Læknablaðið - 01.02.2016, Blaðsíða 31
LÆKNAblaðið 2016/102 91
Nú í vetur verður aftur til umfjöllunar
á Alþingi „Frumvarp til laga um breytingu
á lögum um verslun með áfengi og tóbak,
lögum um aukatekjur ríkissjóðs, áfengis-
lögum og lögum um gjald af áfengi og tóbaki,
með síðari breytingum (smásala áfengis)“.
Vilhjálmur Árnason og fleiri þingmenn
lögðu frumvarpið fram síðastliðið haust
en sambærilegt frumvarp hlaut ekki
samþykki þingsins árið 2014. Titillinn er
langur en innihaldið er einfalt. Að fella úr
gildi einkaleyfi Áfengisog tóbaksversl
unar ríkisins til smásölu á áfengi en færa
hana þess í stað til smásöluverslana, meðal
annars matvöruverslana, með ákveðnum
takmörkunum þó. Lagafrumvörp á svip
uðum nótum hafa oft áður verið lögð fyrir
Alþingi en aldrei hafa þau náð fram að
ganga. Sem betur fer myndu margir segja.
Sá sem þetta ritar hefur áður fjallað um
þessi mál á vettvangi Læknablaðsins og lýst
þeirri skoðun sinni að breytingar á fyrir
komulagi áfengisverslunar á Íslandi væru
ótímabærar, óskynsamlegar og með öllu
óþarfar. Síðan hefur aðalfundur Lækna
félags Íslands haldinn í Stykkishólmi
í október 2015 fjallað um breytingar á
áfengissölu og samþykkti fundurinn eftir
farandi ályktun:
„Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn
í Stykkishólmi 1. og 2. október 2015, leggst
eindregið gegn auknu aðgengi að áfengi með
sölu þess í matvöruverslunum.“
Skilaboð aðalfundarins voru einföld
og ótvíræð: aukið aðgengi að áfengi er
ekki það sem íslenskt samfélag þarfnast.
Þetta er álit læknasamtakanna. En hver er
afstaða almennings til áfengissölu? Frétta-
blaðið gerði í mars 2015 skoðanakönnun, og
þegar spurt var „Finnst þér að heimila eigi
sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum?”
svöruðu 55% spurningunni neitandi.
Meirihluti almennings telur því núverandi
fyrirkomulag á áfengissölu vera full
nægjandi.
Ýmis rök hafa verið færð fram fyrir
breytingum. Tvennt ber langoftast á góma:
1) hátt verð á áfengi, og 2) ófullnægjandi
þjónusta, meðal annars vegna þess að opn
unartími áfengisbúða sé of stuttur og of
langt á milli útsölustaða. Um fyrri liðinn,
hátt verð áfengis, þarf varla að fjölyrða,
það er staðreynd að verð á áfengi er frem
ur hátt hérlendis og það er ekki fyrirséð að
það breytist með nýju sölufyrirkomulagi.
Getur léleg þjónusta vínbúða verið rök
semd fyrir breytingum? Nei. Á Íslandi eru
núna um 50 áfengisútsölur, eða einn út
sölustaður á hverja 6000 íbúa. Með öðrum
orðum þétt net sölustaða. Ekki er heldur
með sanngirni hægt að halda því fram að
þjónustan sé léleg. Áfengisbúðir eru víða
opnar fram á kvöld á virkum dögum og á
laugardögum eru þær líka opnar.
Röksemdir gegn breyttu áfengissölu
fyrirkomulagi vega ávallt mun þyngra en
þær sem eru með breytingum. Það vita
flestir að óhófleg áfengisneysla í langan
tíma hefur skaðleg áhrif á heilsu manna.
Skaðleg áhrif á lifrina, svo sem fitulifur og
skorpulifur eru best þekkt, en líka ber að
nefna til skaða á vélinda, brisi, á heila og
taugastarfsemi, hjarta og æðakerfi auk
neikvæðra áhrifa á fósturþroska. Geðræn
og félagsleg áhrif koma þessu til viðbótar
og geta orðið svo mikil að líf neytenda
og fjölskyldna þeirra leggst gersamlega í
rúst. Til að sporna við þessu öllu eru víða
um lönd takmarkanir á sölu áfengis, þótt
með mismunandi hætti séu. Hér á landi er
slíkt gert með einkasölu á áfengi, aldurs
takmarki og verðstýringu. Á Norðurlönd
unum er fyrirkomulag áfengissölu með
ólíkum hætti. Í Danmörku er sala áfengis
leyfð í matvöruverslunum, í Noregi er
heimilt að selja léttan bjór í matvörubúð
um, en Svíar hafa Systembolaget sem eru
ríkisreknar áfengiseinkasölur með líku
sniði og við höfum hér á landi.
Þegar lagafrumvarp um rýmri sölu
áfengis var lagt fram árið 2014 lögðust
fjöldamargar stofnanir og félagasamtök
gegn frumvarpinu í umsögnum sínum.
Meðal annarra Embætti landlæknis,
Umboðsmaður barna, Barnaverndarstofa,
Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkr
unarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga
og Félagsráðgjafafélag Íslands. Megin
röksemdin var og er auðvitað sú að rýmri
reglur auki aðgengi og sýnileika áfengis
og þær stuðli þannig að aukinni neyslu og
þar með meiri skaða.
Læknafélag Íslands leggst eindregið
gegn því að fyrirkomulagi á sölu áfengis
verði breytt.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Björn Gunnarsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
Hildur Svavarsdóttir
Magnús Baldvinsson
Tinna Harper Arnardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Stjórn LÍ
Læknafélag Íslands leggst gegn
sölu áfengis í matvöruverslunum
Þorbjörn
Jónsson
formaður Læknafélags
Íslands, ónæmislæknir
og blóðgjafafræðingur
thorbjorn@lis.is