Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 46
Helgarblað 13.–16. nóvember 201538 Menning
M
amúska – Sagan um mína
pólsku ömmu er bók
eftir Halldór Guðmunds-
son. Halldór, sem nú er
forstjóri Hörpu, var um
árabil einn áhrifamesti maður í ís-
lenskri bókaútgáfu. Hann er höf-
undur nokkurra bóka, þar á með-
al er bókin Skáldalíf sem fjallar um
Gunnar Gunnarsson og Þórberg
Þórðarson, og ævisaga Halldórs Lax-
ness, en fyrir hana hlaut hann Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin.
Halldór fór um árabil til Frank-
furt á bókasýningar og heimsótti í
leiðinni Mamúsku á veitingastað
hennar. Halldór skrifaði bók á þýsku
um hana sem kom út árið 2010 í
Þýskalandi en þessi íslenska útgáfa
er að ýmsu leyti ólík henni.
Mamúska fæddist í rússneska
keisaradæminu og ólst upp við fá-
tækt í sveit, flutti síðar til Vilníus og
svo til Frankfurt þar sem hún opnaði
veitingastað sem laðaði til sín gesti
og var rómaður fyrir gómsæta rétti.
Mamúska var gríðarlega sterkur og
sérstakur persónuleiki og birtist ljós-
lifandi á síðum bókarinnar. Með
þeim Halldóri tókst falleg og sérstök
vinátta sem höfundurinn lýsir einkar
eftirminnilega.
Stóð allt af sér
„Ég kynntist þessari konu fyrir 30
árum og fannst hún strax mjög heill-
andi,“ segir Halldór. „Eftir að ég var
búinn að skrifa tvær stórar bækur,
ævisögulegs eðlis, þá fór ég að velta
því fyrir mér hvort líf hennar væri
ekki efni í bók. Halldór Laxness,
Gunnar Gunnarsson og Þórbergur
Þórðarson, þeir voru mjög upptekn-
ir af öldinni sem þeir lifðu, spegluðu
sig í henni og spegluðu hana í verk-
um sínum. Þarna varð á vegi mín-
um kona sem hafði lifað þessa öld
án þess að hugleiða hana í löngum
textum eða reyna að móta hana eða
gera sjálfa sig að merkilegum hluta
af henni, hún vildi bara lifa hana af.
Þegar ég gerði mér grein fyrir upp-
runa hennar þá fór mig að langa til
Kona
sem var
á skjön
við allt
Halldór Guðmundsson skrifar um óvenjulega konu
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
1 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
2 EndurkomanÓlafur Jóhann Ólafsson
3 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
4 Víga-Anders og vinir hans Jonas Jonasson
5 Vín – Umhverfis jörðina á 110 flöskum
Steingrímur Sigurgeirsson
6 Vikkala SólKristín Margrét
Kristmannsdóttir
7 Litlar byltingarKristín Helga Gunnarsdóttir
8 MunaðarleysinginnSigmundur Ernir Rúnarsson
9 HundadagarEinar Már Guðmundsson
10 Matreiðslubókin mín og Mikka
Walt Disney
Metsölulisti
Eymundsson
4. nóv.–10. nóv. 2015
Arnaldur Indriðason
Í
sýningunni Og himinn-
inn kristallast, endur-
skapar danshöfund-
urinn Sigga Soffía
flugeldasýningu síðustu
menningarnætur. Það vakti
mikla athygli að danshöfund-
ur skyldi vera fenginn til að stýra
þessari glæsilegustu flugeldasýningu
ársins. Athyglin var verðskulduð því
sjónarspilið var einstakt.
Á menningarnótt urðu flugeldar
dansarar, en í sýningu Dansflokks-
ins urðu dansarar flugeldar. Sigga
Soffía beitir sömu vinnuaðferðum,
dansararnir miðluðu hita og sprengi-
krafti. Hugurinn opnaðist og hjart-
að og maginn og allur líkaminn bara.
Hughrifin voru mögnuð, en áhrifin
náðu líka út í líkamann. Kitl í fingrum
og tám, andkafir og dansandi fiðrildi
í maga.
Þessi sýning er það magnaðasta
sem undirrituð hefur séð hjá Ís-
lenska dansflokknum í langan tíma.
Allir þættir hennar, búningar, lýsing,
sviðsmynd, tónlist, tal og auðvitað
dansinn, smullu saman í óvenju fal-
legri og magnaðri heild. Sviðseldar
brunnu, en þeir voru næstum óþarfi
því hitinn sem dansararnir náðu að
miðla nægði alveg.
Búningum Hildar Yeoman verður
sérstaklega að hrósa. Hún skapaði
mismunandi tegundir flugelda – þeir
voru fjölbreyttir og fengu sína eins-
töku persónuleika með hjálp
efnafræðilegra útlistinga í
texta, sérstökum hreyfing-
um og lýsingu.
Dansarar dansflokks-
ins eru sterkir og fágaðir.
Þau hafa hvert og eitt sinn
persónulega stíl og styrk-
leika, sem kannski mundi vera til
vansa í verki sem krefðist meiri sam-
hæfingar. Í þessu tilfelli hæfði verkið
þeim fullkomlega. Allir dansararn-
ir fengu að njóta sín, en sérstaklega
vil ég nefna tvídans og sóló tívolí-
bombunnar nálægt lokum verksins.
Þvílík upplifun. n
Og hjörtun opnast
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Dans
Kafli 2: Og himinninn
kristallast
Danshöfundur: Sigga Soffía Níelsdóttir í
samvinnu við dansarana
Tónlist: Jóhann Jóhannsson o.fl.
Ljós: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Búningar: Hildur Yeoman
Sviðsmynd: Helgi Már Kristinsson
Dramtúrg: Alexander Roberts
Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir
Helgi Magnússon, Cameron Corbet, Halla
Þórðardóttir, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
1% með vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eystei n@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölu aður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is