Morgunblaðið - 10.09.2016, Síða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
✝ Sigríður Ás-grímsdóttir
fæddist á Hálsi í
Öxnadal 30. janúar
1931. Hún andaðist
á hjúkrunarheim-
ilinu Hlíð, Akureyri
26. ágúst 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Ásgrímur
Halldórsson, f.
21.11. 1903, d. 8.1.
1980, og Sigurrós
Kristinsdóttir, f. 24.1. 1901, d.
4.8. 2002, bændur á Hálsi í
Öxnadal. Systkini Sigríðar eru
María Jóhanna, f. 14.6. 1925, d.
9.6. 2009, Jónína, f. 7.2. 1929,
Svana, f. 12.12. 1932, Hulda Dal-
rós, f. 31.5. 1934, d. 22.4. 2004,
og Sigurður Kristinn, f. 15.3.
1939.
Sigríður var í barnaskóla að
Þverá í Öxnadal. Sigríður fór að
heiman og vann sem vinnukona
í Bolungarvík árið 1951 og vet-
urinn eftir á Siglufirði. Eftir það
vann hún í mötuneyti á Hótel
Akureyri árin 1953-1954. Hún
réði sig svo sem ráðskonu að
Hólum í Hjaltadal tvo vetur,
1954-1956. Þar kynntist hún
Einari Magnúsi Björnssyni, f.
20. apríl 1937, frá Svínabökkum
í Vopnafirði, og giftu þau sig 7.
júní 1959. Þau fluttust að Hálsi í
Öxnadal vorið 1956 til foreldra
Börn Sigríðar og Einars
Magnúsar: Björn Lúðvík, f. 6.9.
1956, maki Jóhanna Jörg-
ensdóttir, f. 29.4. 1962. Börn
þeirra eru Ásdís Sigríður,
Magnús, Örn, Petra Sif og
Björk. Tíu barnabörn. Ásgrím-
ur, f. 15.10. 1957, maki Sædís
Gunnsteinsdóttir, f. 3.9. 1958.
Börn þeirra eru Sandra, Sigríð-
ur Edda og Hafrún Ösp. Þrjú
barnabörn. Ólafur, f. 18.1. 1959,
maki Hrafnhildur Báru Hilm-
arsdóttir, f. 3.4. 1961, börn
þeirra eru Magnús og Ævar
Þór. Fjögur barnabörn. Heimir,
f. 17.4. 1960, maki Sigríður Sig-
urðardóttir, f. 3.12. 1965. Börn
þeirra eru Hugrún Lísa (af fyrra
sambandi Heimis), Herdís (af
fyrra sambandi Sigríðar), Sara
Rut og Selma Rán. Átta barna-
börn. Hilmar Þórarinn, f. 21.2.
1962, maki Leanne Carol Leg-
gett, f. 1.6. 1967. Börn þeirra
eru Eva (af fyrra sambandi
Hilmars), Tanja Freydís, Mel-
korka Ýrr, Bjarni Rafn og Bríet
Rós. Erla Guðrún, f. 31.3. 1963,
maki Bjarni Ragnar Brynjólfs-
son, f. 29.2. 1964. Börn þeirra
eru Viggó Snær (af fyrra sam-
bandi Erlu), Kári Sveinberg (af
fyrra sambandi Bjarna) og
Berglind. Hörður Vignir, f. 23.8.
1965, maki Guðrún Jóhanna
Friðriksdóttir, f. 28.10. 1968.
Börn þeirra eru Íris Elna, Ester
Lilja og Axel Freyr. Anna Rósa,
f. 26.4. 1968. Börn hennar eru
Sólbjörg Jóna og Vala Rún.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigríðar og voru
þar matvinnungar í
eitt ár. Leiðin lá svo
til Vopnafjarðar í
júní 1957. Þar hófu
þau búskap að
Svínabökkum og
ólu þar upp sín átta
börn. Eftir andlát
eiginmanns síns 14.
apríl 1978 vann
Sigríður meira
meðfram búskap.
