Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 29.01.2016, Síða 22

Fréttatíminn - 29.01.2016, Síða 22
ÞORRI ER GENGINN Í GARÐ Gæðavörur á góðu verði fyrir þorrablót og aðrar vetrarveislur www.rekstrarland.isRekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. PI PA R\ TB W A ˙ S ÍA ˙ 1 5 0 0 8 5 Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100 Dúkar og servíetturSprittkertiKertastjakar Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sgt@frettatiminn.is Nefndin kemur ábúðarfull saman í Kassa- gerðinni sem hýsir skrifstofur Frétta- tímans og sest niður í sófa með svala og súkkulaðikex. Hvað gerir eiginlega mannanafnanefnd? „Það er svona fólk sem spjallar saman – ef maður á bróður ákveður það hvað hann má heita,“ segir Kolbeinn. „Já sumir mega heita eitthvað en aðrir mega bara ekki heita neitt,“ segir Eldar en virðist ekki alveg viss í sinni sök. Nefndin vindur sér þá að úrskurðum dagsins. Þrúður Kolbeinn segir þvert nei og aðspurður um ástæður þess svarar hann einfaldlega: „Af því bara.“ Hin tvö leyfa nafnið Þrúður enda finnst Eldari flott að heita sjaldgæf- um nöfnum. Prinsessa Um leið og Kolbeinn heyrir nafnið hrópar hann æstur: Já! – greinilegt að nafnið fær náð fyrir hans eyrum. Eldar tekur þó ekki í sama streng. „Það væri eiginlega svolítið fáránlegt að hitta stelpu út á götu og segja: Hæ, Prinsessa!“ Eldar veifar máli sínu til stuðnings. Rán skellir upp úr við tilhugs- unina um að vera skírð Prinsessa, og synjar því strax. Aðalvíkingur Nafnið Aðalvíkingur fær einróma neitun hjá nefndinni, enda er hún sammála um að nafnið sé of langt. Ljótur Þó nafnið Ljótur sé raunar leyft á Íslandi vill nefndin synja því. Í raun eru börnin í sjokki yfir að nafnið sé yfirleitt til, en Eldar segir fyrir sitt leyti að hann myndi aldrei skíra barnið sitt Ljótur. „Það er alltof ljótt að heita Ljótur,“ bætir Rán við, kímin á svip. Þau flissa þegar ég segi þeim að það sé leyft á Íslandi. „Ég heiti ekki Ljótur,“ upplýsir Kolbeinn. Hin tvö kinka kolli því til staðfestingar. Góði Rán og Kolbeinn vilja ekki leyfa nafnið. Eldar virðist sá frjálslyndasti í hópnum: „Mér finnst það flott,“ segir hann og greið- ir atkvæði með nafninu. Nefndin er þó sammála um að börn sem heiti Góði þurfi samt ekki alltaf að vera góð. Þyrnirós Nafnið Þyrnirós samþykkja börnin ein- róma. Rán segir því til stuðnings: Til dæm- is getur maður nefnt börnin sín það ef maður elskar rósir. Kolbeinn kinkar kolli: „Ég vil heita Þyrnirós,“ segir hann hugsi. Eftir fund nefndarinnar er hún ekki sann- færð um mikilvægi slíkra starfa. Kolbeini finnst að einhver ætti að ákveða hvaða nöfnum megi heita, en þau Rán og Eldar eru sammála um að það ætti að leyfa öll nöfn í heimi. Mannanafnanefnd barna Hvað má fólk heita? „Til dæmis getur maður nefnt börnin sín Þyrnirós ef maður elskar rósir.“ Mannanafnanefnd barna tekur starf sitt afar alvarlega. Frá vinstri: Eldar, 8 ára, Kolbeinn, 6 ára og Rán 7 ára. Mynd/Rut Fáar nefndir eru umdeildari hér á landi en sú sem hefur ákvörðunar­ vald yfir nöfnum fólks. Oft er sagt að ný kynslóð verði frjálslyndari og innan skamms verði engin þörf á Mannanafnanefnd. Til að komast að því skipaði Fréttatíminn Mannanafnanefnd barna og bað hana um álit á nokkrum nöfnum sem nefndin hefur synjað eða samþykkt. Líf okkar kakkalakka, snigla og þúsundfætlu 22 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015 Í búri í íbúð í Reykjavík búa í sátt og samlyndi tveir risasniglar, ein risaþúsundfætla og þrír kakkalakk- ar. Dýrin sex eiga það sameigin- legt að vera upprunnin í Afríku en búa nú í Norðurmýri. Öll borða þau plöntur og grænmeti, banana, fiskamat og af og til egg. Æstust eru þau þó öll í haframjöl. Þó allir myndu ekki sjá gildi þess að eiga snigla að gæludýrum er rétt að geta þess að sem dæmi þykir slím snigla einstaklega gott fyrir húðina. Þó þarf að gæta að því að þrífa húðina vel fyrir slíkar tilraun- ir, þar sem slímhúð þeirra er svo viðkvæm að þeir veikjast auðveld- lega af utanaðkomandi sýklum. Sniglarnir Nói og White Fang hafa þó aldrei veikst alvarlega, en Nói er heilsuveilli en bróðir hans og er oft slappur og matvandur. Kakkalakkarnir Sauron, Fróði og Sámur eru nefndir eftir persónum í Hringadróttinssögu og þykja ljúf gæludýr, enda þykir þeim gott að kúra af og til á hlýjum stöðum, eins og undir handarkrika og á maga eiganda síns. Þeir ku rólegir en eiga til að hvæsa, sérstaklega einn þeirra sem telur sig leiðtoga bræðranna. Sá er æstastur í að hvæsa og taka á rás. Sambúð þeirra sýnir glöggt að ólíkar tegundir geta vel búið sam- an og eru kakkalakkarnir jafnvel gjarnir á að hjúfra sig upp að snigl- unum, sé sá gállinn á þeim. Sambýlingarnir snæða saman kvöldverð. Sambýli óvenjulegra gæludýra

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.