Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 50
6 Sumarhátíðir - Kynningarblað Helgarblað 25.–29. júní 2015
Ómissandi markaðshelgi
Eitthvað fyrir alla í Bolungarvík fyrstu helgina í júlí
Á
rlega fjölskylduhátíðin
Markaðshelgin í Bolungarvík
fer fram fyrstu helgina í júlí
en viðburðurinn hefur fest
sig í sessi, vaxið og dafnað
undanfarin ár og er nú orðinn einn
af stærri menningarviðburðum sum
arsins þar um slóðir. Bolvíkingar eru
höfðingjar heim að sækja, söngelsk
ir með eindæmum og sanngjarnir í
viðskiptum og allt þetta endurspegl
ast á markaðshelginni glæsilegu þar
sem fjölmargt skemmtilegt verður í
boði.
Ber þar fyrst að nefna markaðs
torgið sem heita má hjarta helgar
innar. Skipuleggjendur segja að vel
á annað þúsund manns hafi mætt á
markaðstorgið síðastliðin ár og búast
þeir við að sá fjöldi eigi aðeins eftir
að aukast ef fram fer sem horfir.
Markaðshelgin er blanda af öfl
ugu markaðstorgi þar sem finna má
allt milli himins og jarðar á sölu
básum, yfirgripsmikilli tónlistar
og fjölskylduskemmtun auk fjöl
breyttrar skemmtunar og leiktækja
fyrir börn á öllum aldri. Þeir sem til
þekkja segja markaðshelgina í al
gjörum sérflokki þar sem bæði gestir
og bæjarbúar sem selja varning sinn
og leggja sitt lóð á vogarskálarnar fari
heim með bros á vör.
Bítlað með Birni
Herlegheitin hefjast fimmtudags
kvöldið 2. júlí í félagsheimilinu í
Bolungarvík því þá mun gítarleikar
inn þjóðþekkti, Björn Thoroddsen,
ásamt einvala liði vestfirsks tónlistar
fólks, flytja mörg af bestu lögum Bítl
anna. Miðaverð er 2.500 krónur og
verður húsið opnað klukkan 20.
Vegleg söngkeppni
Söngkeppni markaðshelgarinnar
hefur einnig fest sig í sessi en hún
verður nú haldin í þriðja sinn. For
keppni fer fram þriðjudaginn 30.
júní í félagsheimili Bolungarvíkur.
Keppt er í þremur flokkum, 8–11 ára,
12–14 ára og síðan 15 ára og eldri.
Úrslitakeppnin verður síðan haldin
með pomp og prakt laugardaginn
4. júlí klukkan 13 í félagsheimilinu.
Áhugasamir geta skráð sig í tölvu
pósti á tuuli@simnet.is fyrir klukkan
12 þann 29. júní næstkomandi með
því að gefa upp nafn, aldur, kenni
tölu, síma og lag. En keppnin er ekki
aðeins fyrir heimamenn. Keppendur
í öðrum landshlutum geta sent inn
myndband eða upptöku í forkeppn
ina, fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 30.
júní. Verðlaun eru frá Tónastöðinni.
Útivist og huggulegheit
Þegar stund gefst milli stríða í fjöl
breyttri dagskrá Bolvíkinga geta
gestir heimsótt sundlaug Bol
ungarvíkur sem í daglegu tali nefn
ist Musteri vatns og vellíðunar.
Sundlaugin er opin alla virka daga
frá 6.15–21.00 og frá 10.00–18.00
um helgar. Þar er að finna vatns
rennibraut, heita potta og er um
hverfið skjólgott og fjölskylduvænt.
Þá er einnig hægt að fara í ræktina
og taka hið svonefnda þrýstipróf
Sigmundar sem hefur heldur bet
ur slegið í gegn. Í næsta nágrenni
er sjóminjasafnið Ósvör, verbúð frá
árabátaöldinni og inni í bænum er
náttúrugripasafn Bolungarvíkur
sem þykir ótrúlega magnað safn
sem hýsir m.a. ísbjörn. Frá Bola
fjalli er svo glæsilegt útsýni yfir
hina mögnuðu náttúru Vestfjarða
en á Bolafjall liggur greiðfær akveg
ur. Í Bolungarvík eru matsölustaðir,
kaffihús, verslun og margt fleira.
Við bakka Hólsár geta síðan gestir
hátíðarinnar tjaldað en á tjaldsvæð
inu er salernis og snyrtiaðstaða til
fyrirmyndar. Gestir á tjaldsvæðinu
geta einnig nýtt salerni og snyrtingu
íþróttamiðstöðvarinnar á opnunar
tímum auk þess sem þar er þvotta
og þurrkaðstaða. Nútímamaðurinn
þarf heldur ekki að örvænta því á
tjaldsvæðinu er rafmagn og önnur
þjónusta.
Skothelt stuðball
Allar betri bæjarhátíðir þurfa síðan
ball og þar klikka ekki Bolvíkingar.
Fjölskyldudansleikur verður fyrr
um daginn þar sem Eurovision
söngdrottningin María Ólafs heldur
uppi fjörinu en um kvöldið 4. júlí
klukkan 23.00 verður Markaðsballið
svokallaða í félagsheimilinu þar sem
Húsið á sléttunni spilar á skotheldu
stuðballi með Maríu.
Nánari upplýsingar er að finna á
facebook.com/markadshelgin. n
Allt í blóma í
Bolungarvík
Markaðshelgin í
Bolungarvík fer fram
fyrstu helgina í júlí.
Þar verður mikið um
dýrðir alla helgina.
Mynd AðSend
Stanslaust stuð
Yngsta kynslóðin, sem
og þeir sem eldri eru,
finna eitthvað við sitt
hæfi í Bolungarvík 4.
júlí næstkomandi.
Mynd BjArki FriðBergSSon
Söngkeppni Söngkeppni markaðs-
helgarinnar verður nú haldin í þriðja sinn.
Mynd BjArki FriðBergSSon
„Bolvíkingar
eru höfðingjar
heim að sækja