Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Qupperneq 11
Missir þeirra var vissulega mikill en
Ingveldur stendur fast á því að það
yrðu mikil mistök og í raun rangt að
dæma Ástu seka fyrir það sem henni
er gefið að sök. Hún kveðst þó ekki
hafa rætt við Ástu síðan atvikið varð,
en vilji gjarnan gera það.
„Mig vantar eiginlega að ná sam-
bandi við hana. Mér finnst að það
hafi verið farið illa með hana. Mig
langar að sýna henni að ég sannar-
lega kenni henni ekki um þetta og
hef aldrei gert. Ég þarf að ná sam-
bandi við þessa stúlku. Ég vil bara
styrkja hana á einhvern hátt. Sýna
henni það að það er ekki ég sem er
að hugsa svona. Ég hef lýst því yfir
í sjónvarpinu þannig að þetta er
alltaf mín skoðun, allan tímann. Ég
ætla að vona að Guð gefi að þessir
blessuðu dómarar séu almennilegir
og sýkni hana af öllu, því ég vil að
þessi kona fái bara skaðabætur
fyrir hvers konar meðferð hún hef-
ur fengið.“
Mikið álag
Ingveldur kveðst muna ljóslifandi
eftir atburðum dagsins þegar eigin-
maður hennar lést. Hún tekur und-
ir með framburði Ástu og fjölmargra
vitna sem fyrir dómi lýstu því hversu
gríðarlegt álag hafi verið á Ástu og
öðrum starfsmönnum spítalans
þennan dag.
„Ég var þarna sjálf frá hálf þrjú til
hálf sjö þennan sama dag og ég sá
alveg hvað var að ske. Hvernig var
farið með fólkið sem var að vinna
þarna. Manneskjan [Ásta, innsk.
blm.] var kölluð hér og þar, allan
tímann sem ég var þarna. Hvernig á
fólk að geta einbeitt sér þegar búið
er að kalla í það úti um allan spítala?
Það getur ekki einbeitt sér að starf-
inu, það er útilokað. Manneskjan er
send um allt. Þetta náttúrlega geng-
ur ekki svona.“
Allt breytt daginn sem hann lést
Ein af mörgum ósvöruðum spurn-
ingum málsins varðar vaktarann
(e. monitor) sem var við rúm Guð-
mundar. Fram kom að einhverra
hluta vegna var slökkt á viðvör-
unarhljóðinu sem hefði átt að fara
í gang þegar súrefnismettun hans
féll niður fyrir ákveðin mörk sem
hefði þá gefið til kynna að hann
væri að kafna. Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
á vakt þetta kvöld, sem fyrst veitti
því athygli að Guðmundur væri í
hjartastoppi, lýsti því raunar yfir að
ekkert af þessu hefði gerst ef vaktar-
inn hefði ekki verið á „silent.“ Eins
og fram hefur komið í ítarlegri um-
fjöllun DV um málið þá var tækið
sent út til Þýskalands til rannsókna
sem engri niðurstöðu skilaði varð-
andi það hvenær slökkt var á hljóð-
inu því enginn kannaðist við að hafa
gert það.
Ingveldur rifjar upp að það hafi
ýmislegt breyst við uppsetningu á
stæðinu sem Guðmundur lá í frá því
daginn áður en hann lést.
„Hver slökkti á pípinu á tækinu er
svo annar handleggur, því það gerði
hún ekki. Það átti að vera kveikt á
hljóðinu í tækinu og það var ekki.
Það var búið að breyta allri upp-
setningu þegar ég kom þarna frá
deginum áður. Ég var þarna alltaf,
alla daga í nokkra klukkutíma á dag
og allir ósköp elskulegir en svo var
allt í einu búið að breyta öllu þarna.
Þetta stendur mér allt ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum ennþá. Það er
ekkert hægt að breyta því.“
Fékk bara símtal
Þó að Ingveldur taki fram að hún
kenni ekki nokkrum starfsmanni
spítalans um nokkurn hlut þá finnst
henni að það hefði mátt standa
öðruvísi að málum þegar ljóst var
að eiginmaður hennar væri látinn.
