Læknablaðið - 01.05.2016, Síða 50
258 LÆKNAblaðið 2016/102
Silja Ástþórsdóttir,
formaður Samtaka um endómetríósu
Reynir Tómas Geirsson prófessor var gerð-
ur að heiðursfélaga Samtaka um endó-
metríósu á afmælishátíð þeirra þann 9. apr-
íl síðastliðinn.
Samtök um endómetríósu voru stofnuð
á haustmánuðum 2006 og fagna 10 ára
afmæli í ár og var af því tilefni efnt til af-
mælishátíðar í Norræna húsinu og mættu
rúmlega 110 manns. Á dagskrá voru ræð-
ur, tónlistaratriði og reynslusögur kvenna
með endómetríósu.
Reynir Tómas Geirsson prófessor var
einn upphafsmanna þess að Samtök um
endómetríósu voru stofnuð og á afmæl-
ishátíðinni hélt hann ræðu um aðdraganda
þess. Í framhaldinu afhenti Silja Ást-
þórsdóttir formaður samtakanna Reyni
Tómasi viðurkenningarskjal fyrir einstakt
framlag hans til eflingar Samtaka um
endómetríósu og stuðning við konur með
endómetríósu undanfarna áratugi.
Við þetta tækifæri sagði formaður tvær
sögur af samskiptum þeirra Reynis:
„Þegar við stjórnin vorum á kafi í
undirbúningi ráðstefnu um endómetríósu
árið 2012, var Reynir ávallt reiðubúinn til
aðstoðar. Svo boðinn og búinn var hann
til að hjálpa, að eina helgina þegar hann
og frúin voru á leið í sumarbústað hringdi
hann sérstaklega í mig til að láta mig fá
símanúmer eiginkonu sinnar. Hann vildi
þannig tryggja að ég myndi geta náð í
hann, jafnvel þótt hann væri úti í garði að
vinna og heyrði ekki í símanum.
Sömuleiðis hef ég ekki tölu á þeim
skiptum sem ég hringdi í Reyni við undir-
búning Hvatningargöngu Samtaka um
endómetríósu árið 2014. Þegar ég enn einu
sinni hringdi í Reyni Tómas vegna marg-
víslegra snúninga, orðin hálf afsakandi
yfir öllu snattinu, stoppaði hann mig af
og sagði: Nei nei, ég geri bara það sem þú
biður mig um.“
Af ofangreindu má ljóst vera hve ötull
stuðningsmaður samtakanna Reynir hefur
ávallt verið og eru þá ekki meðtaldir allir
aðalfundirnir og kaffihúsahittingarnir
sem hann hefur setið og hjálpað til við.
Reynir Tómas hefur starfað sem sér-
fræðingur, yfirlæknir og prófessor á sviði
fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við
kvennadeild Landspítalans við Hringbraut
í áratugi. Hann lauk sérnámi í Bretlandi
og doktorsprófi frá Háskóla Íslands og er
einnig kjörfélagi í Félagi breskra fæðinga-
og kvensjúkdómalækna (FRCOG, Fellow
of the Royal College of Obstetricians &
Gynaecologists).
Meginmarkmið Samtaka um endó-
metríósu er fræðsla og aukin vit-
undarvakning um sjúkdóminn, en fyrst og
fremst að veita konum með endómetríósu
stuðning. Baráttumál samtakanna er að
stofnuð verði göngudeild fyrir konur með
endómetríósu og að klínískar leiðbein-
ingar varðandi greiningu og meðferð sjúk-
dómsins, lagaðar að íslensku heilbrigð-
iskerfi, verði þróaðar.
Stefnt er að því að haldin verði á Ís-
landi Norræn ráðstefna um endómetríósu
(Nordic Endometriosis Congress) seinni
part næsta árs.
Reynir Tómas Geirsson prófess-
or og Silja Ástþórsdóttir formað-
ur Samtaka um endómetríósu
voru hæstánægð þegar Reynir
Tómas var gerður að heiðursfé-
laga samtakanna, þann 9. apríl
síðastliðinn. Ljósmynd: Stefán
Karlsson.
Reynir Tómas heiðursfélagi
Fyrsti örvinn við einkennum ofvirkrar þvagblöðruß -
3
Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295.
2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395.
Munnþurrkur sambærilegur
ly�eysu1,2
Það er hægt að lifa við ofvirka
þvagblöðru á annan hátt
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R