Hún var ráðskona í Torfastaða-
skóla í tvo vetur. Hún var einnig
ráðskona hjá Vegagerðinni í
þrjú sumur til 1983 og vann í
saltfiski á veturna á móti sum-
arvinnunni. Sigríður bjó áfram
á Svínabökkum fram til 1980
þegar Björn elsti sonur hennar
tók við búinu. Þá fluttist hún í
þorpið á Vopnafirði.
Haustið 1983 flutti Sigríður
svo til Skáleyja á Breiðafirði og
réð sig sem ráðskonu hjá Jó-
hannesi Geir Gíslasyni og Ey-
steini bróður hans. Hún og Jó-
hannes hófu sambúð og bjuggu
saman í Skáleyjum í 15 ár. Eftir
að leiðir þeirra skildu bjó hún
hjá börnum sínum til skiptis og
flutti svo til Akureyrar. Árið
2010 flutti hún í íbúð á Sunda-
búð á Vopnafirði og bjó þar þar
til hún veiktist alvarlega 18. júní
2016.
Sigríði Ásgrímsdóttur kynnt-
ist ég haustið 1983. Hún réðist
það haust til heimilisstarfa í
Skáleyjum.
Fljótlega urðu þau kynni okk-
ar að við deildum kjörum og rugl-
uðum reytum. Þessi sambúð okk-
ar entist í 15 ár og ég kynnti hana
glaður sem konuna mína. Hún
var uppalin í Öxnadal, eitt stykki
úr stórum systkinahópi, barna
framtakssamra og ötulla for-
eldra, öllu vön, víkingur til starfa
jafnt úti sem inni, karlmanns-
ígildi og vel það í byggingarvinnu
og hverju sem var í búskap-
aramstri, mörgum karlinum vitr-
ari til verka, hreifst af tækni, af-
köstum og möguleikum nýrrar
aldar í búskap. Þekkti vel puð og
erfiði fyrri tíma. Sá og skildi
möguleikana í nýtingu eyjagagn-
sins, lét aldrei sitt eftir liggja.
Fann að vísu til viðbjóðs við
fyrstu kynni af skarfafari, en
mannaði sig upp og rotaði skarf-
ana þegar að henni barst.
Hún var húsmóðir af lífi og sál,
þoldi síst afskiptasemi, þaðan af
síður iðjuleysi nálægt sér. Átti til
að vera orðhvöt og fór ekki í
manngreinarálit ef hún vandaði
um.
Samlíf okkar var gott. Þó
stundum skærist í odda var alltaf
nóg af eðlislægri hlýju til jöfn-
unar. Þegar gesti bar að garði
var húsmóðirin í essinu sínu og
vildi ekki láta þvælast fyrir sér.
Bóndinn átti að tala við gestina
meðan móðirin framreiddi
nægtaborðið.
Oft hefur mér þótt að saga
hennar ætti fullt erindi á prent,
ekki síður en margar sem þangað
rata.
Þetta var Sigga frá Hálsi.
Afmæliskveðja 30.1. 2001
Í vindi bæði og veðrum öllum
vörðinn stendur klettur snjall.
Hlutlaus gagnvart tímans tröllum
traustur eins og basaltfjall.
Klettur sá mun fráleitt flestra
flærðarbrosum gapa mót.
Hann vill skýla, hann vill leiða,
hann vill styðja veikan fót.
Þó svo rymji kannski klettur
kafaldshretum mannlífs við.
Allir þeir, sem þekkja skjólið
þreifa uppi rétta hlið.
Kálfar, lömb og litlu börnin
leita glöð í þetta skjól.
Þeim finnst gaman, þar er hlýja,
Þar er gott að eiga ból.
Sjálfur hefi ég klettinn kannað,
kynnum þeim ég merki ber.
Löngum var hann fastur fyrir,
festarhaldið trausta mér.
„Einhver þokkinn“, „það er vísast“
þæfa geð – er slakna bönd.