„Mér fannst líka þegar maður-
inn deyr, þá var ég nýkomin hérna
heim og var að fá mér að borða og
það var bara hringt í mig og sagt:
„Hann er dáinn.“ Það er bara hringt
og þetta sagt. Það eru prestar starf-
andi þarna á spítalanum, fleiri en
einn, og djáknar og allt þetta. Það
mátti alveg gera þetta öðruvísi. Ég
stóð hér eins og vingull heima hjá
mér og skildi þetta ekki. Það er of-
boðslega ljótt hvernig allt í kringum
þetta mál er ekki fallegt. Ég er ekki
að kenna nokkrum starfsmanni um
þetta en þarna var einhver pottur
brotinn. Og þessi stúlka á ekki skil-
ið að það sé farið svona með hana.“
Mistök geta gerst
Eins og fram kom í máli Ástu fyrir
dómi þá hefur málið reynst henni
afar þungbært. Hún lýsti því yfir að
hún væri búin að vera í helvíti síð-
ustu þrjú árin, hjónaband hennar
væri ónýtt og 12 ára barn hennar
hefði átt afar erfitt. Hana hafi oft
langað til að deyja.
Ingveldur kveðst vel skilja að
málið hafi reynst Ástu svo erfitt.
„Þetta er vel menntuð stúlka,
það er ekkert að henni. Hún er bara
dugleg í að gera hlutina eins og hún
er beðin um og það er fjöldi fólks
sem upplifir það sama og hún, að
einhver mistök geta skeð hjá þér
á vaktinni en það er ekki endilega
ein manneskja sem ber ábyrgð þar
á. Ég hef sjálf starfað árum saman í
heilbrigðisgeiranum þannig að ég
veit allt um þetta. Þetta er bara ljótt,
hræðilega ljótt.“ n
n Ingveldur vonar að Ásta Kristín Andrésdóttir verði sýknuð n Hefur aldrei kennt henni um að eiginmaður hennar lést
Skilaboð Ástu
til Ingveldar
og fjölskyldu
n Þakklát fyrir stuðninginn n Gefur mér mikið
„Mér þykir mjög sárt að
þau hafi þurft að ganga í
gegnum þetta með mér,“
segir Ásta Kristín Andr-
ésdóttir í samtali við DV
þar sem hún tjáir sig í
fyrsta skipti við fjölmiðla
síðan málið kom upp
og gafst tækifæri til að
koma á framfæri þakk-
læti sínu til Ingveldar og
fjölskyldu Guðmundar.
„Ég hef fullan skiln-
ing á því að þetta hafi
verið jafn erfitt fyrir þau
og þetta var fyrir mig,“
bætir hún við. Eins og
fram kemur í viðtalinu
við Ingveldi hér á síðunni
þá hafa þær ekki náð að ræða saman síðan Guðmundur lést og líf þeirra
beggja breyttist svo um munaði. Viðtölin við Ingveldi í fjölmiðlum á
upphafsstigum saksóknarinnar og hlýjan í hennar garð sem finna mátti
í orðum hennar þar fóru þó ekki fram hjá Ástu sem klökknar þegar hún
svarar spurningu blaðamanns um hvort það hafi hjálpað henni.
„Já, það gefur mér mikið að finna fyrir stuðningi fjölskyldunnar og
það hjálpaði mér ótrúlega mikið þegar hún [Ingveldur, innsk. blm.] kom
fram í fréttum fyrir jólin 2013.“
Vonar að Ásta verði sýknuð Ingveldur hefur allt frá upphafi lýst sig mótfallna því að
Ásta Kristín yrði sótt til saka vegna andláts eiginmanns hennar í október 2012. Hér er hún í
fréttum Stöðvar 2 í maí í fyrra.
„Mér finnst
að það hafi
verið farið illa
með hana.
Bíður dóms „Ég ætla að vona að Guð gefi að þessir blessuðu dómarar séu almennilegir og
sýkni hana af öllu,“ segir Ingveldur.
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Fréttir 11