Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 21
Umræða 21Helgarblað 13.–16. nóvember 2015
Myndin Flugslys á Reykjanesi Alvarlegt flugslys varð á Reykjanesi á fjórða tímanum á fimmtudagseftirmiðdag. Björgunarlið og landhelgisgæsla stóðu í ströngu fram eftir kvöldi. Tveir menn voru í lítilli flugvél sem
brotlenti í hrauninu. Frekari upplýsingar lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. mynd sigtRygguR aRi
Ég mun fyrirgefa
henni með bros á vör
Þær hafa
nú oft flúið
Það er svo einfalt að
það getur ekki klikkað
aðalsteinn Pétur Karlsson, Íslandsmeistari í póker. – dv.is Vilhjálmur H. Vilhjálmsson um Jóhönnu Sigurjónsdóttur lögmann. – dv.is dögg Hjaltalín bókaútgefandi um hænurnar sínar sem flúðu í vikunni. – dv.isRósa guðbjartsdóttir um súpumatseld. – DV
Seðlabankinn notar eina skotið á almenning!
Þ
að er algjörlega magnað að
fylgjast með fulltrúum Seðla-
bankans þessa dagana sem
hafa ítrekað hækkað stýri-
vexti hér þrátt fyrir að engar
forsendur séu fyrir slíku enda er verð-
bólgan um þessar mundir í sögulegu
lágmarki eða sem nemur 1,8%. Nú
hafa þeir riðið fram á völlinn og sagt
að ástæða stýrivaxtahækkana sé til að
draga úr ráðstöfunartekjum heimil-
anna og fjárfestingargetu fyrirtækj-
anna.
Það er greinilegt að fulltrúar Seðla-
bankans eru hér í bullandi pólitík og
það virðist sem þessir ágætu herra-
menn séu búnir að gleyma efnahags-
hruninu sem varð hér fyrir örfáum
árum vegna glæfragangs fjármála-
kerfisins og aðhaldsleysis íslenskra
eftirlitsaðila. Þeir virðast líka vera
búnir að gleyma að Austurvöllur log-
aði eðlilega stafnanna á milli vegna
þess að ráðstöfunartekjur heimil-
anna hrundu, þúsundir fjölskylda
voru bornar út af heimilum sínum,
þúsundir misstu atvinnuna og skuld-
ir íslenskra heimila stökkbreyttust á
einni nóttu. Öllu hruninu var varpað
á herðar íslensks almennings og þurfti
meðal annars íslenskur almenningur
að taka á sig upp undir 500 milljarða
vegna endurreisnar fjármálakerfisins.
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 500 milljörð-
um í glórulausum fjárfestingum sem
hefur leitt til þess að búið er að skerða
lífeyri verkafólks og iðnaðarmanna
meðal annars um 200 milljarða frá
hruni. Íslenskt hagkerfi botnfraus og
svo núna loksins þegar hagkerfið er
byrjað að þiðna þá stökkva snillingarn-
ir fram hjá Seðlabankanum og hækka
stýrivexti hér sem hafa það markmið
að skerða ráðstöfunartekjur íslenskr-
ar alþýðu. Það liggur algjörlega fyrir
að stýrivaxtahækkanir Seðlabankans
bitna langþyngst á þeim skuldsettustu
í okkar samfélagi enda nægir að nefna
að yfirdráttarlán íslenskra heimila um
þessar mundir nema upp undir 100
milljörðum að ótöldum öðrum lánum
sem íslensk heimili eru með.
Vonir slökktar
Það er sorglegt til þess að vita að loks-
ins þegar íslensk alþýða vonast til
þess að framundan séu bjartari tím-
ar þá skuli Seðlabankinn voga sér
að haga sér með þessum hætti eft-
ir þær skelfilegu hamfarir sem ís-
lenskur almenningur mátti þola í
kjölfar bankahrunsins. Nú kvarta
þessir snillingar hvað harðast yfir
því að 25.000 kr. hækkun á mánaðar-
launum verkafólks sé hér að ógna ís-
lenskum stöðugleika og því þurfi að
grípa til róttækra aðgerða til að draga
úr ráðstöfunartekjum heimilanna.
Þó að það skipti ekki máli í þessu
samhengi þá er rétt að nefna að þeir
passa vel upp á ráðstöfunartekjurnar
sínar í Seðlabankanum og nægir að
nefna aðalhagfræðing Seðlabankans
sem nýverið hefur farið fram á að fá
greitt fyrir setu í peningastefnunefnd
bankans sem nemur 100.000 kr. á
mánuði og það aftur í tímann en
væntanlega eru þessir fundir haldn-
ir á hefðbundnum vinnutíma aðal-
hagfræðingsins. Hræsnin frá þessum
mönnum er allsráðandi.
Seðlabankastjóri hefur sagt þegar
hann hefur talað um afnám gjald-
eyrishafta að hann sé einungis með
eitt skot í byssunni. Ég held að það sé
ágætis samlíking að segja að það skot
hafi Seðlabankinn ákveðið að nota á
íslenskan almenning! n
„Það er greinilegt
að fulltrúar Seðla-
bankans eru hér í bullandi
pólitík.
Vilhjálmur Birgisson
formaður verkalýðsfélags Akraness
Af Pressunni
Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002
Sama veRð í 7áR!
Linsur fyrir
öll tækifæri
2500 kr.