Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 32
32 Umræða Helgarblað 25.–29. júní 2015
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Mest lesið
á DV.is
1 Bam Margera „laminn í klessu“ á Secret Solstice
Tónlistarmaðurinn og Jack
assmeðlimurinn Bam
Margera þurfti að leita
aðhlynningar á bráða
móttöku Landspítal
ans eftir að hafa verið
„laminn í klessu“ eins og
viðmælandi DV orðaði það.
Lesið: 37.833
2 Íþróttaferillinn í hættu eftir slys á hoppudýnu:
„Stökktu bara“
Elísabet Sævarsdóttir,16
ára landsliðskona í
listhlaupi á skautum,
slasaðist á hoppudýnu
á Bíladögum á Akur
eyri í síðustu viku. Slysið
hefur þegar gert að engu
fyrirhugaða æfingaferð til Tékklands
og allur íþróttaferill hennar gæti verið
í hættu.
Lesið: 27.888
3 Fundu ónýtt fjórhjól á
Esjunni
Tveir fjallgöngumenn
sem gengu niður vestur
hlið Esjunnar á dögunum
rákust á óvenjulegt „rusl“
sem hafði verið skilið eftir í miðju
fjallinu.
Lesið: 25.382
4 Fimm piltar beittu Ragnheiði grófu kyn-
ferðisofbeldi
„Þú lendir ekki í svona löguðu og svo
bara heldur lífið áfram. Eftir að þú lendir
í ofbeldi af þessu tagi þá er eins og að
hugsanirnar um það hafi einhverja
ótrúlega lúmska leið til læðast aftan
að þér, jafnvel þó að mörg ár séu liðin,“
segir Ragnheiður Helga Hafsteinsdóttir
sem varð fyrir skelfilegu ofbeldi er hún
var 17 ára.
Lesið: 22.977
5 Íslenskir rokk-arar fordæma
árás á Bam Margera
Rokktónlistar og kvikmynda
gerðarmaðurinn Frosti Runólfsson er ekki
hrifinn af hegðun mannanna sem gengu
í skrokk á raunveruleikastjörnunni Bam
Margera á Secret Solstice um helgina.
Undir þetta tekur Krummi Björgvinsson,
sem er þekktastur fyrir að vera söngvari
rokkhljómsveitarinnar Mínus.
Lesið: 17.350
Andri Geir Arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur
Af Eyjunni
EES gerir afnám hafta erfitt
Þ
að eru ekki kröfuhafar sem
verða þeir erfiðustu þegar
kemur að afnámi hafta,
það hlutverk hefur ESB.
Nú þegar Ísland hefur gef
ið út yfirlýsingu um að afnám hafa
standi yfir er eðlilegt að álykta sem
svo að EES undanþágan sem Ísland
hefur haft frá hruni um frjálst fjár
magnsflæði sé á endastöð. ESB gef
ur ekki afslátt af fjórfrelsinu sem er hornsteinn ESB og EES samstarfs ins. Það hafa bæði Svisslendingar
og Bretar fengið að heyra og Ís
lendingar fá líklega sömu meðferð
reyni þeir að fá varanlega undan
þágu frá frjálsu fjármagnsflæði. En
hvað felst í frjálsu fjármagnsflæði.
Samkvæmt skilgreiningu ESB
þýðir frjálst fjármagnsflæði frelsi
einstaklingsins og fyrirtækja til að
ráðstafa fjármagni sínu jafnt innan
lands sem utan. Þetta þýðir t.d. að
einstaklingar eiga að geta opnað
bankareikninga erlendis, keypt
erlendar fasteignir, hlutabréf og
skuldabréf án leyfis eða takmark
ana frá stjórnvöldum. Tal íslenskra
ráðamanna og hagfræðinga um að
það sé nauðsynlegt að stjórna fjár
magnsflæði til og frá landinu eft
ir afnám til að tryggja stöðugleika,
stríðir gegn skilgreiningunni um
frjálst fjármagnsflæði. Það verður
því athyglis vert að sjá hvernig Ísland,
með minnsta gjaldmiðil heims, ætl
ar að stjórna krónunni með var
úðarreglum sem ekki skerða frelsi
einstaklingsins sem EES samn
ingurinn á að tryggja. Það verður
ekki bæði haldið og sleppt.
Erfitt er að sjá að Ísland geti upp
fyllt ákvæði EES með gjaldmiðil sem
á að stjórna en fær ekki um frjálst
höfuð strokið. Ef Ísland ætlar að
halda í krónuna um ókominn tíma
eru dagar Íslands innan EES líklega
taldir. Menn þurfa því að fara að
leita að nýrri utanríkisstefnu. n
„Það verður ekki
bæði haldið og
sleppt.
Myndin Slakað á í sólinni Það er ekki amalegt að geta slakað í guðsgrænni náttúrunni þegar sumarið sýnir á sér sparihliðarnar.
mynd SiGtryGGur Ari