Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 20
20 Fréttir Helgarblað 25.–29. júní 2015 „Þessi arður mun sjálfvirkt dreifast um allt hagkerfið“ n Segir óumdeilt að aflamark sé efnahagslega hagkvæmt n Þeir sem þróa veiðarnar njóti ávaxtanna A ð mínu mati ber að úthluta aflaheimildum í makríl var­ anlega – annað er í raun lög­ brot,“ segir Ragnar Árna­ son, prófessor við Háskóla Íslands, þegar hann er inntur álits á makrílfrumvarpinu svokallaða, sem nú er rifist um á Alþingi. Máli sínu til stuðnings bendir Ragnar á 9. grein núverandi löggjafar um stjórn fiskveiða. „Þar er tiltekið að úthluta beri varanlegum aflaheimild­ um samkvæmt sögulegri reynslu í öll­ um fiskistofnum þar sem heildarafla­ mark er sett. Þessi sögulega reynsla er jafnan til þriggja ára og ef horft er til þeirrar staðreyndar að makrílveið­ ar hafa staðið yfir frá árinu 2006 og í verulegum mæli síðan 2008–2009 þá sé ég ekki betur en að það jaðri við lög­ brot að fara ekki eftir þessu ákvæði og úthluta makrílkvóta varanlega,“ segir Ragnar. Að hans sögn er gott að hafa í huga að löggjöfin fór í gegnum ítarlega naflaskoðun í tíð síðustu ríkisstjórnar þar sem fjölmargar breytingar voru gerðar á lögum um stjórn fiskveiða en þessu ákvæði var ekki breytt. Efnahagslega hagkvæmt Í nýlegri grein í Fréttablaðinu gagn­ rýndi hagfræðingurinn Jón Steinsson harðlega að makrílfrumvarpið myndi festa í sessi það fyrirkomulag að út­ gerðirnar greiði ekki eðlilegt leigu­ gjald til þjóðarinnar af auðlindinni og komi í veg fyrir að hægt verði að taka upp annað kerfi, til dæmis uppboðs­ kerfi. „Ég skil eiginlega ekkert í Jóni að halda þessu fram. Það er óumdeilt meðal hagfræðinga að aflamarkskerfi sé efnahagslega hagkvæmt. Það er ríkjandi kerfi hjá vestrænum þjóðum og fleirum. 25 prósent af heildaraflan­ um á heimsvísu eru veidd innan þess kerfis og þróun er í þá átt að það hlut­ fall vaxi. Kerfið gefur af sér góða efna­ hagslega reynslu og það sem er ekki síður mikilvægt er að það viðheldur og styrkir fiskistofna,“ segir Ragnar og bendir á að afar erfitt sé að reka útgerð ef óvissa er fyrir hendi hver kvótinn verður. Því sé það hans skoðun að út­ hluta beri aflaheimildum til eins langs tíma og hægt er. „Fjárfestingar í greininni eru til langs tíma, sá sem fjárfestir í skipi ger­ ir það til 30 ára eða meira og í fisk­ vinnslu, svo ekki sé minnst á að mark­ aðsþróun, er fjárfesting til enn lengri tíma. Það að ætlast til þess að sjávar­ útvegsfyrirtæki séu í sífelldri óvissu um aflarétt er eins og að reyna að reka áliðnað þar sem álfyrirtækin hafa að­ eins framleiðslurétt til árs eða fárra ára í senn.“ „Þeir sem þróuðu veiðarnar í upphafi njóti þess“ Ragnar hefur ákveðnar skoðanir á því hver eigi að fá makrílkvótann í sinn hlut ef úthlutunin verður varanleg: „Það er efnahagslega hagkvæmast að þeir sem þróuðu veiðarnar í upphafi njóti þess,“ segir Ragnar. Ástæðan, að mati Ragnars, er meðal annars sú að þessir aðilar kunni best á veiðarnar og reki þær á hagkvæman hátt. Þá er efnahagslega afar mikilvægt að frum­ kvöðlar í sjávarútvegi sem og öðrum greinum njóti nægilegs ávinnings af því sem vel heppnast. Margar af þess­ um nýju veiðum eru þróaðar með ansi miklum tilkostnaði og verulega mikilli áhættu í upphafi. „Miklu færri, mögu­ lega engir, myndu fara í það að þróa nýjar fiskveiðar nema að sæmileg vissa væri fyrir hendi um að viðkom­ andi aðilar fengju nægilega háa hlut­ deild í þeim veiðum sem hagkvæmar reynast,“ segir Ragnar. Hann blæs á það að verið sé að hlunnfara íslenska þjóð með kvóta­ kerfinu og að sjávarútvegur sé ekki að greiða eðlilegt leigugjald fyrir réttinn til að nýta auðlindina. „Nánari athug­ anir sýna að þorri arðsins rennur beint til þjóðarinnar. Aflakvótakerfi sparar kostnað við fiskveiðar og hækkar verð­ mæti aflans sem landað er, þannig að nettó útflutningsframleiðsla úr sjávar­ útvegi verður hærri en áður. Innflutn­ ingurinn til sjávarútvegarins minnkar, það er að segja olía og annað og út­ flutningsverðmæti verður hærra. Það þýðir hærra gengi krónunnar að öðru óbreyttu. Hærra gengi krónunnar þýð­ ir að kaupmáttur ráðstöfunartekna verður þeim mun hærri. Helmingur þess sem íslensk heimili kaupa er inn­ flutningur, þannig að 1% hækkun á gengi þýðir einfaldlega 0,5% kjarabót fyrir fólkið í landinu. Þetta er gríðar­ lega stórt atriði,“ segir Ragnar og legg­ ur áherslu á orð sín. Skatttekjur