Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 22
22 Fréttir Viðskipti Helgarblað 25.–29. júní 2015 Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net Fyrirtæki og húsfélög, gerum tilboð ykkur að kostnaðarlausu Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir íbúðir sem eru í túristaleigu Hefur þú þörf fyrir þrif Styrktu ljósveiðar Sjö aðilar hafa fengið samtals 10 milljónir króna úr frumkvöðla­ sjóði Íslandsbanka. 30 aðilar sóttu um styrkinn en sjóður­ inn styrkir frumkvöðlaverkefni í orku og sjávarútvegi. Úthlutanir úr sjóðnum nema allt að 20 milljónum árlega. Á meðal verkefna sem fengu styrk að þessu sinni er verkefnið Opti­ tog – Ljósveiðar. Þar er mark­ miðið að hanna og framleiða nýja kynslóð veiðarfæra sem stuðla að sjálfbærni togveiða, með minni umhverfisáhrifum. Fiskum er smalað með ljósi í stað víra, hlera og netveggja og getur svifið í fastri hæð yfir botni – án þess þá að snerta hann. „Þannig er stuðlað að verndun búsvæða fiskistofna og dregið verulega úr notkun óendurnýj­ anlegra orkuauðlinda (olíu) og losun koltvísýrings.“ Í slenski húsnæðismarkaðurinn er sagður hafa hækkað í virði um 7,71% á síðasti ári sem set­ ur Ísland í 9. sæti yfir „heitustu húsnæðismarkaði heims“. Þetta kemur fram í frétt breska vefmiðils­ ins Business Insider. Írland skipar efsta sæti listans en þar á húsnæðisverð að hafa hækk­ að um 17,57% undanfarið ár sem er í takt við viðsnúning sem er að eiga sér stað í efnahag landsins. Hong Kong er í öðru sæti með 14,37% hækkun og Eistland í því þriðja en þar hefur íbúðarhúsnæði hækkað um 9,59%. Svíþjóð er eina Norður­ landið auk Íslands sem er á listan­ um en Svíar skipa fjórða sætið með hækkun á 8,79%. Það þarf ekki að koma á óvart að Úkraína er það land sem að býr við mesta verðhjöðnun á íbúðar­ húsnæði undanfarið árið. Í höfuð­ borginni Kiev lækkaði verðið um 36,51% á einu ári. Ástandið er næst verst í Rússlandi þar sem íbúðar­ húsnæði lækkaði í verði um 9,61% á einu ári. n bjornth@dv.is Ísland er í níunda sæti Kemst á lista yfir „heitustu húsnæðismarkaði heims“ Íslenski fasteignamarkaðurinn Sagður vera í 9. sæti yfir þá fasteignamark- aði heimsins þar sem verð hefur hækkað mest á liðnu ári. Mynd Sigtryggur Ari Flestar kröfurnar fyrnast í haust Fyrrverandi hluthafar Landsbankans vilja skaðabætur frá Björgólfi Thor sem segir málið gróðabrall M eirihluti þeirra skaðabóta­ krafna sem fyrrverandi hluthafar í Landsbanka Íslands telja sig eiga á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni, fyrrverandi eiganda bankans, byrja að öllum líkindum að fyrnast næsta haust þegar tíu ár verða liðin síðan meint brot hófust. Eins og komið hefur fram ætlar hóp­ ur fyrrverandi hluthafa bankans að stefna Björgólfi til að fá viðurkennda skaðabótaskyldu vegna tjóns sem þeir hafi orðið fyrir „vegna rangra upplýsinga um eða ófullnægjandi mats á áhrifum Björgólfs í Lands­ bankanum“. „Þess vegna höfum við lagt áherslu á hversu mikilvægt það er að farið verði í þetta á næstu vikum. Við teljum að brotin hafi byrjað í október 2005 og þess vegna erum við að stefna málinu til að fá bótaskylduna viðurkennda áður en málin fyrnast. Það þýðir ekkert að bíða með það neitt lengur,“ segir Jóhannes Bjarni Björnsson, hæstaréttarlögmaður og talsmaður málsóknarfélagsins . undir yfirráðum Samson Samkvæmt minnisblaði sem lög­ mannsstofa Jóhannesar, Landslög, hefur sett saman fyrir hópinn, var reglum um fyrningu á skaðabóta­ kröfum utan samninga breytt með lögum árið 2008. Réttarstaða hlut­ hafanna sé þannig að tjónsatvik sem áttu sér stað fyrir 1. janúar það ár fyrnist á tíu árum en frá þeim degi á fjórum árum frá því að „tjónþoli fékk nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð ber á því“. „Það á því enginn þann kost að segja að hann ætli að bíða og sjá hvað kemur út úr