Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 58
42 Skrýtið Sakamál Helgarblað 25.–29. júní 2015
Bayou-raðmorðinginn
n Ronald Dominique var kynlegur kvistur n Hann var einnig stórtækur morðingi
R
onald Dominque fæddist 9.
janúar 1964. Stærstan hluta
bernsku sinnar bjó hann
í Thibodaux í Louisiana í
Bandaríkjunum. Thibodaux
er á milli New Orleans og Baton
Rouge og er ekki fjölmennari en svo
að flestir virðast vita einhvern deili á
öðrum.
Ronald gekk í gagnfræðaskóla
Thibodaux, var söngelskur og tók þátt
í kórstarfi skólans. Bekkjarfélagar hans
höfðu síðar á orði að flimtað hefði ver
ið með kynhneigð Ronalds í skólan
um, hann sagður samkynhneigður og
strítt á þeim forsendum. Á þeim tíma
viðurkenndi hann þó aldrei að hann
hneigðist til eigin kyns.
Tveir heimar
Þegar Ronald eltist virtist sem hann
lifði og hrærðist í tveimur heimum.
Annars vegar var um hjálpsaman
mann að ræða sem ætíð var reiðu
búinn til að hlaupa undir bagga hjá
nágrönnunum og hins vegar ná
unginn sem klæddist kvenmannsföt
um og nauðgaði, eins og sagt er, lög
um Patti LaBelle í nálægum klúbbi
samkynhneigðra karlmanna.
En hvorugur heimurinn tók Ron
ald opnum örmum og jafnvel í sam
félagi samkynhneigðra var hann illa
liðinn. Ronald glímdi lengstum við
fjárhagserfiðleika og þegar árunum
fjölgaði bjó hann hjá móður sinni
eða öðrum ættingjum. Heilsuleysi
gerði vart við sig, hann var lagður inn
á sjúkrahús vegna hjartameina og
studdist við staf á gönguferðum.
Það sem enginn vissi
Ronald var handtekinn 1. desember,
2006, og játaði í kjölfarið á sig morð
á 23 karlmönnum. Morðin hafði
hann framið á níu ára tímabili, það
fyrsta árið 1997, og losað sig við líkin
á sykurökrum, í skurðum og víkum.
Ástæða morðanna var sú að Ronald
vildi ekki lenda á bak við lás og slá.
Árið 1997 fannst líkið af 19 ára
manni, David Levron Mitchell,
skammt frá Hahnville. Hálfu ári síð
ar fundust líkamsleifar Garys Pierre,
20 ára, í St. Charlessókn og í júlí 1998
annað lík á svipuðum slóðum. Þar var
um að ræða Larry Ranson, 38 ára.
Næstu níu árin hlóðust líkin upp.
Um var að ræða karlmenn á aldrinum
19 ára til fertugs og slík voru líkindin
með morðunum að útilokað var að
um annað en raðmorð væri að ræða.
Í veröld fíknar og vændis
Rannsóknarteymi var komið á lagg
irnar í mars 2005. Það saman
stóð af lögreglu Louisianafylkis og
full trúum bandarísku alríkislög
reglunnar, FBI.
Það sem lá fyrir var að flestir
hinna 23 myrtu höfðu verið heimilis
lausir, lifað áhættusömu lífi í veröld
eiturlyfja og vændis. Fórnarlömbin
höfðu ýmist verið kæfð eða kyrkt og
sumum hafði verið nauðgað.
Það kom flestum sem þekktu til
Ronalds í opna skjöldu þegar hann
var handtekinn; Ronald var kannski
kynlegur kvistur að mati flestra,
en engum datt í hug að hann væri
morðingi.
Lögreglan hafði yfrið nóg af
læknisfræðilegum sönnunum, beið
ekki boðanna og kærði Ronald fyr
ir tvö morð og nauðganir; á Manu
el Reed, 19 ára, og Oliver Lebanks,
27 ára.
Einföld aðferð
Ronald hafði ekki verið lengi í hönd
um lögreglunnar þegar hann játaði.
Aðferð hans við morðin hafði ekki
verið flókin. Hann hafði lokkað karl
mennina með loforðum um greiðslu
fyrir kynlíf. Stundum sagði hann
mönnunum að þeir myndu fá greitt
fyrir að stunda kynlíf með eigin
konu hans. Þar sem Ronald var ekki
kvæntur sýndi hann þeim mynd af
einhverri huggulegri konu.
Ronald fór með mennina heim,
fékk leyfi til að binda þá, nauðgaði
þeim og myrti að lokum. Ronald
sagði lögreglunni að þeir karlmenn
sem ekki hugnaðist að vera bundn
ir hefðu fengið að fara frjálsir ferða
sinna. Það var einmitt einn þeirra
manna sem kom lögreglunni á spor
ið við rannsókn málsins.
Enginn engill
Ronald hafði oft komist í kast við lög
in. Í febrúar 2002 hafði hann verið
handtekinn eftir að hafa slegið konu í
Mardi Grasgöngu. Ronald sagði kon
una hafa slegið barn í göngunni og að
hann hefði viljað kenna henni lexíu.
Ronald valdi samfélagsþjónustu
frekar en réttarhöld og fangelsisvist.
Árið 2000 var hann ákærður fyrir
óspektir á almannafæri en slapp með
sekt. Í ágúst 1996 var hann handtek
inn eftir að hafa verið sakaður um
nauðgun. Málið féll um sjálft sig því
meint fórnarlamb fannst ekki þegar
að vitnaleiðslum kom.
Einnig hafði Ronald verið hand
tekinn fyrir ölvunarakstur og síma
áreiti. Þann 23. september, 2008, fékk
Ronald áttfaldan lífstíðardóm fyrir
morðin, en hann hafði játað sig sekan
til að sleppa við dauðadóm. n
Fórnarlömbin Ronald lokkaði 23 karlmenn í dauðann.
Kynlegur kvistur Fæstir sem þekktu
Ronald töldu hann færan um morð.
„Slík voru líkindin
með morðunum að
útilokað var að um annað
en raðmorð væri að ræða
Í vörslu lög-
reglunnar Ron-
ald Dominique
framdi morð sín á
níu ára tímabili.
Erum flutt á Strandgötu 24 Hafnarfirði
Svefnsófi, teg. Plútó Tokio rafm.lyftustólar Hornsófi teg. Indy.
Opið
virka daga 10 - 18
laugardaga 11 – 15
Teg. Mary 3 – 1 – 1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Strandgötu 24 - 220 Hafnarfjörður - Sími 565 4100 - www.nyform.iS
Opið virka daga 10 - 18, laugardaga 11 - 15
Erum flutt á Strandgötu 24 Hafnarfirði
Svefnsófi, teg. Plútó Tokio rafm.lyftustólar Hornsófi teg. Indy.
Opið
virka aga 10 - 18
laugardaga 11 – 15
Teg. Mary 3 – 1 – 1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is