Morgunblaðið - 10.09.2016, Page 26
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Einkaneysla jókst um 7,7% fyrstu
sex mánuði ársins samanborið við
fyrri árshelming 2015. Sé miðað við
annan fjórðung ársins í fyrra jókst
einkaneysla um 8,2% og er það mesti
vöxtur einkaneyslu síðan á fyrsta
ársfjórðungi 2008. Þetta kemur fram
í Hagtíðindum frá Hagstofu Íslands
Landsframleiðsla á öðrum árs-
fjórðungi jókst um 3,7% frá sama
fjórðungi í fyrra. Landsframleiðsla
hefur því aukist um 4,1% að raungildi
á fyrri árshelmingi í samanburði við
sama tímabil árið 2015.
Samtala neyslu og fjárfestingar,
svonefnd þjóðarútgjöld, jókst um
9,4% á fyrri hluta ársins frá sama
tímabili í fyrra.
Samneysla á fyrri árshelmingi
jókst um 0,6% sé borið saman við
sama tímabil í fyrra. Sé samneysla á
örðum fjórðungi borin saman við
sama tímabil í fyrra jókst hún um
1,1%.
Mikil aukning fjárfestingar
Á öðrum fjórðungi jókst fjárfest-
ing um 31,2% miðað við sama fjórð-
ung í fyrra. Þyngst vegur aukin fjár-
festing atvinnuveganna eða 37,3%.
Þá jókst íbúðafjárfesting um 25,5%
og fjárfesting hins opinbera um 6,3%.
Fjárfesting sem hlutfall af lands-
framleiðslu hefur vaxið hratt undan-
farin misseri og er nú komin í 23% og
hefur ekki verið meiri frá því á fjórða
ársfjórðungi 2008.
Fram kemur í Hagtíðindum að
birgðir í landinu hafi dregist saman á
öðrum fjórðungi ársins um 9,1 millj-
arð króna. Mest munar um samdrátt
í birgðum sjávarafurða, um 8,5 millj-
arða, og 2,2 milljarða króna í birgðum
í stóriðju. Þá jukust birgðir í rekstr-
arvörum um 1,6 milljarða.
Á öðrum fjórðungi ársins jókst inn-
flutningur um 16,7% á milli ára.
Útflutningur jókst hins vegar um
4,9% á fyrstu sex mánuðum ársins í
samanburði við sama tímabil í fyrra.
Neikvæður vöruskiptajöfnuður
Vöruskiptajöfnuður var neikvæður
um 38,5 milljarða króna á öðrum árs-
fjórðungi. Vöruútflutningur nam
140,6 milljörðum króna og vöruinn-
flutningur nam 179,1 milljarði. Á
sama tíma var þjónustujöfnuður já-
kvæður um 62,3 milljarða. Útflutn-
ingur á þjónustu nam 160,1 milljarði
króna og innflutningur á þjónuustu
nam 97,8 milljörðum.
Samanlagður afgangur af vöru- og
þjónustuviðskiptum var um 25,7
milljarðar króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins 2016 en var 76 milljarðar
króna á sama tímabili í fyrra.
Ársbreyting landsframleiðslunnar,
svonefndur hagvöxtur, á öðrum árs-
fjórðungi var mest á Íslandi sé horft
til helstu samanburðarlanda, eða
3,7%. Næst var Svíþjóð með 3,1%,
Bretland með 2,2%, Holland og
Þýskaland með 1,7%, Frakkland með
1,4%, Noregur 1,3%, Bandaríkin
1,2%, Japan og Finnland með 0,6%
og loks Danmörk með 0,4%
Mesti vöxtur einka-
neyslu síðan 2008
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdir Fjárfesting í landinu hefur vaxið hratt undanfarin misseri.
Ísland með meiri hagvöxt en helstu viðskiptalönd þess
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
10. september 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 114.1 114.64 114.37
Sterlingspund 152.39 153.13 152.76
Kanadadalur 88.58 89.1 88.84
Dönsk króna 17.295 17.397 17.346
Norsk króna 14.029 14.111 14.07
Sænsk króna 13.582 13.662 13.622
Svissn. franki 117.87 118.53 118.2
Japanskt jen 1.1222 1.1288 1.1255
SDR 160.2 161.16 160.68
Evra 128.77 129.49 129.13
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 160.3755
Hrávöruverð
Gull 1335.65 ($/únsa)
Ál 1566.0 ($/tonn) LME
Hráolía 48.55 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eftir samráð við Fjármálaeftirlitið og
Seðlabankann hefur ríkisstjórn Íslands
ákveðið að fella úr gildi yfirlýsingu sem
gefin var 6. október 2008 um ábyrgð á
öllum innstæðum almennra sparifjáreig-
enda og fyrirtækja. Var yfirlýsing þessi
áréttuð fjórum sinnum frá því hún var
upphaflega gefin.
