Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 12

Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 12
Hanna Hlíf Bjarnadóttir fékk ógeð á matarsóun þegar hún vann í matvælaiðnaðinum. Hún leggur nú lokahönd á matreiðslubók þar sem græn- metisréttir, nýting hráefnis og góð ráð gegn matarsóun verða í aðalhlutverki. Þrátt fyrir oft á tíðum tómlegt veski leyfir Hanna Hlíf sér að kaupa fyrsta flokks grænmeti, enda verið græn- metisæta í þrjátíu ár. „Það eru svona tíu ár síðan ég fékk algjört ógeð á matarsóun,“ segir Hanna Hlíf Bjarnadóttir, mynd- listarkona og uppskriftahöfundur. „Ég vann sem sölukona fyrir fyr- irtæki sem seldi lífrænan mat og varð vitni að því hversu mikið af útrunnum mat er fargað. Þetta fór alveg rosalega í taugarnar á mér svo ég fór að prófa mig áfram með mat sem hafði verið útrunninn í nokkur ár og komst að því að það var nóg að lykta af matnum til að vita hvort hann væri í lagi eða ekki,“ segir Hanna sem treystir í dag á sín eigin skynfæri frekar en dagsetningar matvælafyrirtækjanna. Hanna Hlíf er með ýmis ráð þegar kemur að matarsóun og segir hún frystinn oft koma sér vel. „Ef eitt- hvað er að detta á síðasta söludag er svo gott að henda því bara í fryst- inn. Ef ég á tómata sem er orðnir það mjúkir að mig langar ekki í þá ferska þá set ég þá í frystinn og nota þá seinna þegar mig vantar tómat- sósu í mat. Það saman á við um ann- an mat sem er hættur að vera girni- legur en er samt hægt að nota í mat. Spínat á það til dæmis til að verða blautt í pokanum en þá set ég það í frystinn og á það í næstu ommilettu. Núna á ég til dæmis mikið af rjóma og osti eftir páskana og mun frysta það því mig lang- ar hvorki í rjóma né gullost á næstu dögum.“ Hanna Hlíf leggur nú lokahönd á matreiðslu- bók þar sem hún mun deila með áhugasömum dýrindis grænmetis- réttum ásamt hagnýt- um húsráðum, meðal annars hvernig best sé að geyma mat og nýta í afganga. „Því meira sem maður fylgist með sóuninni sem er í gangi því meðvitaðri verður mað- ur um að það eru til heilu kynslóð- irnar af fólki sem hreinlega kunna ekki að vinna úr afgöngum. Sjálf ólst ég upp við að það voru afgang- ar í matinn og kannski þess vegna er mér tamara að hugsa um afganga sem mögulegan mat.“ „Fólk heldur oft að það sé erfitt að vinna úr grænmetisafgöngum,“ segir Hanna Hlíf sem hefur verið grænmetisæta í þrjátíu ár. „Margir halda að það verði að vera kjöt eða fiskur til að geyma mat en nokkrar kartöflur geta auðveldlega orðið uppistaðan í heilli máltíð daginn eftir, eins og til dæmis gnocchi. Grænmeti getur auðveldlega verið aðalréttur þó fólk sé ekki grænmet- isætur.“ En hvar finnst grænmetisætunni best að kaupa grænmetið? „Mín matarinnkaup ráðast fyrst og fremst af fjárhag. Ég er mynd- listarkona og á því oft ekki krónu og þá kaupi ég euroshopper-vörur. En grænmetið kaupi ég hjá Akri. Það er vefverslun með árstíðabundið grænmeti beint frá býli, bæði ís- lenskt og innflutt. Þetta kostar að- eins meira en í stórmörk- uðunum en er betri vara og ég veit að þá fá dætur mínar það besta. Svo er Te- og kryddhúsið al- veg frábær búð því þar er hægt að kaupa eftir vigt sem er auðvit- að góð leið til að sóa ekki. En það sést alltaf á ísskápnum mínum hvernig fjárhag- urinn er. Þegar vel gengur þá fer ég ekki og kaupi nýja skó heldur geri vel við mig með hollum og góð- um mat.“ Frá kr. 69.900 m/morgunmat PRAG BRATISLAVA BORGARFERÐ Frá kr. 69.900 sértilboð Netverð á mann m.v.2 í herbergi með morgunmat. 