Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 29.01.2016, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 29.01.2016, Qupperneq 6
hjá bænum um að sinna henni. Þjón- ustan, sem bærinn hyggst sinna, á þó ekki við fólk í hjólastólum eða þá sem hafa miklar sérþarfir. Akstursþjónusta við fatlað fólk hefur batnað talsvert því hún sætti mikilli gagnrýni áður en samstarfið hófst: „Ég held að það sé óumdeilt að þetta stóðst ekki væntingar,“ segir Haraldur. „Það var lagt upp með lægri kostnað og betri þjón- ustu. Verðið hefur hækkað um meira en 100 prósent en þjónustan hefur ekki batnað sem því nemur.“ Hagkvæmnin fór í vaskinn Bergur Þorri bendir á að sá sem keyrir fyrir Kópavog sé á gömlum bílum og ekki með sambærilegan öryggisbúnað og Strætó. Þjónust- an sé líka ósveigjanleg og það þurfi lengri en tveggja tíma fyrirvara til að bóka ferðir. „En markmiðið var að auka hagkvæmni þjónustunn- ar og það er ekki hægt að horfa framhjá því að það hefur farið al- gerlega í vaskinn. Menn ætluðu að gera út færri bíla fyrir jafn marga en þeir eru að gera út allt að helm- ingi fleiri bíla. Sannleikurinn er sár en sveitarfélögin undirbjuggu þetta ekki. Það er fyrst núna sem Strætó er farinn að ná utan um þjónustuna en á öðrum dögum eru bílstjórar allt upp í klukkutíma of seinir.“ Hluti af neyðarláni Kaup- þings fór til aflandsfélaga. „Framhaldið liggur hjá ríkissak- sóknara sem tekur endanlega ákvörðun um áfrýjun en við teljum að málið eigi að fara fyrir hæsta- rétt og höfum bent á fjölmörg atriði því til staðfestingar,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari um sýknudóminn yfir fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Hann segist telja að þeir verði sakfelldir í hæstarétti, fari málið þangað. „Við skulum spyrja að leikslokum, mál- ið hefur ekki lokið sinni vegferð í dómskerfinu.“ Hreiðar Már Sigurðs- son, fyrrverandi banka- s t jór i K aupþi ng s, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnar- formaður Kaupþings og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúx- emborg, voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfelld umboðssvik. Ólafur Þór segir að þetta sé alls ekki stærsta hrunmálið en það hefur þó vakið upp miklar til- finningar ekki síst vegna neyðarláns Kaupþings en margar sögur gengu um afdrif þess eftir hrunið. „Þetta er mál sem er stórt á alla Telur að bankastjórarnir fyrrverandi verði sakfelldir Eitt umtalaðasta hrunmálið Kaupþingsmennirnir voru ákærðir fyrir að misnota aðstöðu sína síðustu vikurnar fyrir hrun með hátt í 70 milljarða króna lánveiting- um til aflandsfélaga í eigu Ólafs Ólafssonar, Kevins Stanfords og fleiri vildarvið- skiptavina Kaupþings. Hluti neyð- arláns Kaupþings fór til þessara lán- veitinga. Reykvíkingar sleppa vel Reykjavík er eina sveitarfé- lagið þar sem ferðakostnaður vegna fatlaðra fór ekki úr böndunum eftir að Strætó bs tók við ferðaþjónustu fyrir fatl- aðra. Hjá Kópavogi, sem kaus að taka ekki þátt í byggðasam- laginu, stendur hann í stað. Bærinn hefur þó verið gagn- rýndur fyrir fremur slaka þjónustu á þessu sviði. Ferðaþjónusta fatlaðra Hafnarfjörður gefst upp kanta, gríðarlegar fjárhæðir voru í spilinu og mikið tjón,“ segir hann. Það sé þó samfélagsins en ekki hér- aðssaksóknara að meta hvaða mál vegi þyngst í umræðunni. Hann seg- ir málið gríðarlega umfangsmikið og mikil vinna á bak við það, en þau hjá embættinu séu alltaf undir það búin að dómar geti fallið á báða vegu. | þká „Þetta bara mistókst“ Frjálshyggjufélagið vill gera strandhögg hjá Pírötum Félagar í Frjálshyggjufélaginu veltu fyrir sér á dögunum hvernig þeir gætu nýtt sér glufur í kosningakerfi Pírata til að koma stefnu sinni að hjá stjórnmálahreyfingunni sem er orðin langstærsta aflið í íslenskum stjórnmálum. Á umræðuvef félagsins var skor- að á fólk að ganga til liðs við Pírata og kjósa þar efnahagsstefnu sem frjálshyggjufélaginu væri þókn- anleg. Bent var á að 3000 manns væru félagar í flokknum en einungis 200 virkir í að móta stefnuna, en flokkurinn nýtur stuðnings rúmlega 40 prósenta kjósenda, samkvæmt könnunum. Félagarnir töldu ekk- ert standa í vegi fyrir þessu strand- höggi frjálshyggjunnar nema Birg- itta Jónsdóttir þingflokksformaður. Hún segist hafa verið búin að ræða við sína nánustu um að hún ætlaði að hætta í stjórnmálum, ef sú stefna yrði ekki ofan á að stefna á stutt og snarpt kjörtímabil sem miðaði eink- um að því að koma nýrri stjórnar- skrá í gegn. Eftir að hafa rekið aug- un í þetta hætti hún snarlega við. | þká Kostnaður Hafnarfjarðar hækkaði um 100 milljónir milli ára. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Hafnarfjarðarbær ætlar að draga sig að stórum hluta úr ferðaþjón- ustu fatlaðra sem Strætó bs hefur með höndum. Kostnaður bæjarins jókst um rúmar 100 milljónir milli áranna 2014 og 2016, eftir að Strætó tók við akstrinum. Í Kópavogi kost- aði þessi þjónusta um 73 milljónir árið 2015 en Kópavogsbær er tals- vert stærri en Hafnarfjörður. Samstarfið stóðst ekki vænt- ingar „Strætó bs er að selja sína þjónustu mjög dýru verði og Hafnarfjörður er að kikna undan því. Það er bara spurning hversu lengi þeir halda út,“ segir Bergur Þorri Benjamíns- son, varaformaður Sjálfsbjargar. Og bærinn er þegar búinn að ákveða að draga sig út að hluta til. „Það er alveg ljóst að við hefðum aldrei farið út í þetta ef við hefð- um séð þetta fyr- ir,“ segir Haraldur Líndal, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, en unnið hefur verið að því í samstarfi við SSH, samtök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu, að endurskoða reksturinn og ná niður kostnaði, þó án þess að skerða þjónustuna. Árið 2014 var kostnaður við akst- ur með fatlaða í bænum um 83 millj- ónir en árið 2015 var hann 183 millj- ónir. Því hefur verið ákveðið að taka um fjörutíu prósent þjónustunnar til baka og semja við leigubílstjóra Haraldur Líndal, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Samningur við Strætó bs reyndist Hafnarfirði dýr. Mynd | Rut Sigurðardóttir 6 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015 ROMA svefnsófi Ljósgrátt, dökkgrátt, ljósbrúnt og rautt áklæði. Br: 200 D: 100 H: 50 cm. Svefnpláss: 120x200 cm. Fullt verð: 99.900 kr. Aðeins 79.920 kr. Afgreiðslutími Rvk. Mán. til fös. kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–16 Sunnudaga kl. 13–17 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafjörður NÝTTU TÆKIFÆRIÐ Komdu í Dorma ÚTSALAN í fullu fjöri ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR NATURE’S COMFORT heilsurúm Nature’s Comfort heilsudýna með Classic botni. Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 164.900 kr. 25% AFSLÁTTUR Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. Aðeins 123.675 kr. Opið a lla daga í janúa r 2.925 kr. Fibersæng & Fiberkoddi PURE COMFORT 7.425 kr. PURE COMFORT koddi Fullt verð: 3.900 kr. PURE COMFORT sæng Fullt verð: 9.900 kr. Koddi Sæng 25% AFSLÁTTUR Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður | www.dorma.is NÝTTU TÆKIFÆRIÐ Komdu í Dorma 2.925 kr. NATURE’S COMFORT heilsurúm Nature’s Comfort heilsudýna með Classic botni. 25% AFSLÁTTUR af öllum stærðum Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. Aðeins 123.675 kr. Verðdæmi 180 x 200 cm ÚTSALAN í fullu fjöri ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR Fibersæng & Fiberkoddi PURE COMFORT 7.425 kr. PURE COMFORT koddi Fullt verð: 3.900 kr. PURE COMFORT sæng Fullt verð: 9.900 kr. Koddi Sæng 25% AFSLÁTTUR Fullt verð: 164.900 kr. Opið all a daga í janúar Þú finnur útsölubæklinginn á dorma.is 20% AFSLÁTTUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.