Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Qupperneq 8
Helgarblað 25.–29. júní 20158 Fréttir V A R M A D Æ L U R 19 dBA *Við ábyrgjumst lægsta eða sama verð og sambærileg varmadæla frá öðrum söluaðilum. Smiðjuvegur 70 - gulgata - 200 Kópavogur Gæði, þjónusta og gott verð. Hámarks orkusparnaður. sen dum frÍ tt Út Á l and * Huldufélag skoðar hótel og vatnslindir n Amel Group sýnir Hafnarfirði áhuga n Vita lítið um kanadíska fyrirtækið H araldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarð- ar, fundaði í byrjun júní með Salah Saleh, forstjóra og stjórnarformanni Amel Group, vegna áhuga kanadíska fjár- festingarfyrirtækisins á að reisa hótel og vatnsverksmiðju í bæn- um. Forstjóranum var þá boðið í skoðunarferð um Hafnarfjörð og heimsótti hann meðal annars vatns- lindir bæjarins í Kaldárbotnum. Bæjarstjórinn segir ekki liggja fyrir hverjir standa að baki fyrirtækinu enda séu viðræður ekki komnar á það stig að starfsmenn sveitarfé- lagsins hafi farið í að skoða það. „Þetta er ekki komið á það stig að við séum farin að kanna nákvæm- lega hverjir þetta eru enda er eins og stendur einungis um þreifingar af þeirra hálfu að ræða. En við höf- um, bæði fyrir og eftir fundinn, sent þeim ýmis gögn enda kom fram á fundinum að fyrirtækið er spennt fyrir ýmsum fjárfestingartækifærum í bænum,“ segir Haraldur við DV. Skráð í Ontario Amel Group er skráð í Ontario-fylki í miðausturhluta Kanada. Sam- kvæmt vefsíðu fyrirtækisins hefur það komið að ýmsum fjárfestingar- verkefnum, meðal annars á sviðum endurnýjanlegra orkugjafa, land- búnaðar og öryggis- og varnarmála, en þar er ekki gefið upp hverjir eigendur þess eru. Saleh og Moha- med El Hadidy, annar stjórnarmað- ur fyrirtækisins, eru einu starfs- menn þess samkvæmt vefsíðunni. Haraldur svarar aðspurður að fundurinn með forstjóra Amel Group hafi verið skipulagður af Ís- landsstofu. Þórður H. Hilmars- son, forstöðumaður fjárfestinga- sviðs Íslandsstofu, segir í samtali við DV að starfsmenn stofunnar séu bundnir þagnarskyldu varð- andi fjárfestingarverkefni sem séu komin jafn skammt á veg og áform Amel Group. Hann geti því ekki gef- ið neinar frekari upplýsingar um verk efnið. Vatnið orðið aukaatriði DV greindi í mars síðastliðnum frá áhuga forsvarsmanna Amel Group á að reisa átöppunarverksmiðju í Hafnarfirði og kaupa vatn úr dreifi- kerfi bæjarbúa. Þá kom fram að Dagur Jónsson, vatnsveitu- stjóri Hafnarfjarðar, hefur átt í tölvupóstsamskiptum við fyrirtækið og meðal annars sent því upplýs- ingar um efnasamsetn- ingu vatnsins úr Kaldár- botnum. Dagur sat fund Saleh og Haraldar í ráðhúsi Hafnarfjarð- ar þann 2. júní síðast- liðinn og segir forstjóra Amel Group hafa fullyrt að fyrirtækið hafi aðgang að „heilmiklum sjóðum“. „Þeim finnst það skipta miklu máli að hér eru tvær hafnir og stutt í alþjóðaflugvöll. Þeir telja Hafnar- fjörð vera svæði með ákveðna vaxtar möguleika og við vorum svo sem ekki að gera lítið úr því,“ segir Dagur og hlær. „Það sem kom á óvart var að þeir hafa ekki einungis áhuga á fjár- festingum í tengslum við vatnið heldur einnig í ferðamannaiðnað- inum. Þeir hafa kynnt sér spár um fjölgun ferðamanna hér og kveikt á því að þar séu sóknarfæri. Ég veit svo sem lítið um þetta fyrirtæki en forstjórinn talaði um að það gæti tekið stórar ákvarðanir með tiltölu- lega stuttum fyrirvara. Mér fannst þó á fundinum eins og vatnsátöpp- unarverksmiðjan væri orðin að einhvers konar aukaat- riði. Hann virt- ist aðallega vera að horfa á iðnaðar- svæðin hér og hafnirnar. Það þurfti til dæmis að margsegja forstjóranum hvað raforkan er ódýr hérna,“ segir Dagur. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Bæjarstjóri Hafnarfjarðar Haraldur L. Haraldsson. „Þeir telja Hafnarfjörð vera svæði með ákveðna vaxtarmöguleika og við vorum svo sem ekki að gera lítið úr því. Forstjórinn Salah Saleh, forstjóri kanadíska fjárfestingarfyrirtækisins Amel Group, fundaði með bæjarstjóra Hafnarfjarðar og nokkrum starfsmönnum bæjarins í byrjun júní. Nauðgari baðst afsökunar Hafði samband 23 árum eftir atburðinn R agnheiður Helga Hafsteins- dóttir, sem varð fyrir skelfilegu kynferðisofbeldi er hún var 17 ára af hendi fimm pilta sem hún taldi vera vini sína, fékk óvænta sendingu síðastliðið sunnudagskvöld. Hún fékk póst frá einum mannanna þar sem hann biður einlæglega afsök- unar á ofbeldinu sem átti sér stað fyrir 23 árum. Pressan greinir frá. „Hann baðst afsökunar oftar en einu sinni. Hann lýsti samviskubiti og vanlíð- an sem hefur nagað hann öll þess ár og að hann hafi viljað hafa samband en ekki getað eða þorað. Síðan óskaði hann mér alls hins besta í lífinu og sagði að þetta hefði alltaf plagað hann.“ Í fréttinni kemur fram að Ragn- heiður finni fyrir töluverðum létti við að fá þessa afsökunarbeiðni og henni þyki líka gott að fá staðfestingu ger- andans á því hvað þessi atburður var alvarlegur. n agustb@dv.is Pottur gleymdist á eldavél Tilkynnt var um eld í íbúð í Kambaseli á þriðjudagskvöld. Til- kynningin barst rétt eftir klukk- an átta. Viðbragðsaðilar mættu á vettvang og könnuðu málið. Í ljós kom að pottur hefði gleymst á eldavél. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að skemmdir hafi verið minniháttar. Þá voru skemmdarverk unnin á byggingu Háteigskóla sama kvöld. Þar voru rúður brotnar en ekki liggur fyrir hverjir voru að verki. Þrír aðilar voru handtekn- ir í Breiðholti aðfaranótt mið- vikudags fyrir þjófnað. Þeir gistu fangageymslur. Lést eftir slys Maðurinn sem lést á Landspít- alanum á föstudag, eftir slys við Þingvallavatn, hét Stefán Þ. Tryggvason. Maðurinn var við veiðar við vatnið þann 11. júní síðastliðinn en vegfarandi sá manninn fara ofan í vatnið en ekki koma upp aftur. Endurlífgun á vettvangi bar árangur en Stefán komst þó aldrei til meðvitundar. Hann var úrskurðaður látinn á Landspítalanum síðastliðinn föstudag, eftir að hafa verið í öndunarvél. Stefán var fæddur árið 1944 og var til heimilis að Espigerði 16 í Reykjavík. Hann var ókvæntur og barnlaus.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.