fyrir truflun. Ef ríkisstjórnin
ákveður að grípa til aðgerða þarf að leggja frum-
varp fyrir Alþingi fljótlega.
Undirbúa lög vegna Bakka
Hagsmunaaðilar og stjórnvöld hafa áhyggjur af afleiðingum tafa á lagningu
raflína frá Þeistareykjum Stjórnvöld athuga möguleika á að skerpa á lögum
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fordæmdi í gær harðlega nýjustu
kjarnorkutilraun Norður-Kóreu.
Öryggisráðið ætlar að ræða „umtals-
verðar aðgerðir“ gegn stjórnvöldum í
Pjongjang og bregðast þannig við
kjarnorkutilrauninni, að því er forseti
Öryggisráðsins, Nýsjálendingurinn
Gerard van Bohemen, sagði frétta-
mönnum í höfuðstöðvum SÞ í gær.
Öryggisráðið var kallað til neyðar-
fundar fyrir luktum dyrum í gær til að
ræða nýjustu kjarn-
orkutilraun
Norður-Kóreu-
manna. Kjarnorku-
sprengjan sem þeir
sprengdu í fyrrinótt
var sú fimmta, og
langöflugasta, sem
Norður-Kóreumenn
hafa sprengt frá því þeir hófu að þróa
kjarnorkuvopn og langdrægar eld-
flaugar. »28
Öryggisráð SÞ fordæmir kjarnorkutilraun
Norður-Kóreu og boðar aðgerðir
Það er gaman að fá sér göngutúr um borgina í góðu veðri og
ekki síður þegar kvölda tekur og sólin fer að setjast. Við Sæ-
brautina er listaverkið Sólfarið, sem er eftir myndhöggvar-
ann Jón Gunnar Árnason og vekur athygli þeirra sem leið
eiga hjá.
Algengt er að sjá ferðamenn stoppa við Sólfarið á leið sinni
um miðbæinn. Íbúasamtök Vesturbæjar ákváðu árið 1986 að
gefa Reykjavíkurborg myndverk í tilefni af 200 ára afmæli
borgarinnar og var Jón Gunnar beðinn um að vinna verkið.
Sólfarið er vinsæll viðkomustaður og þar taka margir myndir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvöldsólin lýsir upp listaverk og hús við Sæbrautina
Dúntekja hefur lítil áhrif á af-
komu æðarkollna í þéttu varpi og
kemur það erlendum viðskipta-
mönnum, sem kynna sér tekju á
dúni sem þeir kaupa, á óvart að sjá
hvernig hún fer fram. Þetta segir
Þórður Örn Kristjánsson, nýút-
skrifaður doktor í líffræði og fyrsti
heyrnarlausi Íslendingurinn til
ljúka doktorsprófi, í viðtali í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Kannaði áhrif dúntekju
Heimsmethafinn Helgi Sveins-
son var fyrstur íslensku keppend-
anna fimm til að keppa á
Ólympíumóti fatlaðra í Ríó í gær-
kvöld þegar hann keppti í spjót-
kasti. Helgi var um tíma í 3. sæti
en féll niður í það fjórða og loks
það fimmta áður en keppninni
lauk. Hann kastaði lengst 53,96
metra, í fyrstu tilraun.
Helgi keppir í fötlunarflokki
F42 og á heimsmetið í þeim
flokki, en það er 57,36 metrar.
Hann bætti ólympíumetið í þeim
flokki í gær með
lengsta kasti sínu.
Á ólympíumótinu
keppa keppendur
í flokki Helga
hins vegar með
tveimur öðrum
fötlunarflokkum,
F43 og F44.
Sigurvegari varð
Akeem Stewart frá Trínidad og
Tóbagó sem kastaði 57,32 metra.
Helgi hefði þurft 55 metra kast til
að fá bronsverðlaun. » Íþróttir
Helgi
Sveinsson
Helgi reið á vaðið og varð fimmti í Ríó