Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Qupperneq 14
Helgarblað 13.–16. nóvember 201514 Fréttir Erlent
Hún er sjaldgæf, en banvæn
n Sníkjudýr sem étur heila drap ársgamlan dreng n Foreldrar vilja vitundarvakningu
Þ
rír hafa látist í vesturhluta
Queensland í Ástralíu af
völdum sníkjudýrs, amöbu,
sem étur heila á skömmum
tíma. Síðasta fórnarlamb
sníkjudýrsins var ársgamall dreng-
ur, Cash Keough, sem hafði verið
að leika sér með systkinum sínum
með vatnsslöngu. Amaban virðist
búa í vatni á strjálbýlum svæðum í
Ástralíu og segir örverufræðingur-
inn Robert Norton mikilvægt að
íbúar Ástralíu viti af tilvist hennar.
„Hún er sjaldgæf, en banvæn.“
Þrífst í hlýju vatni
Amaban, Naegleria Fowleri, þrífst
í fersku, hlýju vatni. Kjöraðstæður
eru um 25°C. Um 300 manns hafa
látist í heiminum vegna hennar,
þar af 25 í Ástralíu á undanförnum
árum. Hún finnur sér leið í gegn-
um nef fólks og veldur alvarlegum
bólgum og heilaskemmdum á stutt-
um tíma.
Móðir Cash Keough, Jodi
Keough, segist halda að litli dreng-
urinn hennar hafi smitast þegar
hann var ásamt systkinum sínum
að leika sér í garðinum á heitum
sumardegi. „Við leyfum þeim oft að
leika sér með garðslönguna á góð-
viðrisdögum, við erum ekki með
sundlaug og þetta var góð leið til
þess að kæla börnin niður í hitan-
um,“ sagði hún við ABC fréttastof-
una. „Við teljum að það hafi verið á
einum þessara daga, þegar ég leyfði
krökkunum mínum að leika sér,
sem að hann smitaðist.“
Nístandi sorg
Cash veiktist hratt og lést. Sorgin
var nístandi og ekki bætti úr skák að
heyra að tvö önnur börn hefðu lát-
ist af völdum sama sníkjudýrsins
á skömmum tíma. Börnin höfðu
búið í um 100 kílómetra fjarlægð frá
Keough-fjölskyldunni. „Við urðum
mjög hissa þegar við fréttum að tvö
önnur börn hefðu látist. Andlát son-
ar okkar hefur orðið til þess að málið
er tekið alvarlega af heilbrigðisyfir-
völdum í Queensland,“ segir hún.
Þau hjónin telja sig þurfa að segja
öðrum foreldrum söguna af Cash,
hvað það var sem kom fyrir hann
og láta vita af hættunni. „Mér finnst
það vera á mína ábyrgð, að gera það.
Ég tel að við verðum að gera allt
sem við getum til að koma í veg fyr-
ir að martröð okkar verði að martröð
annarra,“ segir hún. „Ég vil gefa fólki
upplýsingar. Ég held að það sé að-
eins tímaspursmál hvenær þetta
gerist aftur, að einhver missi einstak-
ling sem þeir elska. Tölfræðin seg-
ir okkur að allar líkur séu á að það
verði barn eða ungbarn,“ segir hún.
Fari varlega
Heilbrigðisyfirvöld hafa varað spít-
ala og læknamiðstöðvar við sníkju-
dýrinu og gefið upplýsingar um
hvernig hægt sé að meðhöndla
einstaklinga sem sýna sömu ein-
kenni og Cash Keough gerði. Til
að koma í veg fyrir að amaban lifi í
vatninu þarf að sía vatnið og hreinsa
það. Það dregur úr líkunum á því
að amaban þrífist, en útilokar það
þó ekki. Keough-fjölskyldan hefur
sett upp dýrt kerfi til að vernda aðra
fjölskyldumeðlimi og segja dætrum
sínum tveimur að þær megi alls
ekki fá vatn upp í nefið. n
ritstjorn@dv.is
„Við leyfum þeim
oft að leika sér
með garðslönguna á
góðviðrisdögum.
Nístandi sorg
Foreldrar Cash vilja
vara aðra foreldra við,
að þeir hreinsi og síi
vatn sem börn þeirra
leiki sér með og að
krakkarnir vari sig á því
að fá fersk vatn í nefið.
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
10 ára ábyrgð
Hjá okkur eru ofnar hitamál
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
Velkomin á nýja heimasíðu, www.isleifur.is
Dragháls 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
Fax 4 12 12 01