Klettsins auðnu ætíð blessi
almáttuga drottins hönd.
(Jóhannes Geir Gíslason.)
Mér eru margar minnisstæðar
ferðir okkar saman frá daglegu
amstri. Hæst ber dvölina á Flór-
ída, tvær vikur í félagsskap henn-
ar fólks. Við höfðum hvorugt far-
ið til útlanda fyrr og það sem
fyrir augu og eyru bar, snertingu
og kynni lifir. Sömuleiðis ferð
okkar um Evrópu, síðar í hópi.
Skilnaður okkar var í sátt og
vináttan hélst þó færri yrðu
fundir. Mér þykir sem Guð og
æðri máttarvöld hafi sent mér
þennan tíma og slitið honum í
fyllingu. Eigi má sköpum renna.
Í minningu hennar bið ég fólki
hennar, afkomendum og tengda-
fólki blessunar.
Kynni hafa fjarlægst síðan
leiðir skildu svo mér þykir ég
næsta fávís um þennan stóra hóp,
en ég veit að þetta er gæfufólk og
minnist þeirra kynna með gleði.
Jóhannes Geir Gíslason.
Sigríður
Ásgrímsdóttir
✝ Jóhann Ant-onsson fæddist
30. ágúst 1927 á
Selá á Árskógs-
strönd. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 29. ágúst
2016.
Móðir hans var
Svanbjörg Árna-
dóttir, f. 14. mars
1902, d. 5. sept-
ember 1972, og
faðir Sigurður Anton Jóhanns-
son, f. 23. júní 1902, d. 30.júní
1931. Systir Antonía Antons-
dóttir, f. 20. september 1931, d.
29. september 2009.
Jóhann giftist Petreu Jen-
nýju Gunnarsdóttur, f. 15.
október 1929, frá Garði,
Hauganesi, þann 1. desember
1949. Foreldrar hennar voru
Gunnar Níelsson og Helga
Jónsdóttir. Börn Jóhanns og
Petreu eru: 1. Gunnborg, f.
1947, d. 1947, 2. Arnheiður H.,
f. 1950, d. 1950. 3. Gunnar A.,
arssyni Sizemore, a) Alexander
Fannar, f. 31. október 1998, b)
Anton Freyr, f. 27. október
2000. 6. Jóhann Heiðar, f. 18.
júlí 1964, kvæntur Önnu Sig-
rúnu Sigurðardóttur, börn
þeirra eru: a) Jóhann Geir, f.
19. september 1982, sambýlis-
kona Lena Kristjánsdóttir,
barn þeirra er Gísli Valberg, f.
2011. Börn Lenu eru Viktor, f.
1994, og Eyþór, f. 1998, b)
Alma Rún, f. 3. desember 1987,
d. 3. desember 1987, c) Elmar
Logi, f. 31. mars 1989, d) Atli
Rúnar, f. 30. september 1997,
kærasta Katla Dröfn Sigurð-
ardóttir.
Jóhann flutti með móður
sinni og afa og ömmu niður á
Hauganes, í Selvík, þegar hann
var fjögurra ára. Hann var sjó-
maður og útgerðarmaður. Sjó-
mennskan var ávallt stór hluti
af lífi hans. Jóhann var góður
bridsspilari. Jóhann var virkur
Lionsmaður og stofnmeðlimur í
Lionsklúbbnum Hræreki árið
1972.
Útför hans fer fram í dag,
10. september 2016, í Árskógs-
kirkju klukkan 15.
f. 1956, d. 1956. 4.
Gunnar Anton, f.
5. febrúar 1958,
kvæntist Hafdísi
Njálsdóttur, skilin.
Börn þeirra eru:
a) Petra Sif, f. 6.
júlí 1975, gift
Þráni Brjánssyni,
barn þeirra Íris
Björk, f. 2010. b)
Berglind Rut, f.
21. apríl 1980,
barn Brandon Anton, f. 2006. c)
Íris Rún, f. 21. maí 1981, gift
Arnari Gauta Finnssyni, börn
þeirra eru Angantýr Máni, f.
