Morgunblaðið - 10.09.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.09.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016 PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 10 . SEPTEMBER BRYNDÍS Haral ÉG ÓSKA EFTIR ÞÍNUM STUÐNINGI Í 4. SÆTIÐ 4 reglunum og Samgöngustofa og systurstofnanir erlendis annast eft- irlitið. Reglur flugfélaga Icelandair bendir farþegum sín- um á það í reglum um farangur að aukarafhlöður eigi eingöngu að vera í handfarangri. Ef flytja þarf tösku úr handfarangri úr farþega- rými í lest flugvélar á farþeginn að segja starfsfólki frá litíum- rafhlöðum sem þar kunni að vera. Litíum-rafhlöður má eingöngu flytja í handfarangri hjá WOW air. Þar er sett hámark á styrkleika, 300 vött. hvattir til að hafa tækin sín, svo sem farsíma, myndarvélar og tölv- ur, í handfarangri. Bannað er að hafa aukarafhlöður í ferðatöskum sem fara í farangurshólf vélarinnar, einnig rafrettur. Rafhlöður yfir ákveðnum styrkleika fær fólk ekki að taka með sér. Farþegum er ekki beinlínis bannað að láta tækin sjálf í farangurstöskuna en verður þá að tryggja að vel sé frá þeim gengið og örugglega sé slökkt á tækj- unum. Ekki er tékkað á þessum tækjum í vopnaleit á flugvöllum, samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA. Það er hlutverk flugfélaga að framfylgja „Ég hóf nám í september 2014 og klára bóklegt grunnnám hjá Flug- skóla Íslands, en fyrir það greiddi ég 460.000 krónur. Í skólanum var okkur sagt að við gætum að námi loknu sótt um áframhaldandi nám hjá Isavia,“ segir Þórir Sigvaldason, en hann er einn þeirra sem hófu grunnnámskeið í flugumferðar- stjórn hjá Flugskóla Íslands áður en Isavia tók námið yfir að fullu. Eftir að Isavia, Flugskóli Íslands og Flugskóli Keilis gerðu sam- komulag árið 2015 um að grunn- námskeið fyrir nám í flugumferðar- stjórn yrðu framvegis haldin á vegum Isavia segir Þórir að hann hafi ekki fengið námsvist hjá Isavia til þess að ljúka námi sínu. Segist hann hafa fengið þau svör að hann yrði að taka bóklega þátt grunn- námsins aftur þar sem Isavia myndi ekki meta fyrri námsárangur hans hjá flugskólanum. „Eins og gefur að skilja er ég mjög ósáttur við þetta. Maður er bú- inn að borga háa fjárhæð fyrir nám- ið og vinnutap ofan á það,“ segir Þórir og bætir við að hann og tveir aðrir einstaklingar í sömu stöðu ætli að krefja flugskólann endurgreiðslu á námsgjöldum. Þórður Már Jónsson er lögmaður mannanna. „Flugskólinn var að selja þarna rándýrt nám án þess að trygging væri fyrir því að það myndi nýtast mönnum á nokkurn hátt. Hvort endanlegri kröfu verði beint að flugskólanum, Isavia eða báðum á eftir að koma í ljós,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið í sambandi við skólastjórnendur. Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, segir ábyrgðina fyrst og fremst liggja í ákvörðun Isavia þess efnis að taka námið yfir og að flugskólinn hafi boðið nem- endum sínum upp á nám sem væri í fullu samræmi við allar reglur. Nemendur krefja flugskóla sinn um endurgreiðslu  Hófu nám í flugumferðarstjórn en segja Isavia ekki meta námsárangur Morgunblaðið/RAX Stjórnun Starfandi flugumferðar- stjórar eru um 120 talsins. Nokkur um- ferðaróhöpp urðu í gær. Slys varð á Hálsasveit- arvegi nálægt Borgarnesi. Ekki er vitað um slys á fólki. Malar- flutningabíll valt við Húsavík. Öku- maður slapp að mestu óskadd- aður. Þriggja bíla árekstur varð á Skeiðarárbrú og tepptist umferð vegna árekstursins. Ökumenn og farþegar sluppu ómeiddir að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Strætisvagn ók aftan á hóp- ferðabíl sem dró kerru við Valla- hverfi í Hafnarfirði um þrjúleytið. Nokkur umferðar- óhöpp urðu víða um land í gær Hafnarfjörður Rúta skemmdist. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Lög um breytingu á þingsköpum Alþingis voru samþykkt með 37 samhljóða atkvæðum í fyrradag. Lögin gera ráð fyrir því að yfir- standandi þing, 145. löggjafarþing- ið, verði framlengt til 29. október, en þann dag er áformað að alþingis- kosningar fari fram. Þar sem fyrir- hugaðar alþingiskosningar munu fara fram áður en kjörtímabil al- þingismanna rennur út þarf að rjúfa þing á grundvelli 24. gr. stjórnar- skrárinnar til að kalla fram kosn- ingar. Tilkynning um þingrof felur í sér hina formlegu ákvörðun um kjördag. Samkvæmt sömu grein skulu al- þingiskosningar fara fram innan 45 daga frá því að þingrof er tilkynnt. Því er fyrst hægt að tilkynna um þingrof fimmtudaginn 15. septem- ber næstkomandi. Er fastlega búist við því að Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra lesi forsetabréf um þingrof á Alþingi þann dag. Um leið og tilkynnt hefur verið um þingrof getur undirbúningur kosninganna hafist, þar á meðal kosning utan kjörfundar. Kosning utan kjörfundar getur samkvæmt lögum hafist átta vikum fyrir kjör- dag en að þessu sinni verður tím- inn skemmri, um sex vikur. Innanríkis- ráðuneytið undir- býr kosningarnar og hefur yfirum- sjón með utankjörstaðaratkvæða- greiðslum hérlendis. Utanríkisráðu- neytið hefur umsjón með kosningum erlendis. „Innanríkisráðuneytið er meðvit- að um að alþingiskosningar eru fram undan og kemur að fram- kvæmd þeirra eins og lög gera ráð fyrir. Þegar kjördagur hefur verið auglýstur formlega verður með stuttum fyrirvara unnt að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu inn- anlands sem utan,“ segir Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi innan- ríkisráðuneytisins. Í sama streng tekur Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Þar sé undirbúningur fyrir atkvæða- greiðslu utan kjörfundar hafinn. Kosningar undirbúnar  Lög um framlengingu þings samþykkt  Búist við því að forsætisráðherra til- kynni um þingrof á fimmtudag  Ráðuneyti undirbúa utankjörfundarkosningu Sigurður Ingi Jóhannsson Ekki er bannað að flytja litíum-rafhlöður með sér- stökum fragtflugvélum en um flutninginn gilda ákveðnar reglur. Flugrekendum er svo í sjálfsvald sett hvort þeir setja sér strangari reglur varðandi þennan flutning, samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Stóru hraðflutningafyrirtækin, eins og FedEx, DHL og UPS, flytja ekki pakka þar sem litíum-rafhlöður koma við sögu. Það takmarkar möguleika fólks á að kaupa sér síma, myndavélar eða tölvur á netinu. Sölufyrirtækin bjóða ekki upp á flutning með skip- um. Flytja ekki litíum-rafhlöður STÓRU HRAÐFLUTNINGAFYRIRTÆKIN Tækin eiga að vera í handfarangri. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Litið er á litíum-rafhlöður, orku- gjafa flestra smátækja sem eru hluti af daglegu lífi fólks, sem hættulega vöru í flugi. Farþegar eru beðnir um að taka auka- rafhlöður með í handfarangri og helst einnig öll tæki sem rafhlöð- urnar eru í. Hraðflutningafyrirtæki taka ekki við sendingum þar sem litíum-rafhlöður koma við sögu. Mikil umræða hefur verið um litíum-rafhlöður og hættu af þeim í flugheiminum á undanförnum ár- um. Talið er að eldur geti kviknað út frá rafhlöðum, einkum ef þær hafa skemmst, skammhlaup verður eða þær ofhitna. Einnig getur það gerst vegna framleiðslugalla. Jafn- vel eru sögð dæmi um að þær hafi sprungið. Grunur leikur á að tvær vöruflutningavélar hafi farist á ár- unum 2010 og 2011 vegna elds frá slíkum rafhlöðum. Bannað í farangursgeymslu 1. apríl síðastliðinn tók gildi bann Alþjóðaflugmálastofnunarinnar við flutningi litíum-rafhlaðna í farang- ursrými farþegaflugvéla. Á bannið bæði við um endurhlaðanlegar raf- hlöður (ion) og þær sem ekki er hægt að hlaða (metal). Í leiðbein- ingum Evrópsku flugöryggis- málastofnunarinnar eru farþegar AP Eftirlit Litíum-rafhlöður eru ekki athugaðar við vopnaleit enda ætlast til þess að þær séu í handfarangri. Litíum-rafhlöður ekki í farangursrými flugvéla  Varúðarráðstafanir í farþegaflugi  Óttast íkveikju

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.