Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 32
Helgarblað 13.–16. nóvember 20158 Gæðakaffi - Kynningarblað
Kaffi ristað á staðnum
Te & Kaffi: Hver staður með sinn karakter
Á
dögunum breytti Te & Kaffi
um áherslur á kaffihúsinu
í Aðalstræti og kallar nú
staðinn Micro Roast en þó
áfram undir vörumerki Te &
Kaffi. Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kaffihúsa Te & Kaffi,
segir allt kaffi fyrir kaffihúsið ristað
þar í 5 kílóa brennsluofni.
„Við kaupum inn kaffi frá mis-
munandi kaffibúgörðum hvaðanæva
að úr heiminum. Stundum fáum við
lítið magn frá hverjum bónda fyrir
sig og getum því einungis selt það
í takmarkaðan tíma, eða þar til það
klárast. Þær tegundir eru allar seld-
ar í brúnu línunni okkar sem fæst
einungis á kaffihúsum og eru ristað-
ar í litla ofninum okkar á Aðalstræti.
Einnig erum við með uppáhellibar
þar sem við leyfum viðskiptavinum
að velja á milli kaffitegunda sem við
handhellum svo upp á með mismun-
andi aðferðum, svo sem v60, aero-
press, siphon eða chemex. Er óhætt
að segja að þetta hafi mælst afar vel
fyrir. Einnig erum við að prófa okk-
ur áfram með kaffi og te kokteila sem
verða til sölu hjá okkur bráðlega.“
„Í Aðalstræti starfrækjum við
einnig kaffiskólann og erum þar með
mjög góða aðstöðu til að þjálfa bæði
okkar starfsfólk og viðskiptavini en
við tökum á móti ýmsum áhugasöm-
um hópum. Hægt er að panta nám-
skeið hjá okkur á staðnum. Hver og
einn af okkar kaffiþjónum fer í gegn-
um mörg námskeið og síðan eru
endurmenntunarnámskeið haldin
reglulega og almennt gæðaeftirlit
á kaffihúsunum. Það tekur tíma að
læra að vera góður kaffibarþjónn og
í Aðalstrætinu er lögð mikil áhersla
á nákvæmni í lögun á kaffi þar sem
kaffimagn og vatnsmagn er mælt
fyrir hverja uppáhellingu.“
Þó að framleiddar séu háþróaðar
kaffivélar segir Halldór að yfirleitt sé
uppáhellingurinn bestur og það sýni
sig best í því gæðakaffi sem þarna er
framreitt, enda hráefnið fyrsta flokks.
Te & Kaffi rekur alls 12 kaffi-
hús auk þess sem fjölbreyttar kaffi-
tegundir frá fyrirtækinu eru seldar í
verslunum vítt og breitt um landið.
Fjögur af kaffihúsunum eru bóka-
kaffi í verslunum Eymundsson,
þrjú í Reykjavík og eitt á Akureyri.
Þá hefur Te & Kaffi nýlega opnað
endurbætt kaffihús á Stjörnutorgi í
Kringlunni. n