Læknablaðið - 01.05.2016, Page 13
LÆKNAblaðið 2016/102 221
Meðalupphafsskammtur af dexametason sem gefinn var í
æð var 0,27 ± 0,11 mg/kg (miðgildi 0,24; spönn 0,12-0,55). Upp-
hafsskammtur barna sem fædd voru á árunum 2000-2002
(N=13) var að meðaltali 0,37 + 0,12 mg/kg/sólarhring (miðgildi
0,37; spönn 0,23-0,55), en upphafsskammtur barna sem fædd
voru á árunum 2005-2014 (N=23) var að meðaltali 0,20 + 0,05
mg/kg/sólarhring (miðgildi 0,20; spönn 0,12-0,29), p<0,001. Árin
2003 og 2004 fékk ekkert barn stera í æð sem meðferð við LLS.
Af þeim börnum sem lögðust inn á deildina á rannsóknartímabil-
inu og voru <1500 g við fæðingu, fengu 8,3% (36/436) stera í æð.
Árin 2000-2002 voru það 15,6% (14/90) barnanna, en 6,4% (22/346)
árin 2005-2014, p=0,009. Af þeim börnum sem voru <1000 g við
fæðingu, fengu 20,3% (31/153) stera í æð á rannsóknartímabilinu.
Árin 2000-2002 voru það 35,1% (13/37) barnanna, en 15,5% (18/116)
árin 2005-2014, p=0,028.
Súrefnisþörf og öndunaraðstoð
Meðalsúrefnisþörf barnanna sem fengu sterameðferð í æð var
32,9% (miðgildi 31,5%; spönn 21-53) 5 dögum fyrir upphaf með-
ferðar. Á upphafsdegi sterameðferðar í æð var meðalsúrefnisþörf
barnanna orðin marktækt hærri, eða 40,9% (miðgildi 38%; spönn
23,5-73,5), p<0,001. Daginn eftir upphaf meðferðar hafði meðal-
súrefnisþörfin lækkað marktækt og var orðin 36,1% (miðgildi 32,9;
spönn 21-77), p=0,01. Á þessu tímabili breyttist súrefnisþörf barn-
anna í viðmiðunarhópi ekki marktækt. Súrefnisþörf barnanna í til-
fellahópnum hélt áfram að lækka næstu daga eftir upphaf meðferð-
ar en jókst aftur marktækt á tímabilinu milli daga 7 og 14 (p=0,03).
Heildarbreytingin á súrefnisþörf barna sem fengu stera í æð var
marktæk lækkun milli daga 0 og 14, það er úr 40,9% í 28,7% (mið-
gildi 26,1; spönn 21-53,8), p<0,001. Á sama tímabili breyttist súrefn-
isþörf barna í viðmiðunarhópnum ekki marktækt (mynd 2).
Við upphaf sterameðferðar og næstu tvo daga þar á eftir voru
börnin í meðferðarhópnum með marktækt hærri súrefnisþörf
en börnin í viðmiðunarhópnum, en þremur dögum eftir upphaf
meðferðar var munurinn ekki lengur marktækur. Á dögum 10 og
14 eftir upphaf meðferðar hafði súrefnisþörf barnanna í meðferð-
arhópnum aukist aftur en sá munur náði þó ekki marktækni á degi
14 (p=0,08) (mynd 2).
Við upphaf sterameðferðar voru marktækt fleiri börn í til-
fellahópnum en í viðmiðunarhópnum á öndunarvél (19 og 5;
p<0,001) (mynd 3). Á fyrstu dögum eftir upphaf meðferðar fækk-
aði börnum í tilfellahópnum sem þörf höfðu fyrir öndunarvél og
á fjórða degi eftir upphaf meðferðar var munurinn milli hópanna
tveggja ekki lengur marktækur (11 og 5; p=0,07).
Af þeim 28 börnum sem fengu sterameðferð í æð þurftu 23 (82%)
á aukasúrefni að halda við 36 vikna meðgönguhaldur og fengu því
greininguna LLS, en aðeins 6 af 28 (21%) í viðmiðunarhópnum
R A N N S Ó K N
Tafla I. Samanburður á helstu klínísku þáttum milli meðferðar- og viðmiðahópa, (%).
Sterameðferð í æð Sterameðferð á úðaformi
Sterar í æð Viðmið Úðasterar Viðmið
Fjöldi 28 28 30 30
Aldur móður [ár] 29,4 ± 6,6 29,5 ± 7,9 31,6 ± 7,2 30,0 ± 6,0
Barksterar á meðgöngu: 25 (89,3) 25 (89,3) 21 (70,0)* 28 (93,3)*
> 48 tímum fyrir fæðingu 17 (60,7) 16 (57,1) 14 (46,7) 20 (66,7)
Fjölburar 6 (21,4) 8 (28,5) 10 (33,3) 9 (30,0)
Keisaraskurður 17 (60,7) 14 (50,0) 20 (66,7) 19 (63,3)
Stúlkur 11 (39,3) 16 (57,1) 13 (43,3) 20 (66,7)
Meðgöngulengd (vikur, dagar) 26 v. + 3 d.
183,2 ± 11,6 d.
26 v. + 4 d.
184,0 ± 11,2 d.
27 v. + 2 d.
191,0 ± 11,3 d.
27 v. + 3 d.
191,2 ± 11,3 d.
Fæðingarþyngd [g] 794 ± 187 853 ± 282 867 ± 239 980 ± 297
Lengd við fæðingu [cm] 33,4 ± 2,9 34,2 ± 3,2 33,9 ± 2,8 35,9 ± 2,9
Höfuðummál við fæðingu [cm] 23,5 ± 1,8 233,4 ± 2,9 24,5 ± 2,1 25,1 ± 2,0
Apgar við 1 mínútu [miðgildi (spönn)] 5 (1-8) 4 (1-8) 4 (1-8) 5 (1-8)
Apgar við 5 mínútur [miðgildi (spönn)] 6 (4-10) 6 (2-9) 7 (2-9) 7 (4-9)
*p=0,016. Ekki var tölfræðilega marktækur munur á öðrum breytum milli meðferðarhóps- og viðmiðaunarhóps innan rannsóknarhópanna tveggja.
Mynd 3. Samanburður á fjölda barna á öndunarvél sem fengu stera í æð og barna
í viðmiðunarhópi.
Fjöldi barna á öndunarvél frá því 5 dögum fyrir og þar til 14 dögum eftir upphaf með-
ferðar. Dagur 0 er upphafsdagur meðferðar.
- Samanburður á fjölda barna á öndunarvél sem fengu stera í æð: Dagur 0 og 4, p=0,03.
- Samanburður á fjölda barna á öndunarvél milli meðferðarhóps og viðmiðunarhóps:
Dagur -5, p=0,003; dagur 0, p<0,001; dagur 1, p<0,001; dagur 2, p<0,001; dagur 3,
p=0,01; ekki var marktækur munur milli hópanna eftir það.