Hún varð hins vegar aldrei lögfest og
segir í nýrri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
að litið hafi verið á hana sem viljayfirlýs-
ingu. Ekki hafi verið greitt af henni rík-
isábyrgðargjald. ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, komst að því árið 2012 að í yfirlýs-
ingunni fælist ríkisaðstoð við banka í
skilningi EES-samningsins. Kemur einnig
fram í tilkynningu að innlánsstofnanir
standi traustum fótum um þessar mund-
ir, hvað snertir eigið fé, fjármögnun,
lausafé og jafnvægi í rekstri. Þá hafi ýms-
ar viðamiklar breytingar orðið á lagaum-
hverfi fjármálamarkaða á síðustu árum,
svo sem breytingar á lögum um fjármála-
fyrirtæki og auknar kröfur gerðar um eig-
ið fé fjármálafyrirtækja og gæði þess.
Ríkið ekki lengur í
ábyrgð fyrir innstæðum
STUTT
Icelandic Group hefur komist að sam-
komulagi um sölu á dótturfélagi sínu
á Spáni, Icelandic Ibérica, til Solo
seafood ehf. Að baki Solo seafood
standa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
sem eru á meðal helstu birgja Ice-
landic Ibérica, svo sem Fisk-Seafood,
Jakob Valgeir og Nesfiskur. Vöru-
merki félagsins „Icelandic Seafood“
fylgir ekki með í kaupunum.
Icelandic Ibérica er eitt fjögurra
dótturfélaga Icelandic Group og er
einn helsti sölu- og dreifingaraðili á
léttsöltuðum þorski frá Íslandi ásamt
ýmsu öðru frosnu sjávarfangi. Tekjur
Icelandic Ibérica árið 2015 námu ríf-
lega 100 milljónum evra, um 13 millj-
örðum króna, og hjá fyrirtækinu
starfa um 140 manns. Félagið selur
sjávarafurðir til meira en 4.000 við-
skiptavina í fimm löndum í Suður-
Evrópu. Til samanburðar var velta
Icelandic Group árið 2015 um 500
milljónir evra.
Ætla að efla markaðssetningu
Markmið kaupanda er að efla sölu
og markaðssetningu á íslenskum
sjávarafurðum undir vörumerkinu
„Icelandic Seafood“ í Suður-Evrópu.
Samhliða kaupsamningi gerðu aðilar
með sér leyfissamning sem gefur
kaupanda rétt á notkun á vörumerk-
inu „Icelandic Seafood“ í Suður--
Evrópu. Framkvæmdastjóri Ice-
landic Ibérica undanfarin tuttugu ár,
Hjörleifur Ásgeirsson, mun áfram
stýra félaginu.
Íslandsbanki var ráðgjafi Icelandic
Group en fyrirtækjaráðgjöf Kviku
var ráðgjafi kaupanda.
vilhjalmur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Fiskur Icelandic Ibérica selur létt-
saltaðan þorsk til Suður-Evrópu.
Selja starfsemi
Icelandic á Spáni
Vörumerki
Icelandic Seafood
fylgir ekki með
„Gangi spá okkar eftir fjölgar ferða-
mönnum milli áranna 2016 og 2017
um tæplega 620 þúsund, sem svarar
til um 3,4% mannfjölgunaráhrifa,“
segir í nýlegri úttekt greiningardeil-
ar Íslandsbanka um fjölda ferða-
manna á næstu árum.
Þar segir enn fremur að sam-
kvæmt gögnum frá Isavia um úthlut-
uð stæði fyrir tímabilið 1. nóvember
2016 til 25. mars 2017 megi búast við
58% framboðsaukningu á ársgrund-
velli á flugsætum til landsins fyrir
fyrrgreint tímabil. Íslandsbanki hef-
ur því uppfært forsendur í spá sinni
um fjölgun erlendra ferðamanna út
þetta ár, byggt á þessum nýju gögn-
um, og gerir nú ráð fyrir að þeim
fjölgi um 39% á árinu, en á næsta ári
fjölgi þeim um 35%. Bankinn gerir
því ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár
verði ríflega 1.760 þúsund en tæp-
lega 2.370 þúsund á næsta ári. Gangi
spáin eftir verður fjöldi ferðamanna
hér á landi á næsta ári ríflega sjö-
faldur íbúafjöldi í landinu.
Miðað við úthlutuð stæði fyrir jan-
úar 2017 eykst framboð um 70% milli
ára og Isavia væntir þess, byggt á
áætlaðri sætanýtingu síðustu 5 ár, að
farþegum yfir þetta tímabil muni
fjölga um tæp 50%.
vilhjalmur@mbl.is
Ferðafólk Vænta má enn frekari
fjölgunar ferðamanna næstu árin.
Spáir 2,4
milljónum
ferðamanna
Morgunblaðið/Ómar