Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 24
Helgarblað 25.–29. júní 2015
loksins á
Íslandi!
Verslun og Viðgerðir
Hjól aspret tur ︱ Dal sHr aun 13 ︱ 220 Hafnarfjörður ︱ s ími: 565 2292 ︱ w w w.Hjol aspret tur. isBíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Rín
Mósel
Basel
Nevada
Roma
T
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu,
léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna,
nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
OG DRAUMASÓFINN ÞÍNN ER KLÁR
GERÐ (90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 3000 tegundir)
ÞÚ VELUR
ÍSLENSKIR SÓFAR
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Áklæði
Torino
Heróíni komið
fyrir í hvolpum
Dýralæknir handtekinn vegna smyglhrings sem notaði dýr við iðju sína
S
pænska lögreglan hefur
handtekið dýralækni frá
Venesúela sem grunaður
er um að hafa notað hvolpa
til að smygla heróíni til
Bandaríkjanna. Lögreglan hand-
tók Andres Lopez Elorza á laugar-
daginn í bænum Santa Comba í
Galisíu á Spáni þar sem hann hefur
verið í felum undanfarinn mánuð.
Dómsmálayfirvöld á Spáni höfðu
þá kveðið á um að framselja ætti
Elorza til Bandaríkjanna.
„Þessi maður er dýralæknir,
en einnig meðlimur í smyglhring
sem flytur heróín frá Kólumbíu til
Bandaríkjanna. Hann kom heróín-
inu fyrir í pokum og kom þeim fyr-
ir inni í dýrunum. Hann sendi svo
dýrin til Bandaríkjanna eins og
gæludýr,“ segir lögreglan á Spáni.
Elorza, sem er tveggja barna fað-
ir, hefur verið á flótta frá árinu 2005,
en þá framkvæmdi kólumbíska
löreglan húsleit á skrifstofu hans
og heimili og fundu þrjú kíló af
heróíni sem hafði verið komið fyr-
ir inni í hvolpunum. Þegar ör þeirra
höfðu gróið átti að flytja hundana
til Bandaríkjanna og láta sem þeir
væru sýningarhundar. Hvolparnir
voru tíu og þrír þeirra drápust
vegna sýkingar eftir aðgerðina.
Í kjölfarið lagði Elorza á flótta og
bandarísk lögregluyfirvöld gerðu
þá kröfu að hann yrði handtek-
inn hvar sem hann væri í heim-
inum og framseldur. Hann hefur
ekkert samband haft við fjölskyldu
sína. Það var svo árið 2013 sem
hann var handtekinn í Lugo en var
sleppt á meðan ákvörðun var tekin
um hvort lögregluyfirvöld myndu
framselja hann. Undanfarinn
mánuð hefur hann ekki yfirgefið
íbúðina sem hann dvelur í og hef-
ur ekki reynt að flýja segja spænsk
lögregluyfirvöld. n
Með örin Hér sést
örið á hundinum og
pakkningar með
heróíni. Mynd EPA
24 Fréttir