Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.04.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 01.04.2016, Blaðsíða 32
Heil og sæl, kæra móðir og bestu þakkir fyrir bréfið þitt. Einlægni þín og kærleikur til drengsins ykkar er augljós og yndislegt hversu vel þið hafið staðið að málum hans. Mér sýnist á öllu að drengurinn hafi fengið mikla athygli og mikinn stuðning hjá ykkur og að nú sé tímabært að hann njóti leikskóladagsins einn og sjálfur. Hins vegar á ekkert for­ eldri að þurfa að yfirgefa barnið sitt grátandi og afar mikilvægt að grípa til aðgerða. Mótþrói getur verið stjórntæki Drengurinn var áhugasamur og glaður í leikskólanum til að byrja með og eins er hann í leik með hinum börnunum þegar þú sækir hann. Það bendir til þess að hann sé ánægður og finni sig í barnahópnum sem er afar mikil­ vægt fyrir einbirni eins og hann. Eins er þér óhætt að treysta leik­ skólakennurum hans með að hann hætti að gráta um leið og þú hverfur út um dyrnar. Allt þetta leiðir í eina og sömu átt; börn sem mótmæla bæði við komu og brott­ för, eru oftast að æfa stjórnun á umhverfi sínu og þá mest við þá sem standa hjarta þeirra næst. Slíkt er fullkomlega eðlilegt. Bæði börn og fullorðnir vilja hafa áhrif og tveggja til þriggja ára barn leitar leiða til þess og mest vilja þau hafa áhrif á foreldra sína – og mögulega mömmuna ef hún hefur verið með aðalumsjón barnsins. Þá þarf mamman að glíma við sjálfa sig. Góð við eða góð fyrir … Öllum foreldrum er erfitt að láta barnið sitt frá sér. Við viljum vernda og verja þau og hver fruma foreldranna kallar á barnið. Enn sterkari verður þessi kennd þegar fyrsta barn á í hlut og enn fremur þegar krílið hefur látið bíða eftir sér. Þessi foreldraást er einstakt afl sem getur hreinlega flutt fjöll, óendanleg hamingja en svo líka dýpsta örvænting ef erfið­ leikar koma upp. Þetta er reynsla okkar allra. Hins vegar getur verndarhvötin líka afvegaleitt okkur. Þá taka til­ finningarnar alfarið stjórnina og rökhugsunin víkur. Í slíku ástandi getum við vissulega verið góð við barnið okkar en mögulega ekki jafngóð fyrir barnið. Það finnur fljótt að það getur ráðið og stjórn­ að líðan hins fullorðna og beitir sér oft með grátstjórnun og/eða mótþróa en sú stund kemur að barn kiknar undan valdahlutverk­ inu sínu. Þess vegna verðum við að hleypa skynseminni fram úr til­ finningunum og finna leiðir til að aðskilnaður ykkar verði átakalaus og ánægjulegur. Starfsfólk leikskólans getur mjög oft aðstoðað foreldrana og gripið barnið í fangið svo að foreldrið fari strax út aftur til að lengja ekki sársaukafulla kveðjustund. Eins er algengt að pabbanum, eða ein­ hverjum öðrum í fjölskyldunni, gangi betur að klippa á kveðju­ stundina til að brjóta þennan vítahring móður og barns. En – þá þarf móðirin að vera tilbúin að sleppa tökunum. Finndu leiðina sem virkar og ég er fullviss um að þetta gangi frábærlega hjá ykkur. Magga Pála Uppeldisáhöldin Sendið Möggu Pálu spurningar á maggapala@frettatiminn.is og hún mun svara í næstu blöðum. „Grátstjórnunin“ Kæra Magga Pála, ég hef drukkið í mig alla pistla þína í von um að finna lausn á mínu máli. Ég ákvað síðan að skrifa þér beint þar sem þetta skiptir mig öllu máli. Við hjónin eigum lítinn strák sem er fyrsta barnið okkar. Þvílík gleði og hamingja sem þessi fallegi drengur hefur gefið okkur. Við þurftum að bíða talsvert lengi eftir honum en hver dagur var svo sannarlega þess virði. Mér leið svo vel í barneignarfríinu og það leið alltof hratt. Ég leitaði allra leiða til að framlengja fæðingar- orlofið og við hjónin vorum sammála um bíða með að fara með drenginn í pössun þar til hann fengi pláss á leikskóla. Núna í haust fengum við inni í leikskóla en við afþökkuðum pláss- ið í fyrravetur því hann var svo ungur. Ég vandaði vel valið og fór í heimsóknir á nokkra staði áður en við tókum ákvörðun. Aðlögun byrjaði vel og ég fann að drengurinn var ánægur og glaður. Und- anfarnar vikur hafa hins verið mjög erfiðar en hann grætur svo mikið þegar ég skil hann eftir. Mér finnst það orðið nær óbærilegt að skilja hann eftir. Leikskólakennararnir hafa fullvissað mig um að ég þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur og segja að hann hætti að gráta um leið og ég er farin út úr dyrnar. Ég held að þær segi það bara til að róa mig – ég veit ekki mitt rjúkandi ráð. Svo kem ég að sækja hann en þá er hann alltaf að leika sér með krökkunum og vill hann ekki koma heim með mér. Ef ég reyni að toga í hann, fer hann bara að gráta. Kæra Magga Pála, hvað á ég að gera? Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–14, sunnud. lokað Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Við leitum að listaverkum erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 260 mm Veltisög Multi-sög fylgir með í kaupunum Kr. 150.000,- með VSK Model LF1000 Sagarblað 260 mm Sagdýpt 90° 70 mm Sagdýpt 45° 48 mm Afl inn 1650 W Þyngd 36 kg ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is 32 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.