2000, Aþena Sól, f. 2002, og
Sesar Blær, f. 2012, d) Gunnar
Anton Njáll, f. 19. desember
1984, sambýliskona Vala María
Kristjánsdóttir, e) Guðni Már,
f. 25. nóvember 1988, sambýlis-
kona Árný Jónsdóttir, barn
þeirra Anton Örn, f. 2016, f)
Arnór Daði, f. 7. janúar 1994.
5. Svanbjörg Helga, f. 13. nóv-
ember 1961, gift Ívari Gunn-
Minnist ég nú þess tíma er ég
var 15 ára gömul og bjó í Garði.
Það var á þeim tíma er Jói minn
fór að gera sér ferðir til mín og
við stungum saman nefjum. Nú
eru rúm 70 ár liðin. Það fyllir mig
hlýju og hamingju í hjarta að
hugsa til baka til þessara 70 ára
sem við áttum saman. Minnist
þess tíma er við fórum í siglingar
með Dísarfellinu og heimsóttum
sex lönd með Valborgu systur og
Sigtryggi.
Þú elskaðir ávallt sjóinn.
Starfið var sjómennska og síðar
varstu útgerðarmaður, svo þegar
í land var komið, var sjórinn
helsta áhugamálið. Byggðir upp
útgerðina Draupni ásamt Ang-
antý og Kristjáni, þú varst ávallt
mjög duglegur og einnig laghent-
ur, ávallt náðir þú að laga það
sem bilaði. Ég rifja upp tímann
þegar þú varst hættur á Draupni
og keyptir trillu. Það voru ynd-
islegir tímar þegar við fórum
saman að vitja grásleppunetanna
og fjörðurinn skartaði sínu feg-
ursta. Við giftum okkur að Völl-
um hjá séra Snævari. Ekki var
hægt að kynda kirkjuna, svo
hann gaf okkur saman í baðstof-
unni, það þótti okkur skemmti-
legt og skondið og svo var boðið
upp á kaffi og kökur. Brúðkaups-
dagurinn var yndislegur.
Við höfum brallað margt sam-
an í gegnum árin, elsku Jói minn.
Minnisstæðar eru síldarvertíð-
irnar okkar á Seyðisfirði og úti-
legur með barnabörnunum okk-
ar.
Jói minn var ákaflega fé-
lagslyndur maður og hafði gaman
af því að vera með fólki. Stofnaði
Lionsklúbbinn Hrærek og spilaði
brids við hvert tækifæri. Þegar
ég hugsa til baka og rifja upp árin
okkar, Jói minn, þá kemur fyrst
upp í huga minn þakklæti, ást og
kærleikur.
En einnig söknuður, ég sakna
stundanna sem við áttum í stof-
unni heima í Nesveginum.
Fannst það notalegt þegar við
sátum í þögninni og héldumst í
hendur.
Elsku Jói minn, þú munt ávallt
vera mér ofarlega í huga og ég
mun aldrei gleyma þér. Takk, Jói
minn, fyrir allt sem þú hefur gef-
ið mér og fyrir að hafa orðið gam-
all með mér, mundu mig og ég
man þig. Ástar- og saknaðar-
kveðja frá þinni
Petreu Jennýju.
Elsku afi minn, nú er komið að
kveðjustund. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt þig fyrir afa og
tel mig hafa unnið í ömmu- og
afalottóinu, að hafa fengið ykkur
ömmu. Takk, elsku afi minn, fyrir
allt saman, sérstaklega fyrir
ferðalögin með ykkur ömmu. Þar
stendur upp úr ferðin til Flateyr-
ar, þegar þið amma sóttuð okkur
Berglindi í sveitina og fóruð með
okkur.
