Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 29.01.2016, Page 36

Fréttatíminn - 29.01.2016, Page 36
Heilir og sælir, kæru foreldrar og til hamingju með hugmyndaríku og skapstóru stúlkuna ykkar. Ég fullvissa ykkur strax um að hún sýnir ekki sem við köllum frekju eða yfirgang viljandi – þvert á móti. Hún ræður einfaldlega ekki við að stöðva sig sjálf þegar skap­ ofsinn tekur yfirhöndina. Skapofsaköst og heilaþroski Börn hafa ekki þann heilaþroska sem þarf til að stöðva sig þegar þau missa stjórn á skapi sínu í kjölfar sterkra, erfiðra tilfinn­ inga og átaka sem hafa náðst að spinnast upp. Þau verða stjórnlaus og allir hlutaðeigandi ráðþrota þegar þangað er komið. En ekkert barn vill vera í þessum vanmætti stjórnleysis sem það hvorki skilur né ræður við. Þau vilja að sér takist vel til og fái hrós og jákvæða athygli frá fólkinu sem þau elska mest; foreldrunum. R-reglurnar; röð, regla og rútína Það fyrsta sem ég myndi ráðleggja ykkur er að halda heimilislífinu nógu einföldu. Hafið reglurnar fáar og skýrar, passið upp á röð, reglu og rútínu yfir daginn alla vikuna, gætið þess að hún nærist rétt og vel án sælgætis og sykraðra drykkja og fylgist með að hún sofi nóg. Sjáið líka til þess að hún fái góða hreyfingu úti og að sjónvarp og tölvur séu frekar umbun í stutt­ an tíma heldur en stöðugt í gangi. Smellið henni í bað eða sturtu ef hún er mjög pirruð en vatn hjálpar oft börnum til að róa sig. Sýnið festu og ákveðni í þessum smáat­ riðum sem stórminnka líkurnar á að erfið líðan og átök komi upp. Byrgjum brunninn Forðið ykkur endilega frá erfiðum aðstæðum. Grípið inn um leið og þið sjáið hvert stefnir og bregðist við með hlýlegum útskýringum og samningum, bjóðið henni aðra valkosti eða leiðið hugann að einhverju öðru. Þannig getur hún æft jákvæðar lausnir í stað þess að renna sér í skap­ ofsann. Farið ekki í aðstæður með erfiðum taugaáreitum eins og hávaða, troðningi og streitu. Slíkt fylgir búðarferðum, tívolíi eða 17. júní skemmtunum og endar oft með vonbrigðum og ör­ þreyttu barni sem glatar gleðinni og skapstjórninni. Gerið ykkur fremur dagamun með athöfnum sem róa og veita útrás eins og gönguferð, út að leika á róló eða sundferð. Hrós og umbun Ég hvet ykkur sem sagt til að fyrir­ byggja vandann eftir föngum og muna svo eftir að hrósa henni og hvetja þegar vel gengur. Aðferðir eins og að veita henni ekki athygli eða láta hana vera eina, skilar litlu. Svipting eins og að taka af henni teiknimyndir virkar illa miðað við að umbuna henni frekar fyrir góðan árangur með verð­ launum eða hrósi – og til þess þarf ekkert kerfi, heldur bara þá hjarta­ greind sem foreldrar eiga. Þegar slysin verða Að lokum veit ég að við getum aldrei komið í veg að slysin verði og barn spinni sig upp í óstjórnina. Þá duga ekki skammir og hótanir, heldur ást og hlýja. Best er að taka barnið í fangið, róa það og hugga rétt eins og barnið hafi meitt sig. Höldum því í fanginu en ef barnið kýs að jafna sig eitt þá verið samt nálægt því og til taks. Á eftir má ræða um líðan og tilfinningar barns­ ins út frá því að óhapp hafi orðið sem sé allt í lagi – foreldrarnir elska það jafnmikið og áður og pottþétt muni ganga betur næst. Magga Pála Uppeldisáhöldin Magga Pála gefur foreldrum ráð um uppeldi stúlkna og drengja milli 0 og 10 ára. maggapala@frettatiminn.is Skapstórt barn og ofsaköst Kæra Magga Pála. Við eigum stelpu sem er fædd í júní 2012. Dugleg og orkumikil stelpa, umhyggjusöm og uppátækjasöm… Hún vill ráða og stjórna öllu og ef hún er illa upp lögð þá missir hún gjörsamlega stjórn á sér. Þá á hún til að sparka lemja og klóra, öskra og láta öllum illum látum. Við höfum reynt að tala rólega, hunsa, setja hana í einvist og taka af henni hluti eins og teiknimyndir. En það koma dagar sem bara ekkert virkar og hún er meira og minna í brjálæðiskasti allan daginn. Hvernig mælirðu með að tækla svona tilfinningaríkt og ráðríkt barn? Ráðþrota foreldrar fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015 Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. Veisluþjónusta 12. febrúar Í Fréttatímanum föstudaginn 12. febrúar næstkomandi verður sérkafli um veisluþjónustu. Það styttist í fermingarveislurnar og eflaust margir foreldrar fermingarbarna að skipuleggja þær um þessar mundir. Hikaðu ekki við að hafa samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is og við getum aðstoðað þig við að ná í markhópinn þinn. Í Fréttatímanum föstudaginn 12. febrúar næstkomandi verður sérkafli um veisluþ- jónustu. Það styttist í fermingarveislurnar og eflaust margir foreldrar fermingarbarna að skipuleggja þær um þessar mundir. Hikaðu ekki við að hafa samband við auglýsingadeild Fréttatímans og við getum aðstoðað þig við að ná í markhópinn þinn.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.