Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2016, Side 50

Læknablaðið - 01.05.2016, Side 50
258 LÆKNAblaðið 2016/102 Silja Ástþórsdóttir, formaður Samtaka um endómetríósu Reynir Tómas Geirsson prófessor var gerð- ur að heiðursfélaga Samtaka um endó- metríósu á afmælishátíð þeirra þann 9. apr- íl síðastliðinn. Samtök um endómetríósu voru stofnuð á haustmánuðum 2006 og fagna 10 ára afmæli í ár og var af því tilefni efnt til af- mælishátíðar í Norræna húsinu og mættu rúmlega 110 manns. Á dagskrá voru ræð- ur, tónlistaratriði og reynslusögur kvenna með endómetríósu. Reynir Tómas Geirsson prófessor var einn upphafsmanna þess að Samtök um endómetríósu voru stofnuð og á afmæl- ishátíðinni hélt hann ræðu um aðdraganda þess. Í framhaldinu afhenti Silja Ást- þórsdóttir formaður samtakanna Reyni Tómasi viðurkenningarskjal fyrir einstakt framlag hans til eflingar Samtaka um endómetríósu og stuðning við konur með endómetríósu undanfarna áratugi. Við þetta tækifæri sagði formaður tvær sögur af samskiptum þeirra Reynis: „Þegar við stjórnin vorum á kafi í undirbúningi ráðstefnu um endómetríósu árið 2012, var Reynir ávallt reiðubúinn til aðstoðar. Svo boðinn og búinn var hann til að hjálpa, að eina helgina þegar hann og frúin voru á leið í sumarbústað hringdi hann sérstaklega í mig til að láta mig fá símanúmer eiginkonu sinnar. Hann vildi þannig tryggja að ég myndi geta náð í hann, jafnvel þótt hann væri úti í garði að vinna og heyrði ekki í símanum. Sömuleiðis hef ég ekki tölu á þeim skiptum sem ég hringdi í Reyni við undir- búning Hvatningargöngu Samtaka um endómetríósu árið 2014. Þegar ég enn einu sinni hringdi í Reyni Tómas vegna marg- víslegra snúninga, orðin hálf afsakandi yfir öllu snattinu, stoppaði hann mig af og sagði: Nei nei, ég geri bara það sem þú biður mig um.“ Af ofangreindu má ljóst vera hve ötull stuðningsmaður samtakanna Reynir hefur ávallt verið og eru þá ekki meðtaldir allir aðalfundirnir og kaffihúsahittingarnir sem hann hefur setið og hjálpað til við. Reynir Tómas hefur starfað sem sér- fræðingur, yfirlæknir og prófessor á sviði fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við kvennadeild Landspítalans við Hringbraut í áratugi. Hann lauk sérnámi í Bretlandi og doktorsprófi frá Háskóla Íslands og er einnig kjörfélagi í Félagi breskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna (FRCOG, Fellow of the Royal College of Obstetricians & Gynaecologists). Meginmarkmið Samtaka um endó- metríósu er fræðsla og aukin vit- undarvakning um sjúkdóminn, en fyrst og fremst að veita konum með endómetríósu stuðning. Baráttumál samtakanna er að stofnuð verði göngudeild fyrir konur með endómetríósu og að klínískar leiðbein- ingar varðandi greiningu og meðferð sjúk- dómsins, lagaðar að íslensku heilbrigð- iskerfi, verði þróaðar. Stefnt er að því að haldin verði á Ís- landi Norræn ráðstefna um endómetríósu (Nordic Endometriosis Congress) seinni part næsta árs. Reynir Tómas Geirsson prófess- or og Silja Ástþórsdóttir formað- ur Samtaka um endómetríósu voru hæstánægð þegar Reynir Tómas var gerður að heiðursfé- laga samtakanna, þann 9. apríl síðastliðinn. Ljósmynd: Stefán Karlsson. Reynir Tómas heiðursfélagi Fyrsti örvinn við einkennum ofvirkrar þvagblöðruß - 3 Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395. Munnþurrkur sambærilegur ly�eysu1,2 Það er hægt að lifa við ofvirka þvagblöðru á annan hátt U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.