Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 29
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Kynningarblað - Gæðakaffi 5
F
lestir þekkja Tíu dropa við
Laugaveg sem huggulegt og
sjarmerandi kaffihús og telja
að það sé aðeins opið yfir
daginn. Færri vita að á kvöldin
breytast Tíu dropar í heillandi vínb
ar og djassklúbb þar sem í boði er lif
andi tónlist á hverju einasta kvöldi.
„Hér eru í boði sjö tegundir af
rauðvíni og sex tegundir á hvítvíni á
glasi, en ég held að slíkt úrval sé ekki
algengt í bænum. Auk þess erum við
með tvær tegundir á krana, Tuborg
Classic og síðan alltaf einhverja ís
lenska tegund, það er breytilegt
hverju sinni, til dæmis Leifur heppni
eða Úlfur,“ segir Fanney Gunnars
dóttir, rekstrarstjóri á Tíu dropum.
„Við erum með afar ólíkan kúnna
hóp á daginn og á kvöldin. Túrist
arnir koma meira á daginn en Ís
lendingarnir eru meira áberandi á
kvöldin. Við erum með sama mat
seðil í gangi frá því við opnum á
morgnana og til sex á kvöldin en
eftir þann tíma er matseðillinn ein
faldari. Meðal þess sem er vin
sælt á matseðli er franska kjötsúp
an sem margir koma til að fá sér í
hádeginu. Þá koma margir hingað í
„brunch“ en við afgreiðum hann til
klukkan sex alla daga. Þá er vinsælt
að koma hingað í morgunmat og fá
sér „brunch“, salöt, beyglur eða ristað
brauð.“
Staðurinn breytir síðan mikið um
svip á kvöldin en auk hins mikla létt
vínsúrval á glasi skapar lifandi tón
list staðnum mikla sérstöðu þar sem
hún er í boði hvert einasta kvöld.
Gestir kaupa gjarnan ostabakka með
rauðvíninu á kvöldin. Tónlistardag
skrá hverrar viku er sett inn á Face
booksíðu staðarins, https://www.
facebook.com/TiuDropar/?fref=ts, á
mánudögum og þar er gott að fylgj
ast með því sem í boði er.
„Hér er hvert sæti upptekið á
kvöldin og frábær stemning. Mér er
sagt að þetta sé vinsæll deitstaður
á kvöldin enda stemningin kósí og
rómantísk,“ segir Fanney.
Sætar kaffibaunir
Framúrskarandi hráefni og vel þjálf
að starfsfólk eru lykillinn að gæða
kaffi hjá Tíu dropum, segir Fanney:
„Kaffið hérna er ítalskt og heitir
Piazzo D‘oro og við kaupum þetta í
gegnum Ölgerðina. Ég vel baunirn
ar inn sjálf, Estremo heita þær og eru
frekar sætar. Ég vel þær einmitt vegna
þess að þær eru í sætari kantinum og
það kunna mínir gestir vel að meta.
Þær eru líka olíukenndar en ekki
þurrar. Það er líka lykill að góðu kaffi
á staðnum að allt starfsfólkið hefur
farið á kaffinámskeið. Alvörubaunir
og fólk með alvöru þjálfun eru lyk
illinn að gæðakaffi á staðnum. Við
höfum reyndar líkar fengið hrós fyrir
uppáhellta kaffið okkar sem er Cafe
Noir en það er ótakmörkuð áfylling
af því fyrir gestina.“ n
Tíu dropar við Laugaveg
Kaffihús á daginn – vínbar
og djassklúbbur á kvöldin