Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Qupperneq 6
6 Fréttir Helgarblað 13.–16. nóvember 2015
Bankastjórinn Birna Einarsdóttir segir
fjölbreytni í tekjustoðum bankans hafa
aukist. Mynd Sigtryggur Ari
Bankarnir högnuðust
um 66,5 milljarða
Íslandsbanki kynnti 17 milljarða afgang
H
agnaður Íslands banka á
fyrstu níu mánuðum ársins
nam 16,7 millj örðum króna
eftir skatta sam an borið við
18,2 millj arða á sama tíma bili 2014.
Þetta kom fram í afkomutilkynningu
sem bankinn sendi frá sér í gær en
samkvæmt henni voru tekjur af eins
skiptisliðum ekki jafn umfangsmikl
ar og á sama tíma í fyrra og afkoman í
ár endurspeglar því betur reglulegar
tekjur og rekstur fyrirtækisins.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís
landsbanka, sagði í tilkynningunni
ljóst að fjölbreytni í tekjustoðum
bankans hefði aukist. Hrein ar vaxta
tekj ur námu 21 millj arði, útlán til
viðskipta vina juk ust um 4% frá ára
mót um en innlán um 10%. Heild ar
eign ir bankans námu 1.004 milljörð
um í lok september.
Arion banki birti sitt níu mánaða
uppgjör eftir lokun markaða á
fimmtudag. Samkvæmt því nam
hagnaður bankans 25,4 milljörðum
en óreglulegir liðir léku þar stærra
hlutverk en í afkomu Íslandsbanka.
Skiptu þar mestu atburðir eins og
sala Arion á hlutum í fasteignafé
laginu Reitum, fjarskiptafyrirtækinu
Símanum og alþjóðlega drykkjar
framleiðandanum Refresco Gerber.
Landsbankinn var fyrstur stóru við
skiptabankanna þriggja til að kynna
níu mánaða uppgjör. Hagnaður
bankans á tímabilinu var 24,4 millj
arðar og skiluðu bankarnir þrír því
jákvæðri afkomu upp á samtals 66,5
milljarða. n haraldur@dv.is
Veðmál margra vogunar-
sjóða á Glitni misheppnaðist
n Fá 30,2% upp í kröfur sínar n Setið fastir með fé sitt á Íslandi á mjög hárri ávöxtunarkröfu
M
argir þeirra erlendu vog
unarsjóða sem hafa ver
ið í hópi stærstu kröfuhafa
slitabús Glitnis á umliðn
um árum munu hagnast
lítið sem ekkert á fjárfestingu sinni nú
þegar það hillir loksins undir að slita
búin fái undanþágu frá höftum til að
greiða út erlendar eignir til kröfuhafa.
Fram kemur í skýringarriti til
kröfuhafa Glitnis um fyrirhugað
nauðasamningsfrumvarp, sem DV
hefur undir höndum, að áætlaðar
heimtur almennra kröfuhafa verði
31,5% af nafnvirði. Þegar gert er hins
vegar ráð fyrir 8% ávöxtunarkröfu
á þær eignir sem verða í félaginu
eftir að búið er að greiða út ríflega
500 milljarða í erlendum gjaldeyri
til kröfuhafa við samþykkt nauða
samnings – samtals um 193 millj
arða – þá lækka áætlaðar heimtur í
30,2%, segir í skýringarriti Glitnis til
kröfuhafa.
Samkvæmt greiningu á viðskipt
um með kröfur á Glitni á tímabil
inu frá október 2008 til september
2013, sem ráðgjafafyrirtækið Moelis
& Company framkvæmdi að beiðni
slitastjórnar Glitnis, þá voru um 64%
fjárhæðar allra krafna í eigu lítils
hóps kröfuhafa sem höfðu eignast
þær nýlega á vegnu meðaltalsverði
sem nam 28% af nafnvirði. Frá þeim
tíma hefur gangverð krafna á Glitni
lítið breyst og verðið verið á bilinu
27% til 32% af nafnvirði.
