Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 64
48 Lífsstíll
S
íðastliðinn vetur ákvað Anna
Þóra Björnsdóttir að þá væri
tímabært að söðla aðeins
um, finna sér áhugamál og
leggja rækt við eitthvað sem
væri ekki skylda og vani heldur fyrst
og fremst skemmtilegt og áhuga-
vert. Margar jafnöldrur hennar
höfðu mælt með þjóðbúningasaumi
eða golfi en Anna Þóra sýndi því lít-
inn áhuga og smellti sér þess í stað
á uppistandsnámskeið hjá Þorsteini
Guðmundssyni.
Hvatvísi, húmor og hvítvín
Anna Þóra hafði aldrei klárað eitt
einasta námskeið þó að hún hefði
prófað þau nokkur, til að mynda leik-
fimi- og dansnámskeið. Alltaf hafði
hún fengið leiða eftir tvö til þrjú
skipti. Síðastliðið haust datt henni í
hug að prófa uppistandsnámskeið
og hún sér aldeilis ekki eftir því. Að-
spurð hvað kom til að hún skráði sig
á námskeiðið segir hún án þess að
hika: „H-in þrjú! Hvatvísi, húmor og
hvítvín!“ Og svo heldur hún áfram:
„Það voru allir að fara á nám-
skeið, ég er víst bara á þeim aldri, en
þar sem ég hafði aldrei getað klárað
neitt slíkt hafði ég ekki fetað þá leið.
Aftur á móti var eitthvað sem heill-
aði mig þegar þessi uppistandshug-
mynd fæddist og í sannleika sagt þá
fannst mér ekki eins og ég væri að
fara neitt langt út fyrir kassann minn
þegar ég skráði mig til leiks.“
Algjörlega ný tilfinning
„Ég ætlaði mér ekkert meira með
þessu en svo hefur þetta bara undið
upp á sig. Ég er stríðin og með svart-
an húmor og á þessum vettvangi
þá leyfist mér það. Mér finnst það
æðislegt, því oft skil ég fólk eftir
með spurnarsvip og hef verið svona
sjokkerandi týpa. Þarna fæ ég algjöra
útrás fyrir slíkt og tengdi svo sterkt
inn í þetta. Mér fannst þetta heill-
andi heimur og fann fyrir algjörlega
nýrri tilfinningu!“
Þó svo að Önnu Þóru hafi fundist
hún vera á heimavelli og að áhuginn
hafi verið óbilandi þá fann hún fyrir
kvíða og stressi fyrir hvern tíma. Hún
segist hafa farið miklu lengra út fyr-
ir þægindarammann en hún hafði
haldið í fyrstu og að erfiðast hafi
henni fundist að standa með sjálfri
sér.
„Það kom mér á óvart hvað ég
fann fyrir miklum kvíða fyrir hvern
tíma og hvað þetta var erfiðara en
ég hélt. En ég fór afar stórt skref út
fyrir rammann. Ég held að það sé að-
allega viðkvæmni fyrir gagnrýni og
verst er ég við sjálfa mig. Mér hætt-
ir til að rakka mig niður og ég kveið
fyrir því að standa með sjálfri mér og
vera ég sjálf. Samt er þetta skemmti-
legasta námskeið sem ég hef farið
á og það eina sem ég hef klárað. Ég
hefði mætt með 40 stiga hita.“
Náðargáfa
Maður skyldi kannski halda að ann-
aðhvort sé fólk fyndið eða ekki og að
það sé erfitt að kenna öðrum að vera
húmoristi. Þess vegna spyr blaða-
maður hvað sé kennt á svona nám-
skeiði og hvort allir geti orðið góðir
uppistandarar.
„Ég hef klárlega vanmetið náðar-
gáfu mína. Því þetta er jú pínu náðar-
gáfa að hafa. Sumir eru með tón-
listargáfu og mín náðargáfa hefur
verið í felum og þarna fékk ég að
njóta hennar. Ég gerði mér ekki grein
fyrir því, því ég er ekki þessi dæmi-
gerða uppistandskona sem hefur
horft á uppistand allt sitt líf. 90 ára
föðursystir mín er mín fyrirmynd.
Hún er viðbjóðslega fyndin og hún
hefði átt að fara á svona námskeið.“
Hún heldur áfram og segist þrátt
fyrir náðargáfuna hafa lært ótrúlega
margt hjá Þorsteini Guðmundssyni.
Það eina sem hún vill að hann geri
betur er að halda framhaldsnám-
skeið sem allra fyrst því hana langar
á slíkt námskeið alveg strax.
