Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 38
Helgarblað 13.–16. nóvember 201530 Sport
Þ
etta er búið að vera ævin-
týri,“ segir Katrín Tanja þar
sem hún kemur sér fyrir á
ritstjórnarskrifstofu DV. Hún
var krýnd heimsmeistari í
júlí eftir hörkukeppni á heimsleik-
unum í Los Angeles – hraustasta
kona heims. Lífið hefur breyst tals-
vert, en hún segist þó reyna að halda
í rútínuna og hafa tilveruna í eins
föstum skorðum og hægt er. Þannig
líður henni best og þá fær hún næði
til að stunda það sem henni finnst
skemmtilegast – crossfit.
„Ég finn að þetta krefst meiri
athygli, ég þarf að sinna fleiri hlut-
um, svara tölvupósti og mæta hér og
þar, en mitt daglega líf er samt alveg
eins: Ég vakna, fer á æfingu, tek mér
hádegishlé og fer aftur á æfingu,“
segir hún um það hvort lífið hafi
breyst mikið eftir keppnina í sum-
ar. Eftir æfingar dagsins þarf hún
að huga að hvíld og því að styrkja
líkamann, það er utan hefðbund-
ins æfingatíma, með sjúkraþjálfun,
gufuböðum, nægum svefni og góðri
næringu.
„Mér finnst þess vegna enn jafn
gaman að vakna á morgnana og drífa
mig á æfingu. Ég er alltaf jafn spennt
að æfa og velti því stöðugt fyrir mér
hvernig ég geti bætt mig,“ segir hún.
„Þetta er það skemmtilegasta sem ég
geri. Ef ég mætti gera hvað sem er
þá væri það nákvæmlega þetta: að
mæta á æfingu,“ segir hún.
Hraustasta kona heims hugsar
því daglega um það hvernig hún geti
orðið betri, hvaða markmiðum hún
ætli sér að ná, hvernig hún ætli að
ná enn lengra í íþróttinni en það er
mikilvægast að halda í gleðina. „Það
er það sem gerir þetta svo skemmti-
legt – að fylgjast með árangrinum. Að
vita hvað ég get gert. Ég held líka að
þannig sé best að ná árangri og verða
bestur – með því að ýta sjálfum sér
alltaf lengra og lengra. Fara aðeins
lengra en allir hinir.“
Þetta hefur verið viðburðaríkt
Katrín Tanja Davíðsdóttir gekk inn í síðasta
dag heimsleikanna í crossfit í sumar og hugsaði með
sér: „Ég get unnið þetta mót,“ sem hún og gerði. Hún er
hraustasta kona heims, heimsmeistarinn okkar í cross-
fit, æfir sex tíma á dag og segist fá tækifæri til að gera
það sem henni finnst skemmtilegast alla daga. Hún
ræddi við Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur um lífið fyrir og
eftir heimsmeistaratitil, hvernig ósigurinn styrkti hana
og hvernig það skiptir öllu máli að taka þátt af gleði.
Fer aðeins lengra
en allir hinir
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is