Pattstaðan var dýrkeypt
Ljóst er því að þeir vogunarsjóð
ir sem hófu að kaupa upp mikið
magn krafna á Glitni eftir árið 2010
– en þá voru kröfurnar byrjaðar að
ganga kaupum og sölum nærri 30%
af nafnvirði – eru í fæstum tilfellum
að hagnast á þeirri fjárfestingu. Það
verður ennþá augljósara þegar horft
er til þess að allt frá árinu 2012 hefur
meirihluti eigna Glitnis verið laust
fé í erlendum gjaldeyri, að stærstum
hluta reiðufé á innlánsreikningum,
sem hefur verið ávaxtað á afar lág
um vöxtum. Á sama tíma hafa þeir
vogunarsjóðir sem eiga stærstan
hluta allra krafna á hendur Glitni
þurft að gera um 15% ávöxtun
arkröfu (IRR) – sem er algeng
ávöxtunarkrafa á slíkar áhættufjár
festingar – á fjárfestingu sína í slita
búinu. Sú pattstaða sem var í tengsl
um við skuldaskil föllnu bankanna,
þar sem höftin hafa hingað til kom
ið í veg fyrir útgreiðslur til erlendra
kröfuhafa, hefur því kostað kröfu
hafa háar fjárhæðir samtímis því að
hundruð milljarða hafa legið á nán
ast vaxtalausum erlendum innláns
reikningum um árabil.
Þetta er í samræmi við það sem
fram kom á upplýsingafundum sem
ráðgjafar stjórnvalda í haftamálum
áttu með fulltrúum stærstu kröf
uhafa slitabúanna þriggja síðastliðið
vor. Samkvæmt heimildum DV upp
lýsti um helmingur þeirra tíu vog
unarsjóða sem áttu fulltrúa á þeim
fundum að þeir þeir myndu bók
færa hjá sér lítinn sem engan hagn
að eða tap vegna fjárfestinga sinna í
kröfum á gömlu bankanna.
Þeir sem keyptu fyrst hagnast
Stærsti einstaki kröfuhafi Glitnis er
sem kunnugt er írska skúffufélagið
Burlington Loan Management sem
er í eigu bandaríska vogunarsjóðs
ins Davidson Kempner. Aðrir helstu
kröfuhafar Glitnis, eins og DV hef
ur áður greint frá, eru meðal annars
bandarísku vogunarsjóðirnir Solus
Alternative Asset Management, Sil
ver Point og Nomura Corporate
Funding Americas.
Í hópi stærstu kröfuhafa Glitn
is er ljóst að Burlington Loan
Management – umsvifamesti kröfu
hafi íslensku slitabúanna – hefur
ávaxtað fjárfestingu sína afar vel
en félagið eignaðist þorra krafna
sinna á hendur Glitni fljótlega eft
ir að þær fóru að ganga kaupum og
sölum eftir fall bankans. Fram kom
í fyrrnefndri greiningu Moelis &
Company að áætlað meðaltalsverð
krafna á tímabilinu frá október 2008
til nóvember 2009 hafi verið 14% af
nafnverði hjá þeim sem enn voru þá
í hópi kröfuhafa Glitnis. n
Óseldar eignir
færast til
Glitnis HoldCo
Hið nýja íslenska eignarhaldsfé
lag sem heldur utan um eignir
Glitnis eftir nauðasamning mun
heita Glitnir HoldCo og verða
stjórnarmenn félagsins þrír tals
ins.
Þetta kemur fram í nauða
samningsfrumvarpi Glitnis sem
var sent til kröfuhafa í síðustu
viku. Fyrir utan fjármögnun í
erlendri mynt til Íslandsbanka
munu eignir félagsins að stærst
um hluta samanstanda af ríflega
30 milljarða króna útlánasafni í
erlendum gjaldeyri. Samkvæmt
sjóðsstreymisáætlun Glitnis er
gert ráð fyrir því að búið verði að
umbreyta þeim eignum í reiðufé
á árinu 2017.
Greint var frá því í DV í lok
september að Steinunn Guð
bjartsdóttir, formaður slitastjórn
ar Glitnis, myndi ekki taka sæti
í stjórn eignaumsýslufélagsins,
líkt og áður hafði verið ráðgert.
Stjórnarmenn Glitnis HoldCo
verða þeir Mike Wheeler, Steen
Parsholt og Tom Grøndahl.
Við staðfestingu nauða
samnings mun Glitnir gefa út
skuldabréf, og nýja hluti í Glitni,
sem verður afhent kröfuhöf
um í hlutfalli við fjárhæð krafna
þeirra. Afborganir af skuldabréf
inu verða ársfjórðungslega og
fjárhæðin hverju sinni ræðst af
því hvernig til tekst að umbreyta
eignum í reiðufé.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
dýrar tafir Það hefur kostað kröfuhafa háar fjárhæðir að vera fastir með fjárfestingu sína í kröfum á Glitni um árabil.
Láttu þér líða vel
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
meccaspa.is
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Gildir f
yrir alla
r
tegund
ir af nu
ddi við
afhend
ingu þe
ssa
miða.
20%
afsláttu
r