„Ég er ekkert gömul“
„Ég mæli með þessu fyrir fólk sem er
með húmor því maður lærir að koma
honum frá sér. Tala ekki of hratt eða
óskýrt og vera ekki á mikilli hreyf-
ingu. Þetta eru svona atriði sem ég
skildi ekki fyrirfram. Sem dæmi þá
var ég alltaf að sparka í snúruna á
hljóðnemanum fyrsta kvöldið mitt á
námskeiðinu.“
Að lokum bætir Anna Þóra við að
margir jafnaldrar hennar beri fyrir
sig aldur þegar kemur að nýjungum
og að því að prófa eitthvað nýtt. Sjálf
hlær hún að slíkum rökum og orðar
þetta skemmtilega: „Ég er ekkert
gömul. Ég ætla að fá að vera í partíum
og segja brandara og djamma eins
lengi og ég mögulega get.“ n
Helgarblað 25.–29. júní 2015
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði (í húsi Innrammarans) • Sími 568 0400 • www.fabrik.is
tölvuviðgerðir
Fullt verð 12.250,-
FABRIK
TÖLVUÞJÓNUSTA
· Ástandsskoðun
· rykhreinsun
· vírushreinsun
· Óæskilegur hugbúnaður
fjarlægður
Sumartilboð
4.990,-
Hröð og góð þjónusta!
Full yfirferð
(Windows-tölvur)
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
„Ég hefði mætt
með 40 stiga hita“
n Anna Þóra fór á uppistandsnámskeið n Eina námskeiðið sem henni hefur tekist að ljúka„Ég hef klárlega
vanmetið náðar-
gáfu mína.
Uppistand heillandi Anna Þóra ákvað að gera eitthvað alveg nýtt og spennandi og skellti sér á uppistandsnámskeið.
„Kláraði með glans“
Þorsteinn segir Önnu beinskeytta og hreinskilna
Þ
orsteinn Guðmundsson verð-
ur með fleiri uppistandsnám-
skeið næsta vetur en dag-
setningarnar eru ekki alveg
komnar á hreint. Það er þegar fullt
á fyrsta námskeið og biðlisti á það
næsta. Þeir sem vilja kynna sér nám-
skeiðin nánar geta fundið upplýs-
ingar á heimasíðunni thorsteinn-
gudmundsson.is. Námskeiðin eru
opin öllum eldri en 18 ára og leggur
kennarinn mikið upp úr því að vinna
í jákvæðu og skapandi andrúmslofti
þar sem fólki líður vel en hann segir
það skilyrði fyrir því að fólk opni
sig og sýni sínar bestu hliðar. Nám-
skeiðið miðar að því að kynna fólki
uppistand og ýmiss konar stíl, finna
út hvernig það getur best komið sín-
um húmor á framfæri og svo enda
námskeiðin, sem hingað til hafa ver-
ið haldin í húsnæði Þjóðleikhússins,
á uppistandskvöldi þar sem þátttak-
endur sýna sínum nánustu að hverju
þeir hafa unnið á námskeiðinu.
Umsögn um Önnu Þóru frá
lærimeistara hennar Þorsteini
Guðmundssyni:
„Anna Þóra kom á fyrsta námskeiðið
sem ég hélt í fyrra og sló rækilega í
gegn í uppistandi eftir það. Ég man
eftir því að ég spurði alla í fyrsta tím-
anum eftir hverju þeir væru að sækj-
ast á námskeiðinu og hún horfði
beint í augun á mér sagði: Ég ætla
að gefa þessu séns, ef þetta verður
leiðinlegt þá hætti ég. En hún hætti
sem sagt ekki og kláraði með glans.
Ef ég ætti að lýsa hennar stíl og
húmor þá er hún mjög beinskeytt
og hreinskilin, nánast þannig að það
komi flatt upp á fólk. Hún hlífir sér
ekki og gerir mikið grín að sjálfri sér
en er um leið mjög frumleg í hugs-
un og skapandi þannig að úr verður
skemmtileg blanda. Hún hefur auð-
sjáanlega þróað sinn húmor í gegn-
um árin og ef mér skjátlast ekki þá
er hún dálítið stríðin í samskiptum.
Um leið er hún nokkuð viðkvæm og
ég hef aðeins fundið fyrir því að hún
kvíði fyrir því að koma fram en ég
veit að það eldist af henni á næstu
tuttugu, þrjátíu árum.“ n
Vinsæll Uppistandsnámskeiðin hans Þor-
steins eru svo vinsæl að það er þegar fullt á
fyrsta námskeiðið næsta haust og biðlisti á
það það næsta.