Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 26
Helgarblað 13.–16. nóvember 20152 Gæðakaffi - Kynningarblað
Kaffi beint frá býli
Kaffitár - Fjölbreytt flóra kaffihúsa og gesta
R
úmlega 85% af öllu kaffi sem
við erum með eru beint frá
býli, kemur beint frá bónda
sem við þekkjum og höfum
heimsótt. Það tryggir okkur
stöðugleika í gæðum og við vitum að
þeir nota ekki skordýraeitur og koma
vel fram við fólkið. Þetta er ávinning-
ur allra, þetta er bæði samfélagslega
jákvætt og svo erum við að tryggja
okkur toppgæði. Við suma bænd-
urna erum við búin að skipta í mörg
ár og þeir eru orðnir stór nöfn í kaffi-
ræktunarheiminum, sem þeir voru
ekki þegar við byrjuðum.“
Þetta segir Sólrún Björk Guð-
mundsdóttir, markaðs- og rekstrar-
stjóri Kaffitárs. Sumir kaffibændanna
sem Kaffitár skiptir við hafa unnið til
margra kaffiræktunarverðlauna og
eru orðnir stór nöfn í kaffiræktun-
arheiminum en voru það ekki áður.
Eins og flestir vita leggur Kaffitár
mikið upp úr gæðum en þar skiptir
gerð kaffidrykkjanna og framreiðsla
líka miklu máli auk hráefnisins:
„Við höfum frábært starfsfólk sem
þarf að fara í gegnum langt þjálf-
unarferli sem snýr að kaffigerð og
kaffiþekkingu. Þau þurfa að fara á
Espresso-námskeið 1 og 2 og síðan
erum við með manneskju í stöðu
fræðara sem fylgir eftir þjálfun.“
Kaffihús Kaffitárs eru í Banka-
stræti, Höfðatorgi, Þjóðminjasafni,
Kringlunni, Smáralind og Stapa-
braut í Reykjanesbæ, þar sem höfuð-
stöðvar fyrirtækisins eru. Við þetta
bætist Kruðerí Kaffitárs, sem er bak-
arí og kaffihús á Nýbýlavegi en þar
eru líka allar veitingar fyrir Kaffitár
gerðar, allt frá grunni og án auka-
efna.
Fjölbreytt flóra gesta
Nýbúið er að breyta Kaffitári í Banka-
stræti en staðnum var lokað í fjóra
daga á meðan breytingar stóðu yfir.
Staðurinn er afar glæsilegur eftir
breytingarnar. Gestahópur allra
staðanna er fjölbreyttur og á öllum
aldri:
„Allir staðirnir hafa sína föstu
kúnnahópa en það ber kannski
mest á fundum og fólki að vinna
á staðnum á kaffihúsinu í Höfða-
torgi; þar eru jafnvel tekin blaðavið-
töl. Bankastræti er með alla flóruna,
fastakúnna, ferðamenn og marga
fleiri.“ n
Kaffitár Jólastuð í Kringlunni.
Kaffitár Bankastræti Kaffitár Bankastræti eftir breytingu.