málinu. Ef hann tekur þann kost, þá fyrnist krafan í höndunum á honum, og ef mál­ ið vinnst þá verður það væntanlega orðið of seint fyrir viðkomandi,“ segir Jóhannes. Í minnisblaðinu er fyrirhuguð málsókn, sem Kastljós greindi frá síðasta þriðjudag, rakin og helstu málsatvik. Rannsókn og gagnaöflun hópsins hafi leitt til þess að fram séu komin gögn sem gefi „sterklega til kynna að Björgólfur Thor hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar bank­ ans tengdar honum og einnig að hann hafi brotið gegn reglum um yfir tökuskyldu“, eins og segir í frétta­ tilkynningu hópsins. Samtök sparifjáreigenda, Vil­ hjálmur Bjarnason alþingismað­ ur, Stapi lífeyrissjóður og Ólafur Kristinsson lögmaður eru stofn­ endur málsóknarfélagsins. Hlut­ hafarnir fyrrverandi fullyrða að bankinn hafi verið undir fullum yf­ irráðum Samson ehf. frá árinu 2006 en eignarhaldsfélagið var þá í eigu Björgólfs Thors og Björgólfs Guð­ mundssonar, föður hans. „Er talið að við það hafi yfirtöku­ skylda stofnast og að Björgólfur Thor hafi sem stjórnarformaður Samson látið undir höfuð leggjast að bregð­ ast við yfirtökuskyldu sem á félaginu hvíldi og með þeirri vanrækslu bak­ að sér bótaábyrgð gagnvart hlut­ höfum,“ segir í tilkynningunni. gróðabrall lögmanna Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs Thors, sendi DV yfirlýsingu í gær þar sem ásökunum málsóknar­ félagsins er svarað. Meintar blekk­ ingar hans byggi á þeirri staðreynd að samstarfsmenn Björgólfs hafi átt lítinn hlut í félagi sem aftur hafi átt hlut í Landsbankanum. „Slíkt eignarhald var og er full­ komlega eðlilegt og allar upplýs­ ingar um það lágu fyrir á hverjum tíma hjá Landsbankanum og Fjár­ málaeftirlitinu.“ Í yfirlýsingunni var tekið fram að Björgólfur hafi ávallt verið þeirr­ ar skoðunar að eðlilegra sé að reka dómsmál í réttarsal, en ekki í fjöl­ miðlum. Málinu yrði því ekki svarað ítarlega á þeim vettvangi. Nokkrum klukkutímum síðar sendi Björgólfur fjölmiðlum fréttatilkynningu þar sem fullyrt er að fyrirhuguð málsókn gegn honum sé gróðabrall lögmanna sem hagnist óháð niðurstöðu máls­ ins. „Ætla má að þetta auglýsinga­ skrum lögmannanna brjóti í bága við 42. gr. siðareglna lögmanna. Ég hlýt að beina kvörtun vegna þessa til úrskurðarnefndar lögmanna,“ segir Björgólfur í tilkynningunni. „Nái lögmennirnir fram vilja sínum og leggi mál fyrir dóm bera félagar málsóknarfélagsins óskipta ábyrgð á málinu gagnvart mér, sam­ kvæmt samþykktum félagsins sjálfs. Verði mér dæmdur málskostnaður get ég því valið hvaða félagsmann sem er og krafið hann um allan kostnaðinn, ekki bara hlutdeild hans,“ segir Björgólfur. Hann bætir því við að ef ásakanir í hans garð leiði til tjóns fyrir hann geti félags­ menn málsóknarfélagsins þurft að bera ábyrgð á þeim kostnaði. n Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is „Verði mér dæmdur málskostnaður get ég því valið hvaða félags­ mann sem er og krafið hann um allan kostn­ aðinn, ekki bara hlutdeild hans. Krafinn um skaða- bætur Björgólfur Thor Björgólfsson segir lög- menn málsóknarfélags- ins hafa um margra ára skeið „velkst með málið, án þess að nokkuð mark- vert hafi komið fram“. Lögmaður hópsins Jóhannes Bjarni Björnsson, hæstaréttarlögmaður hjá Lands- lögum, hefur boðað kynningarfund um væntanlega hópmálsókn í dag, fimmtudag. Lauf forks eykur hlutafé Nýsköpunarfyrirtækið Lauf for­ ks hf. hefur lokið hlutafjáraukn­ ingu að fjárhæð 100 milljónir króna. Fjármagnið á meðal annars að nota til að auka mark­ aðssókn og vöruþróun, að því er vb.is greindi frá. Lauf forks býr til og selur reiðhjólademparagaffal sem fyrirtækið segir þann léttasta í heimi. Gaffallinn nýtur einkaleyfaverndar og þess er vænst að einkaleyfi verði kom­ ið í höfn á helstu mörkuðum á næstu mánuðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.