Þessari ferð mun ég aldrei
gleyma. Ég sakna þín, elsku afi
minn, sakna að sjá þig ekki í
stólnum þínum í Nesvegi þegar
ég kem og sakna þess að geta
ekki smellt kossi á þig og heyra
þig segja „Nei ertu bara heima,
ekkert flakk á þér núna?“ Elsku
afi minn, þú veist að við munum
passa ömmu fyrir þig. Elska þig,
Íris Rún.
Jóhann Antonsson HINSTA KVEÐJA
Elsku langafi, takk fyrir
allar stundirnar sem við
áttum saman. Við erum
rosalega heppin að hafa átt
þig sem langafa. Elskum
þig og söknum og munum
passa langömmu.
Kveðja
Angantýr Máni, Aþena
Sól og Sesar Blær.
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Þökkum ættingjum og vinum auðsýnda
samhygð og stuðning við fráfall
ÁSTRÁÐS KARLS GUÐMUNDSSONAR
sem lést 9. júlí síðastliðinn.
.
Hrefna Guðmundsdóttir,
Jóhannes Hrefnuson Karlsson.
Þá er komið að
kveðjustund, kæri
fóstri minn, aðeins
fyrr en maður gerði
ráð fyrir þar sem spítalalega þín
var aðeins tvær vikur. Ég kom að
Sveðjustöðum fermingarárið mitt
til Dúdda og Lilju, sem ég hafði
þekkt alla ævi þar sem foreldrar
mínir og þau voru vinafólk. Hug-
myndin var að vera eitt sumar í
sveit hjá þeim en það breyttist
fljótt þar sem Sveðjustaðir urðu
mitt annað heimili meira og minna
í mörg ár. Þá voru þrjú af börn-
unum þeirra heima, Palli, Biggi og
Kolla, en Sigga farin að heiman og
flutt til Noregs. Einnig var Höddi
frændi þar og svo komu alltaf
fleiri börn á sumrin, aðallega
systrabörn Lilju þannig að heim-
ilið var mjög mannmargt, sérstak-
lega á sumrin. Þaðan á ég margar
góðar minningar. Fyrstu sumrin
var ég aðallega að hugsa um heim-
ilið þar sem Lilja var útivinnandi í
kjötvinnslu VSP á Hvammstanga
en þegar ég var 16 ára fór ég að
vinna með henni þar og þá keyrði
Dúddi okkur til vinnu hvern morg-
un og sótti okkur að vinnudegi
loknum. Alltaf var hann líka til í að
Theodór Pálsson
✝ Theodór Páls-son fæddist 10.
nóvember 1926.
Hann lést 26. ágúst
2016.
Theodór var
jarðsunginn 31.
ágúst 2016.
keyra okkur á ung-
lingaböllin og þegar
við höfðum aldur
krakkarnir á fullorð-
insböllin enda fannst
honum svo sem ekk-
ert leiðinlegt að vera
á ferðinni. Seinna var
það svo Arnarvatns-
heiðin sem kallaði
þar sem Dúddi var
veiðivörður við Arn-
arvatn í fjölda sumra
og tilhlökkunin gríðarleg hjá hon-
um að komast á heiðina, þar var
hann í essinu sínu. Við hjónin gist-
um hjá honum þar þegar við vorum
í hestaferðum um heiðina, þá kom
ekki annað til greina en að við
svæfum inni hjá honum.
Það var líka alltaf mikil gleði á
Sveðjustöðum um göngur og réttir
og svolítið skrítið að kveðja Dúdda
daginn áður en menn leggja af
stað í göngurnar. Eitt er víst að
hann verður með þeim í anda og
syngur manna hæst.
Seinna fékk svo dóttir mín að
dvelja hjá Dúdda og Lilju í sveit-
inni og einnig hjá Bigga og Ólöfu
eftir að þau fluttu í Brúarholt.
Eftir að Lilja mín féll frá þá
höfum við Dúddi eytt töluverðum
tíma saman og það verður skrítið
að hafa þig ekki, elsku karlinn
minn, hjá okkur á jóladag líkt og
síðastliðin ár.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hvíl í friði.
Sigrún Kristín Þórðardóttir,
Höfðabakka.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar