Fréttatíminn - 29.01.2016, Side 28
Galdur
Ég er á Ströndum. Hér er kyrrð.
Kyrrð umhverfis sem hefur áhrif
á innri mann. Með tímanum sam-
stillist ytri heimur við hinn innri.
Skynjun verður skarpari, hugsanir
og jafnvel tilfinningar koma á lög-
legum hraða og vitundinni gefst
betra tóm til að ákvarða hvað gera
skuli við þær, ef þá nokkuð. Hvort
þær eiga að verða að orðum eða
ekki. Hvort orðin skuli sögð eða
hvort þau fái að líða hjá líkt og sjó-
fuglarnir sem fljúga hér fyrir utan
skjáinn. Tilfinningarnar eru aftur
á móti galdur. Þær magnast upp í
þessu umhverfi. Þegar þær fá tæki-
færi til að vera og blómstra.
Sagan segir að hér sé kraftur.
Fjölkynngi. Á Galdrasetrinu á
Hólmavík eru sögur af krafti.
Sögur af ljósi í ímyndaðri
dimmu. Sögur af viðleitni
og viðbrögðum þessarar
þjóðar við eigin hugs-
unum og tilfinningum.
Sögur af vanmætti í
mætti og manngerðum
kerfum sem telja sig
höndla „sannleik-
ann“ eins og hver
kynslóð túlkar
hann með því
umboði sem
við gefum
honum. Þrátt
fyrir „dimm-
una“ sem
óneitanlega
umlykur
sögurnar þá
upplifði ég fal-
legar tilfinningar
á setrinu. Lærði meira um Jón Guð-
mundsson lærða og aðra „ljósbera“
sem báru ljós í dimmunni. Mann-
eskjur sem drógu stafi. Mótuðu orð
og mögnuðu kenndir sem settu
innri dimmu í samhengi og siguðu
henni út.
Margt má læra af stöfum og orð-
um. Hvernig við túlkum birtingar-
form innri dimmunnar og bjargráð
okkar þjóðar við henni. Hvernig
við leitum og leitumst við að skilja.
Finnum reipi, haldreipi sem við
erum ásátt um að spegli sameigin-
leg gildi. Eitthvað sem við getum
í grunninn verið sammála um að
auðveldar tilvistina. Trú – sama
hvaða brögð standa að baki henn-
ar. Trú á birtuna. Innri birtuna.
Birtan grær í dimmunni. Í myrkr-
inu. Þrátt fyrir að umhverfi og sál
okkar eigi nú að heita „upplýst“
þá er dimman enn til og út frá tví-
hyggjunni má segja að hún verði
alltaf nauðsynleg. Verði alltaf að
vera til svo ljósið fái þrifist.
Innri upplýsing er dásam-
leg. Ljósið kviknar að innan
og lýsir út um glyrnur okkar
skepnanna. Kærleikurinn.
Ljósið er kveikt. Eldurinn log-
ar. Mögulegt er að hvetja hann
með ytri efnum en fegurstur
er hann sjálfsprottinn og þá
þurfum við enga stafi eða
orð. Hvorki af nútíma lyf-
seðlum né galdrablöðum.
Hann einfaldlega logar
í tóminu fyrir tilstilli
andans.
Í birtu galdursins bjarma þú sérð
sem brennandi í hjartanu situr.
Þar lýsandi engill ljóss er á ferð
sem lifandi kærleik þér flytur. (hu)
Maður faðmar ekki
fjölskylduna í gegnum Skype Utan hringsins Héðinn Unnsteinsson
Nánari upplýsingar á benni.is. Verið velkomin í reynsluakstur.
Opið alla virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Reykjavík
Tangarhöfða 8
Sími: 590 2000
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
SPARK LT
1.990.000 KR.
AÐEINS 10% ÚTBORGUN: 199.000 KR.
Bílabúð Benna áskilur sér rétt til breytinga á verði og búnaði án fyrirvara. Bíll á m
ynd Chevrolet Spark LT.
Spark hefur verið mest seldi bíll síðustu ára í sínum
stærðarflokki á Íslandi. Spark er með flottan staðalbúnað
og jafnframt á ótrúlega hagstæðu verði. Þess vegna
hvetjum við þig til að gera samanburð á verði og búnaði bíla
í sama flokki og fá meira fyrir peninginn.
Bílaöryggisstofnun Bandaríkjanna kynnti nýlega niður-
stöður sínar úr árekstraprófun smábíla fyrir árið 2015.
Spark stóðst hámarks öryggiskröfur stofnunarinnar
„Top Safety Pick“ annað árið í röð.
VINSÆLASTUR Á ÍSLANDI!
SAMANBURÐURINN SEGIR ALLT!
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Í sumar verða tímamót í mínu
lífi því þá hef ég verið jafn
lengi blindur og sjáandi,“ segir
Bergvin Oddsson sem hefur
verið blindur frá því að hann
var fimmtán ára gamall. Bergvin
fékk herpes vírus í vinstra augað
þegar hann var þrettán ára og
missti þá sjón á öðru auganu.
Tveimur árum síðar fékk hann
vírusinn í hægra augað.
„Ég var sendur með flugi til
London þar sem ég var lagður
inn á spítala sem sérhæfir sig
í augnlækningum og fékk lyf
beint í æð sem átti að drepa
sýkinguna en það virkaði ekki.
Á leiðinni til London gekk ég um
fríhöfnina og skoðað mig um
eins og vanalega en á heimleið-
inni gekk ég blindur þar í gegn
og hef ekkert séð síðan. Ég bjóst
aldrei við því að ég væri að sjá
Ísland í síðasta sinn.“
„Ég var 15 ára fótboltastrákur
í Vestmannaeyjum sem ætlaði
að spila fótbolta og fara á sjóinn
en það var ekki lengur mögu-
legt. Ég gerði mér ekki fyllilega
grein fyrir því hvað var að
gerast og bjóst hálfpartinn við
því að fá sjónina aftur. Heima
var öll áhersla lögð á að hjálpa
mér í gegnum 10. bekk en þessi
vetur tók mikið á fjölskylduna.
Erfiðast af öllu var að missa
vinina. Þeir hættu að koma og
ég held að það hafi verið vegna
hræðslu og óöryggis, frekar en
að þeim hafi fundist glatað að
eiga blindan vin. Að takast á við
félagslega einangrun var miklu
erfiðara en að takast á við skól-
ann og íþróttirnar.“
„Ég var reiður í fyrstu en
þegar reiðin rann af mér varð ég
ákveðinn í að láta blinduna ekki
stjórna lífi mínu. Mamma vildi
hjálpa mér við allt en ég vildi
læra að gera allt upp á nýtt. Allt
í einu snerist allt um að finna
nýjar leiðir. Ég flutti að heiman
sextán ára og er óendanlega
þakklátur foreldrum mínum
fyrir að hafa treyst mér til þess
að hugsa um mig sjálfur. Ég fór í
MH og fékk herbergi hjá Blindra-
félaginu. Kynntist svo konunni
minni á balli. Við fluttum til
Akureyrar og seinna lærði ég
stjórnmálafræði.“
„Þó maður sé blindur þá getur
maður alveg ferðast og upplifað
hluti, ég upplifi þá bara á annan
hátt. Við hjónin ferðumst mikið
og París er uppáhaldsborgin
okkar. En það er tvennt sem mig
langar til að sjá. Ég væri mikið
til í að fá að fljúga yfir höfuð-
borgarsvæðið og sjá hvernig það
hefur breyst á fimmtán árum.
Svo myndi ég gefa afskaplega
mikið fyrir að fá að sjá börnin
mín, þó ekki væri nema í tvær
mínútur.“
Lífsreynslan Bergvin Oddsson
Varð blindur
á einni viku
Bergvin Oddsson nýtur þess
að ferðast þótt blindur sé.
Mynd | Hari
28 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015