Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2016, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 01.02.2016, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2016/102 95 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R „Hlutverk okkar er oft og tíðum að hvetja og sannfæra sjúklinginn um að hann sé betur á sig kominn en hann heldur sjálfur,” segja dr. Jonathan Fuld lungnasérfræðingur frá Cambridge og Dóra Lúðvíksdóttir lungnasér- fræðingur á Landspítala. míturlokum nauðsynleg en prófið leiðir kannski í ljós að mæðin stafar af öðrum orsökum og þá mun aðgerð á míturlokum ekki gagnast sjúklingnum.“ Mæði er einstaklingsbundin upplifun „Oft er talsvert misræmi á milli þess sem sjúklingurinn lýsir og þess sem kemur í ljós við áreynslupróf. Ég nefndi dæmi í fyrirlestrinum um konu sem kvartaði yfir mikilli mæði og sagðist ekki lengur geta gengið upp stigann heima hjá sér. Áreynslupróf leiddi hins vegar í ljós að hún réði við talsvert meira álag en gangan upp stiga útheimtir. Við sjáum stundum sjúklinga sem kvarta um mikla mæði en lungnamynd og öndunarmælingar sýna mun betri niðurstöður en búast mætti við af lýsingu sjúklingsins.“ Fuld segir skýringuna geta legið í því að sjúklingur sem fær hvatningu frá lækni eða sjúkraþjálfara getur oft reynt talsvert meira á sig en hann telur sig geta við aðrar aðstæður. „Þetta getur verið spurning um sjálfstraust og trú á að geta gert ýmislegt sem sjúklingurinn er hættur að treysta sér til að gera. Hlutverk okkar er oft og tíðum að hvetja og sannfæra sjúklinginn um að hann sé betur á sig kominn en hann heldur sjálfur. Flestir sjúklingar með langvinna lungnateppu sem mælast með fráblástursgetu (FEV1) upp á að minnsta kosti einn lítra eiga að geta sinnt flestum daglegum verkefnum án mikilla vand­ kvæða. Mæði er afskaplega einstaklingsbundin upplifun og tveir sjúklingar sem mælast nákvæmlega eins á áreynsluprófi geta lýst mæði sinni á mjög ólíkan hátt. Þetta er eins og þegar sjúklingar lýsa verkjum. Áreynsluprófið eyðir þessu misræmi á milli líkamlegra einkenna og upplifunar af þeim. Önnur vandamál geta einnig átt sinn þátt eins og oföndun eða öndunar­ óregla. Þá er hægt að aðstoða sjúklinginn við að ná betri tökum á önduninni og draga þannig úr mæðinni.“ Hreyfing í stað lyfjagjafar Dóra Lúðvíksdóttir lungnasérfræðingur á lungnarannsóknarstofu Landspítala segir að áreynslupróf séu einkum gagnleg til að fá nákvæmari greiningu á vanda sjúklingsins og hvort lausnin sé fólgin í breyttri eða aukinni lyfjagjöf. Jonathan Fuld tekur undir þetta og bætir við að stundum leiði áreynsluprófið í ljós að sjúklingurinn sé ekki eins illa hald­ inn og hann taldi sjálfur og því sé aukin lyfjagjöf ekki nauðsynleg. Áreynsluprófið nýtist einnig að sögn Jo­ nathans Fuld við eftirlit og meðferð hjarta­ sjúklinga og er meðal annars notað til að mæla árangur af innsetningu gangráðs. „Prófið er einnig gagnlegt þegar meta á hvort sjúklingurinn þurfi á hjartaðgerð að halda, jafnvel hjartaígræðslu, og svo er það notað í tilfellum þar sem um bæði hjarta­ og lungnasjúkdóm er að ræða og meta þarf hvor sjúkdómurinn kalli á frekari inngrip.“ Jonathan Fuld segir að lokum að við langvinna hjarta­ og lungnasjúkdóma sé nákvæm mæling á getu öndunarfæra og hjarta­ og æðakerfis forsenda fyrir öllum ákvörðunum um meðferð og inngrip. „Viðeigandi hreyfing undir umsjón læknis og sjúkraþjálfara gagnast nánast alltaf og ég nota áreynsluprófið til að sannfæra sjúklinga mína um að það sé allt í lagi að gera líkamlegar æfingar til að styrkja sig. Oft er það stærsti þröskuldurinn fyrir sjúklinginn að stíga yfir en jafnframt sá mikilvægasti.“ Áreynslupróf sem mæla afkastagetu lungna, hjarta og vöðva eru framkvæmd á lungnarannsóknarstofu A­3 Landspítala, Fossvogi. Netfang: lungnarannsókn@lsh.is og sími 543­6040.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.