5. maí í 4 nætur. Frá kr. 94.900 sértilboð Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 5. maí í 4 nætur Hotel ILF Hotel Loft Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M N M 74 56 5 5.-9. maí 5.-9. maí Skelltu þér í RÓM Frá kr. 89.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 28. apríl í 4 nætur. Stökktu 28. apr -2. maí Stökktu Sértilboð VALENCIA Frá kr. 99.900 sértilboð Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 5. maí í 4 nætur. Hotel Conqueridor 5.-9. maí BÚDAPEST Frá kr. 79.900 sértilboð Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 12. maí í 4 nætur. Hotel Mercure Buda 12.-16. maí Sértilboð Sértilboð Sértilboð Matarsóun á íbúa eftir svæðum jarðar 185 kg. 95 kg. Evrópa 180 kg. 115 kg. Norður-Ameríka og Kyrrahafið 160 kg. 5 kg. Afríka sunnan Sahara 160 kg. 75 kg. Iðnvædda Asía 180 kg. 35 kg. Norður-Afríka, Mið-Asía og Miðausturlönd 115 kg. 60 kg. Suður- og Suðaustur-Asía 115 kg. 25 kg. Suður-Ameríka Ef allir jarðarbúar sóuðu jafnmiklu og Norður- Ameríkumenn myndu um 805 milljón tonn enda í ruslatunnum heimsins en ef allir neytendur hegðuðu sér eins og Suður-Amer- íkubúar gera að meðaltali myndu aðeins 175 milljón tonn fara í heimilisruslið. | gse Matarsóun í iðnríkjunum er metin á um 680 millj- arða dollara árlega eða 84.700 milljarða íslenskra króna. Það er um fertugföld landsfram- leiðsla á Íslandi. Árleg matarsóun í þróunar- löndunum er metin á um 310 milljarða dollara ár- lega eða 38.600 milljarða íslenskra króna. Samanlögð matarsóun í heiminum er því tæplega eitt þús- und milljarðar dollara á hverju ári sem gera um 125 þúsund milljarða íslenskra króna. Á hverju ári henda neyt- endur í iðnríkjunum álíka magni af mat og nemur allri matvælaframleiðslu í Afríku sunnan Sahara, þar sem um 800 milljón manns búa. Ef mögulegt væri að draga úr matarsóun um fjórðung, 25 prósent, mætti brauð- fæða um 870 milljónir manna. | gse Sóun við framleiðslu Sóun neytenda Allt sem þú vilt ekki vita um matarsóun Heilar kynslóðir kunna ekki að nýta afganga Sameinuðu þjóðirnar áætla að með því að fóðra svín á mataraf- göngum væri hægt að nýta land, að stærstum hluta í Suður- Ameríku, sem annars fer í framleiðslu á korni og sojabaunum til svínaeldis í Evrópu, til að fæða 3 milljarða manna. „ Margir halda að það verði að vera kjöt eða fiskur til að geyma mat en nokkrar kartöflur geta auðveldlega orðið uppistaðan í heilli máltíð daginn eftir.“ Á Íslandi var lögum um dag- setningar á ferskvöru breytt í desember árið 2014 og síðan hafa stórmarkaðir á borð við Hagkaup, Bónus, Krónuna, Nettó og Fjarðarkaup boðið upp á vörur sem eru að renna út á góðum afslætti. Þar að auki hefur Krónan lengi boðið upp á ávexti á síð- asta séns í poka á 99 krónur og Fjarðarkaup hafa gefið brauð- meti í svínafóður. Þeir stór- markaðir sem Fréttatíminn ræddi við gefa þann mat sem ekki er hægt að selja til góð- gerðamála þó Guðmundur Mar- teinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hafi aðspurður í samtali við Fréttatímann um málið í febrúar, sagt fyrirtækið hafa verið gagnrýnt fyrir að gefa vörur sem voru komnar fram yfir síðasta söludag. Málið sé því flókið. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir að oft sé erfitt fyrir kaup- menn að taka ábyrgð á því hvað sé hæft til manneldis en að einungis matur sem samkvæmt lögum sé óhæfur til manneldis fari í ruslagámana og sem, að sínu viti, sé ekki séns að gefa. Hvað gera stórmarkaðir? 12 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.