Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 30
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 30 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Helgarblað 25.–29. júní 2015 Afsakaðu æsinginn, Einar Örn Jónsson Já, stökktu bara Ábyrgðin er þín Hjólaþjóðin mikla Þóra Arnórsdóttir sá að sér eftir að hafa gagnrýnt RÚV fyrir að sýna ekki alla leiki á HM kvenna. – DV Elísabet Sævarsdóttir kemst ekki í æfingaferð vegna slyss á hoppudýnu á Akureyri. – DV Bam Margera tók upp ískalda kveðju í flugvél á leið til Bandaríkjanna. – DV V ið Íslendingar erum miklir byltingarsinnar. Á örfáum árum höfum við upplifað í það minnsta þrjár byltingar. Mest var að sjálfsögðu talað um bús áhaldabyltinguna, kannski var brjóstabyltingin sú sem flestir voru ánægðir með, en ein bylting hefur farið fremur hljótt. Það er hreyf- ingarbyltingin. Það eru allir að hreyfa sig og af fullri alvöru. Það er enginn maður með mönnum leng- ur nema hann gangi á fjöll og hjóli hring inn í kringum landið eða syndi í sjó sem er við frostmark. Ég man þá tíð þegar ég hjólaði hringinn í kringum fallegu eyjuna okkar. Það var árið 2005. Margir glottu vegna þessa framtaks og stöku menn efuðust um geðheilsu mína. Nú gerðist það í vikunni að þús- und manns skelltu sér á reiðhjól og lögðu af stað þennan sama hring. Við erum hætt að efast um geðheilsu þeirra sem leggja upp í slík ferða- lög. Metnaðurinn er líka gríðarleg- ur og sést það best í klæðaburði og fákunum sjálfum. Svo er sagt að end- orfín framleiðsla líkamans aukist mikið við hreyfingu. Sennilega veitir þjóðarsálinni ekki af umtalsverðu endorfíni þessa dagana. Hreyfingarbyltingin er miklu stærri en hinar tvær til samans og um margt mun uppbyggilegri. Hreyfing bætir heilsu. Bætt heilsa stuðlar að hamingju og lengra lífi. Við höfum allt að vinna og WOW- hjólreiðakeppnin er skemmtileg- ur mælikvarði á delluna sem get- ur stundum gripið okkur. Árið 2012 var hjólreiðakeppnin haldin í fyrsta skipti og voru keppendur þá innan við hundrað talsins. Árið eftir voru keppendur orðnir 200 og í fyrra ríf- lega tvöfaldaðist fjöldi þátttakenda og lögðu meira en 500 manns af stað frá Hörpu. Enn tvöfaldast fjöldi þátt- takenda og er nú ríflega þúsund tals- ins. Vel gert. Allt þetta fólk á það sameiginlegt að hafa stundað æfingar af kappi og með því eflt heilsu sína og þol. Sam- fara æfingunum kemur oftar en ekki heilbrigðara mataræði. Kannski að þetta sé leið okkar að því að vera ekki lengur ein af feitustu þjóðum Evrópu. Kannski verðum við kölluð hjólaþjóðin eftir nokkur ár. Ef þátt- takendafjöldi tvöfaldast á hverju ári þá liggur fyrir að árið 2023 mun öll þjóðin taka þátt. Það er að segja þeir sem kunna að hjóla og mögulega geta það af heilsufarsástæðum. n Málfrelsi Jakobs Bjarnars Jakob Bjarnar Grétarsson, blaða- maður á Vísi, er með málglaðari Facebook-mönnum og gerir reglulega allt vitlaust með um- mælum sínum. Af einhverjum ástæðum virð- ist þolinmæði hans þó takmörk- uð þegar kemur að gagnrýni á eigin skrif því nú hefur hann til- kynnt að hann hyggist hreinsa vel út af vinalista sínum vegna um- mæla í hans garð og segist ekki tjá sig sem blaðamaður heldur prívatpersónan Jakob Bjarnar. Að loknum kvenréttindadegi skrif- aði hann: „Jæja, þá er þessi svo- kallaði Kvennadagur að baki og Feðraveldið getur tekið til við það aftur að berja, nauðga og borga konum skítalaun. Því það er það sem karlmenn gera, ef ég er að skilja þetta rétt.