Fréttatíminn - 01.04.2016, Blaðsíða 70
„Ég elda alla daga á Vínyl og fæ mér venjulega
morgunmat þar. Í dag fæ ég mér bara kaffi,“ segir
Linnea Hellström, vegankokkur. Fyrir hennar
tilstilli varð Kaffi Vínyl á Hverfisgötu á dögunum fyrsti
veitingastaðurinn með alveg vegan matseðil.
Linnea var grænmetisæta frá barnæsku. Hún ólst
upp á sveitabýli í Svíþjóð og ákvað ung að hætta að
borða dýrin sem hún lék sér við. Um tvítugt tók hún út
allar dýraafurðir og hefur verið frumkvöðull í vegan-
isma á Íslandi frá því hún flutti hingað. „Í stað þess að
einblína á missi dýraafurða vil ég sýna fólki þennan
fjölbreytta matarheim sem opnast við að vera vegan.“
Frábært úrval
aF sundFötum!
Bláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is Selena undirfataverslun
Með hækkandi leiguverði og minnkandi fram-boði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum lífsins
fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu
fram eftir aldri. Talið er að nærri
helmingur ungs fólks á aldrinum
18-30 ára í Evrópu búi í foreldra-
húsum. Er þessi þróun jákvæð og
þroskandi fyrir sambönd fólks
við foreldra sína eða frestun á að
takast á við lífið?
„Stefán er fyrst og fremst svo
mikill gleðigjafi,“ segir Dóra, móð-
ir Stefáns, aðspurð hvort gagn sé
að því að hafa Stefán Gunnar bú-
andi heima. Stefán Gunnar, móðir
hans og Sigurður, faðir hans, búa
í Litla Skerjó í fallegu rauðu húsi.
Stefán vinnur í félagsmiðstöð og
klárar tómstundafræði í háskól-
anum í vor. „Áður bjuggu bræður
mínir, þeir Haddi Gunni og Maggi
Gunni hér líka. Nú er bara Stebbi
Gunni eftir,“ segir Stefán.
Samfara því að kaupmáttur ungs
fólks hefur minnkað verulega síð-
astliðin 20 ár hefur leigumarkað-
urinn orðið erfiðari að takast á við.
Stefán er sáttur við að búa heima,
enda í námi og á í góðu sambandi
við foreldra sína.
„Auðvitað vill maður vera sjálf-
stæður, það er helsti vankanturinn
á þessu. En svo er líka skemmtilegt
að fá að vera barn aðeins lengur.“
Stefán segist ekki telja ungu
kynslóðina sem býr heima hjá for-
eldrum sínum ósjálfstæða. Hann
segir heldur jákvætt að ungt fólk
fái frekari undirbúning fyrir lífið,
en sé ekki hrint út úr hreiðrinu
strax við sjálfræðisaldur.
Dóra segist jafnframt læra
margt af sambúðinni við Stefán,
son sinn, sem er opinn með að
hafa tekist á við kvíða frá æsku og
skrifaði pistil um kvíða þegar vit-
undarvakning um geðsjúkdóma,
#égerekkitabú, tröllreið samfélags-
miðlum.
„Stebbi er nefnilega nútímamað-
ur sem ræðir um hlutina,“ segir
Dóra. „Ég er ekki af þeirri
kynslóð. Hann benti
mér til dæmis á að
ég ætti að fara til sál-
fræðings til að takast
á við hluti sem ég
hef ekki gert áður. Og
ég ætla að taka
þeim ráðum.“
Stefán bend-
ir á að kvíði og
þunglyndi sé
sem betur fer
minna tabú hjá
ungu kynslóð-
inni. „Við erum
dugleg að deila
reynslu á milli okk-
ar þriggja á heimil-
inu og ausa úr
okkur. Svo ég held
að það græði allir á
sambúðinni.“
Fullorðinn í foreldrahúsum
Að fá að vera barn aðeins lengur
Stefán Gunnar og konurnar í lífi hans: Dóra mamma og Lára bróðurdóttir. Mynd | Rut
Stefán með Láru,
bróðurdóttur sinni.
Morgunstundin
Vegan-boltinn er farinn
að rúlla á Íslandi
Mynd | Rut
Herdís, Ylfa og Flóki eru þrjú
þeirra tíu krakka sem leika í leik-
verkinu Made In Children í Borgar-
leikhúsinu. Krakkarnir hjálpuðu
einnig til við að semja verkið
ásamt leikstjórum sýningarinnar.
„Þetta er eins og tyggjó: Einhver
tyggur það fyrst og svo megum
við móta það eins og við viljum,“
segir Ylfa. „Úff, ekki góð mynd-
líking,“ segir Flóki og hryllir sig.
Ylfa útskýrir að hún meini að leik-
stjórarnir hjálpi þeim að gera flott
atriði úr hugmyndum krakkanna.
Vinna leikarans er strembin, og
krakkarnir hafa staðið í ströngu
á löngum æfingum og þurft að
læra allt verkið utan að. „Ef maður
gleymir dansspori eða línu á
maður bara að halda áfram eins og
ekkert hafi í skorist,“ segir Herdís,
reynslunni ríkari eftir ferlið.
Aðspurð hvort þau langi að leika
meira eftir Made in Children jánka
stelpurnar. Flóki segir hins vegar
þetta skipti nægja, þó hann sé
ánægður með reynsluna.
Verkið segja krakkarnir fjalla
um hvernig börn gætu gert
heiminn betri, og hvernig hann
verður í framtíð þeirra. Þremenn-
ingarnir telja sjálf þörf á að bæta
heiminn, og nefna ýmsar leiðir til
þess: „Við gætum til dæmis notað
rafmagnsbíla meira, eins og í Nor-
egi. Þar þarf maður ekki að borga
reikninga fyrir þá,“ segir Herdís,
óvæntur fróðleiksbrunnur um raf-
magnsbílanotkun Norðmanna.
Ylfa segir einnig mikilvægt að
sporna við matarsóun, og krakk-
arnir taka undir að maður eigi
ekki að henda mat að óþörfu. Með
því ljúka þau spjallinu, og hvetja
fólk til að koma á sýninguna og fá
fleiri hugmyndir um hvernig bæta
skuli jörðina okkar.
Made in Children verður frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu í dag,
föstudag.
Krakkar bæta heiminn
Rafmagnsbílar og matarsóun
Flóki, Herdís og Ylfa frumsýna í dag nýtt
leikverk í Borgarleikhúsinu.
Mynd | Rut
70 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016
Hann benti mér til
dæmis á að ég ætti að
fara til sálfræðings til
að takast á við hluti
sem ég hef ekki gert
áður. Og ég ætla að
taka þeim ráðum.