og sjávarútvegsklasinn Ragnar segir að skatttekjurnar sem íslenska ríkið hefur af sjávarútvegin­ um séu einnig mikilvægt atriði. „Þá er ég ekki að tala um svokallað veiði­ gjald heldur tekjuskatta og óbeina skatta eins og virðisaukaskatt. Það er verulega há upphæð,“ segir Ragnar. Hann bendir einnig á að sjómenn fái í sinn hlut 30–40% af aflaverðmæti og fái því hærri tekjur ef verðmæti aflans er hærra. Einnig ætti annað starfsfólk í geiranum að njóta góðs af því ef góður arður er í greininni. „Enn eitt dæmið um ábatann sem þjóðin nýtur af núverandi kerfi er sjávarút­ vegsklasinn svokallaði. Það eru fyrir­ tæki sem framleiða vélbúnað, tæki og veiðarfæri eða frekari vinnslu á af­ urðunum, til dæmis lýsisframleiðsla. Marel er dæmi um slíkt fyrirtæki sem er að skila þjóðinni verulegum tekj­ um. Þá er mikilvægt að hafa í huga að ef að ekki er hagnaður í sjávarútvegi þá sveltur þessi klasi, hann fær ekki að þroskast,“ segir Ragnar. Aðalatriðið að hámarka arð af auðlindum sjávar Hann segir að til lengri tíma þýði góð afkoma í sjávarútveginum fjár­ festingar á hinum ýmsu sviðum ís­ lensks atvinnulífs. „Ekki fyrst og fremst í sjávarútvegi heldur hvar þar sem arðsemi er talin geta orðið góð. Það þýðir aukinn hagvöxt og tekju­ aukningu fyrir alla. Þetta er eins og aðrar framfarir í atvinnulífinu, skil­ virkni skiptir öllu. Það getur þýtt að einhver fyrirtæki og einstaklingar hafi mikinn arð framan af en til lengri tíma litið þá er þetta öllum til góðs. Ef að við trúum hinu gagnstæða þá verðum við að spóla aftur fyrir iðn­ byltinguna þar sem jafnvel hátekju­ fólk þess tíma hafði það verra en lágtekjufólk í dag,“ segir Ragnar og ítrekar að aðalatriðið sé að hámarka arðinn af þeim auðlindum sjávar sem við Íslendingar höfum aðgang að. „Þessi arður mun sjálfvirkt dreifast um allt hagkerfið, bæði til skamms og langs tíma þannig að allir njóti góðs af,“ segir Ragnar að lokum. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Telur þjóðina hlunnfarna Í grein Jóns Steinssonar hagfræðings „Grundvallarbreyting sem má ekki verða“ heldur Jón því fram að grundvallarbreyting verði á úthlutun veiðiheimilda í makríl þar sem ekkert ákvæði er í frumvarpinu um þjóðareign kvótans né heldur um það að úthlutun- in myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheim- ildum. Þar með festi frumvarpið í sessi að útgerðarmenn þurfi ekki að greiða eðlilegt leigugjald til þjóðarinnar fyrir afnot af sameigninni sem og að fordæmi myndist í þá veru að úthluta aflaheimild- um til lengri tíma en eins árs eins og nú er raunin. Jón óttast að auðveldara verði þar með að breyta úthlutun annarra tegunda á sama veg. Jón telur að verðmæti kvótans hafi aukist verulega eða um 50% á síðustu 10 árum og telur að arðurinn, sem hann áætlar að sé um 40–60 milljarðar á ári, eigi að renna til þjóðarinnar en geri það aðeins að litlu leyti. Þjóðin sé því hlunnfarin. Ragnar Árnason er þessu algjörlega ósammála og hefur ekki áhyggjur af því þó að fyrirtæki og einstaklingar hafi mikinn arð framan af því til lengri tíma litið græði samfé- lagið allt. Hann vill því ganga mun lengra en makrílfrumvarpið kveður á um og helst tryggja út- gerðarfélögunum sem þróuðu veiðarnar varanlegar aflaheimildir. Í rauninni telur hann það vera lögbrot að gera það ekki. Málið hefur verið til umræðu á Alþingi undanfarið en nýlega samþykkti sjávarútvegsráðherra reglugerð þar sem makrílkvóta var úthlutað til eins árs. Nýjustu fregnir eru þær að umræðum um frumvarpið hefur verið frestað í nokkra daga á meðan beðið er eftir umsögnum um frumvarpið. Bjartsýni ríkir meðal stjórnarliða um að frumvarpið nái fram að ganga. Ragnar Árnason, prófessor segir það mögulegt lögbrot að úthluta makrílkvóta ekki varanlega. Löndun Makrílveiðarnar eru umdeildar. Mynd SigtRygguR ARi JóhAnnSSon Hágæða sláttutæki Vetrarsól ehf. - Askalind 4 - 201 Kópavogi - Sími 564 1864 - www.vetrarsol.is Stiga Estate 5102 sláttutraktór 18 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 300 ltr. grashirðikassi Stiga Pro 50S sláttuvél með drifi 6 hestafla B&S mótor 70 ltr. grasirðikassi Stiga Estate Master 3084 sláttutraktór 13,5 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 240 ltr. grashirðikassi Stiga Collector 46S sláttuvél með drifi 4 hestafla B&S mótor 55 ltr grashirðikassi Hágæða sláttutæki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.