Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Page 18
Helgarblað 13.–16. nóvember 201518 Umræða
Á klassík eða módernismi
að ráða í miðborginni?
Boltinn tekinn upp frá grein Einars Kárasonar í Helgarblaði DV 29/10-2/11
Í
seinni tíð hefur verið minna um
að rithöfundar og listamenn
kveðji sér hljóðs um arkitektúr
og skipulag. Þetta er mjög miður
því ýmsir þeirra hafa þá menn-
ingarlegu yfirsýn sem marga sér-
fræðinga vantar. Halldór Laxness
kom þannig t.d. mjög sterkt inn
í umræðuna er til stóð að reisa
margra hæða Stjórnarráðshús á
Bernhöftstorfureitnum og láta hús
Bernhöfts bakara, Gimli og húsin
þar sem Humarhúsið er nú, víkja
fyrir byggingunni. Rök t.d. Ólafs Jó-
hannessonar forsætisráðherra, sem
ætlaði að lemja þetta í gegn, voru
að þetta væru „danskar fúaspýtur“
og að húsin minntu
á að fólk, sem var
upphaflega Dan-
ir, hefði lifað hér og
starfað. Um þetta
skrifaði Halldór
greinina „Brauð
Reykjavíkur“ þar
sem hann bend-
ir á að Bernhöft
hafi séð Reykvík-
ingum fyrir góðum
og hollum brauð-
um, og því engin
ástæða til að tala
af óvirðingu um
hann og hans hús.
Dæmi um
módernísk
áform hér áður
Annað dæmi um móderníska
byggingu sem til stóð að klessa nið-
ur í miðbænum, var er Seðlabank-
inn lét teikna hús fyrir sig að Frí-
kirkjuvegi 11 – og var þá gert ráð fyrir
að rífa Thor Jensen-húsið. Eftir að
mótmæli höfðu stöðvað þetta kom
bankinn með aðra tillögu; píramída
á hvolfi – sem Halldór kall-
aði „Monthús“ – í túnfæti
Arnarhóls. Þetta var líka
stöðvað vegna mótmæla
listamanna og ungs fólks.
Lenti bankinn á endanum
úti í horni á hólnum, og
situr þar með fýlusvip. Ég
tel að ef hinir módernísku
kassar Stjórnar ráðsins og
Seðlabankans hefðu rutt
hinum gömlu, fallegu hús-
um í burtu, hefði það verið
eitt mesta menningarslys í
Íslandssögunni.
Klassík eða módernismi
Millifyrirsögn tvö í grein
Einar Kárason er: „Klassík
eða módernismi“. Þar segir Ein-
ar: „Reyndar er sú umræða er for-
sætisráðherra hef sú umræða er
forsætisráðherra hefur tekið þátt í
á undanförnum árum um skipulag
og húsbyggingar stórmerkileg.
Hann aðhyllist svokallaða klassíska
byggð, á kostnað módernismans
eða funkisstílsins sem hefur verið
ríkjandi í húsagerð á Vesturlöndum
síðustu tæpa öld eða svo“. Ríkjandi,
já, en síðan um ca. 1970 úthrópað-
ur af mjög mörgum. Sérstaklega á
þetta við í gömlum, grónum mið-
borgum. Þar kemur líka til að ferða-
menn forðast margir nýtísku borg-
irnar, en sækja til þeirra gömlu. Því
er víða byggt í gömlum stílum í mið-
borgum eins og Sigmundur Dav-
íð hefur gert ítarlegar rannsókn-
ir á. Doktorsritgerðarvinna hans í
skipulagi í Oxford – sem núna bíð-
ur vegna stjórnmálaþátttöku hans –
fjallar um þetta, ef ég hef skilið rétt.
Í bók minni „Mótun framtíðar“
lýsi ég skoðunum mínum á klassískri
byggð, sem ég tel vera ákaflega hlýja
og fallega í miðbænum. Mjög hefur
verið sótt að hinu gróna og fallega
yfirbragði, t.d. af Seðlabankanum
og ríkisstjórnum, sbr. hér að framan.
Einnig má nefna að módernísk slys
hafa verið byggð, t.d. Morgunblaðs-
höllin og húsið milli Hótel Borgar og
Apóteksins. Bæði þessi hús eru með
óskemmtilegum „gardínuframhlið-
um“ úr áli og gleri. Ég mundi þó ekki
vilja láta setja gamaldags framhliðar
í þau, eins og einu sinni var gerð til-
laga um. Þessi ljótu hús hafa fengið
hefðarrétt í borgarmyndinni og eru,
að auki, víti til varnaðar.
Módernismi á frekar rétt
á sér utan Kvosarinnar
Einar er of hrifinn af módernisman-
um sem hluta af borgarmyndinni,
að mínu áliti. Þó tek ég undir það
álit hans að Hæstaréttarhúsið sé
nokkuð vel heppnað og í sæmilegu
lagi á þessum stað, einkum vegna
þess að það stendur innan um hús í
nokkrum kassastíl. Er hér einkum átt
við Arnarhvol, sem stendur hinum
megin við Lindargötuna. Í einkasam-
tali okkar Einars lentum við á önd-
verðum meiði um húsið á horni Lækj-
argötu og Austurstrætis, sem byggt
var frá grunni eftir að það brann. Ég
er sammála Einari að þarna er ver-
ið að endurbyggja fornminjar en
um leið var húsinu breytt verulega:
Fyrsta hæðin er ekki úr timbri, eins
og var, heldur steinsteypu, og ofan
á húsið var bætt hæð sem var ekki á
því. Þetta er í sjálfu sér ekki það æski-
legasta, en hjá mér ræður það meiru
að hinum gamla andblæ er haldið á
þessu horni og að með því að bæta
hæð ofan á verður andstæðan við
hina háu brunagafla á báðar hliðar
ekki eins slæm, og samt er húsið ekki
það hátt að skuggavarpið út á Austur-
stræti og Lækjartorg er ekki of mik-
ið. Svona skipulags- og yfir bragðsrök
eigi að ráða við allar nýbyggingar í
Kvosinni, hvort sem það er hér, á Al-
þingisreitnum, eða annars staðar, að
mínu áliti. Módernismi, úr takti við
hið gamla yfirbragð, er það víða áber-
andi að hið gamla, gróna yfirbragð
Kvosarinnar er í mikilli hættu. n
„Ég tel að ef hinir
módernísku
kassar Stjórnaráðsins og
Seðlabankans hefðu rutt
hinum gömlu, fallegu
húsum í burtu, hefði það
verið eitt mesta menn-
ingarslys í Íslandssögunni.
Umbreyting
Ungt fólk málaði
Torfuna sem ríkið
hafði látið drabb-
ast niður.
Hugmynd um Stjórnarráð á Bernhöftstorfu frá 1948 Halldór Laxness blandaði sér í umræðuna.
Módernísk bygging Hugmynd um Seðlabanka þar sem hús Thor Jenssen stendur nú.
Hugmynd um Seðlabanka í túnfæti Arnarhóls Tillaga sem vakti litla hrifningu.
Trausti Valsson
arkitekt og skipulagsfræðingur
Umræða
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki
Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is
→ Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við
fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.