“ Hafliði hættur hjá Framtakssjóði Íslands Á undanförnum misserum hef- ur Framtakssjóður Íslands losað um eignarhluti sína í mörgum stórum íslenskum fyrirtækjum sem sjóðurinn hafði fjárfest í. Þannig hefur sjóðurinn meðal annars selt nýlega hluti sína í upplýsingatækni- fyrirtækinu Advania og iðnfyrir- tækinu Promens. Í dag á Fram- takssjóður aðeins eignarhlut í Icelandic Group og Invent Farma. Samhliða því að dregið hefur verulega úr umsvifum sjóðsins hefur starfsmönnum fækkað en Hafliði Helgason, sem var upp- lýsingafulltrúi Framtakssjóðsins, hætti þar nýlega störfum. Hafliði var áður meðal annars aðstoðar- maður Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi bankastjóra Glitn- is, og ritstjóri Markaðarins, við- skiptakálfs Fréttablaðsins. Birgitta og forsætisráð- herrastóll Gríðarlega gott gengi Pírata í skoðanakönnunum hefur orðið til þess að ýmsir hafa farið að leika sér með þá hugmynd að næsti forsætisráðherra þjóðar- innar yrði Pírati. Á Útvarpi Sögu á dögunum var spurning dags- ins hvort hlustendur vildu sjá Birgittu Jónsdóttur sem næsta forsætisráðherra. Meirihluti hlustenda Útvarps Sögu, sem margir virðast fremur byltingar- sinnaðir, voru ekki ýkja hrifn- ir af hugmyndinni en 54 prósent þeirra vildu ekki sjá hana sem næsta forsætisráðherra. „Svo er sagt að endorfín fram- leiðsla líkamans auk- ist mikið við hreyfingu. Sennilega veitir þjóðarsálinni ekki af um- talsverðu endorfíni þessa dagana. Leiðari Eggert Skúlason eggert@dv.is F rumvarp sjávarútvegsráð- herra um kvótasetningu makr íls hefur verið mikið í umræðunni utan þings sem innan. Nú þegar hafa 51 þúsund manns skrifað undir áskorun á thjodareign.is um að fiskveiðiauð- lindinni verði ekki ráðstafað nema til eins árs fyrr en auðlindaákvæði er komið í stjórnarskrá að öðrum kosti verði málinu vísað í þjóðar- atkvæði. Frumvarp ráðherra hefur tekið breytingum frá því að hann lagði það fyrst fram en þá var gert ráð fyrir að kvótasetja makríl til sex ára með tilheyrandi framsali til kvótahafa fyrir tugi milljarða. Það hefði verið næstum ógerlegt að breyta þeirri ráðstöfun, hefði ný ríkisstjórn viljað gera breytingar þá hefði hún þurft að sitja að lágmarki í tvö kjörtímabil. Gríðarlega verðmætur Næst var málinu breytt í kvótasetn- ingu til þriggja ára og framsal að þeim tíma loknum og nú er lagt til að setja makrílinn inn í kvótakerf- ið til eins árs sem er óásættanlegt þar sem þá er makríllinn kominn inn fyrir gullna hlið kvótakerfisins og það mun reynast miklu erfiðara að ná honum þaðan aftur út og ráð- stafa honum með öðrum hætti en núverandi lokað kvótakerfi býður upp á. Makríllinn er gríðarlega verð- mætur stofn sem kom inn í lög- söguna fyrir nokkrum árum og því væri verið að úthluta gríðarlegum verðmætum tilteknum aðilum til frambúðar og loka kerfinu varan- lega og koma í veg fyrir þróun veiða bátaflotans við strendur landsins. Makríllinn er ólíkindatól og við vitum ekki hvort hann verður áfram í íslenskri lögsögu og ekki hefur enn verið samið um stofn- inn svo mjög óvarlegt er að kvóta- setja hann við þær aðstæður þar sem kvótahafar gætu farið fram á skaðabætur ef makrílbrestur verð- ur. Makríllinn gæti líka átt eftir að koma á fleiri veiðislóðir við strend- ur landsins og þá væri búið að loka kerfinu og þar með að koma í veg fyrir að bátafloti þeirra svæða gæti hafið frjálsar veiðar eins og hægt hefur verið. Vanda vinnubrögð Það er hægt að úthluta makríl með óbreyttum hætti næsta fiskveiðiár með lagastoð og mæta þannig áliti umboðsmanns Alþingis og lögsókn útgerða gagnvart ríkinu sem boðuð hefur verið vegna þess að ekki hafi verið hlutdeildarsett 2011. Ríkisstjórnin boðar endur- skoðun á lögum um stjórn fiskveiða næsta vetur og þá er eðlilegt að þá verði makríllinn tekinn inn í þá heildarendurskoðun en ekki fyrr. Alþingi Íslendinga verður að vanda vinnubrögð sín og afgreiða ekki svo stórt grundvallarmál sem ráðstöfun makríls er á hundavaði í lok sumarþings. Það verður að bíða haustsins og fá þá þinglega, vand- aða meðferð. n Makríll í þjóðareign! „Makríllinn er ólíkindatól og við vitum ekki hvort hann verður áfram í íslenskri lögsögu. Lilja Rafney Magnúsdóttir Kjallari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.