Fréttatíminn - 01.04.2016, Blaðsíða 66
ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR:
Optical Studio Smáralind
Optical Studio Keflavík
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði.
Allt að 50% ódýrari en
sam bærileg vara á meginlandi
Evrópu.*
E R T U Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A ?
KAUPAUKI
Með öllum marg skiptum glerjum**
fylgir annað par FRÍTT með í sama
styrkleika. Tilvalið sem sólgleraugu
eða varagleraugu.
* Chrome Hearts umgjörð m/ Hoya Progressive glerjum, 1.6 Index.
** Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler.
Módel: Kristjana Dögg Jónsdóttir
Gleraugu: Chrome Hearts
Rithöfundurinn
Kristín Ómars-
dóttir er stödd
í lyftunni hans Spessa, ljós-
myndara í gömlu Kassagerðinni
á Laugarnesi. Á ferðalaginu upp
fjórar hæðir hússins segir Kristín
frá þeim tilvonandi botni sem
mannkynið stefnir í og sínum
hæstu hæðum í litlu augnablikum
lífsins.
„Ég hef aldrei farið á botninn,
hugsanlega geri ég það einhvern-
tímann. Það var kannski helst
þegar ég var 14 ára og Kiddi sagði
mér upp. Heilu ári varði ég í að
velta mér upp úr einhverri tilfinn-
ingu, þar til ég hugsaði hvað væri
nú eiginlega að mér? Hvers konar
viðbrögð eru þetta? Strákur sem
segir mér upp því ég nennti aldrei
að hitta hann. Við erum svo mikið
keppnisfólk, það má enginn segja
okkur upp en við megum segja
öllum öðrum upp.“
Kristín segir það hugarfar ein-
kenna ástandið í heiminum og
mannkynið sem sé á leiðinni á
botninn. „Manninum þykir mikið
til sín koma, að við séum æðri
öðrum dýrum. Það endurspegl-
ast í öllum okkar samskiptum og
framkomu. Á síðustu 20 árum
höfum við sokkið dýpra og dýpra,
flóttamannastraumurinn, um-
hverfismál, fátækt eykst og lífs-
skilyrði versna. Heimurinn mun
ná algjörum botni og mínar pers-
ónulegu lægðir eru smávægilegar
í samanburði við það.“
Hvað varðar hátinda í lífi Krist-
ínar nefnir hún ótal augnablik,
allt frá því að fara í bíó, út að
borða, sjá sólmyrkva og þegar
Íslendingar hrepptu silfrið á ól-
Mannkynið stefnir á botninn
Lyftan #12
Spessi
ympíuleikunum í handknattleik í
Peking. „Ég hef þó aldrei upplifað
eins áfenga gleði og þegar ég fór
fyrst í sirkus tíu ára gömul. Ég
fylltist þvílíkri lotningu og hafði
aldrei séð annað eins. Sumir há-
punktar fylgja reyndar raunveru-
lega áfengri gleði, þá helst vodka
sem hefur skapað mér margar
góðar stundir í gegnum tíðina.“
Utan þessara augnablika segir
Kristín ritstörfin veita sér stöðuga
ánægju. „Það er ekkert betra en
að klára skrif á bók. Það er há-
punktur lífs míns sem ég mun
aldrei hætta að þakka fyrir.“ | sgk
Kristín Ómarsdóttir segir
sínar lægðir í lífinu smá-
vægilegar í samanburði við
ástandið í heiminum.
Nú líður að stressandi tíma í lífi margra 10. bekkinga – vali á mennta-
skóla. Ákvörðunin virðist oft óyfirstíganleg, en óttist ekki! Frétta-
tíminn tók saman nokkur ráð fyrir tilvonandi menntskælinga.
1 Ekki fara á taugum. Akkúrat núna virðist valið mikilvægasta ákvörð-un í heimi en menntaskóli verður fyrst og fremst ótrúlega skemmti-
legur og frelsandi, sama hvort hann heiti MR eða FB.
2
Ekki velja skóla eftir því hvaða skóla vinir ykkar ætla í. Nánir vinir
halda sambandi þó þeir séu ekki í sama skóla, svo áttu eftir að eign-
ast fullt af vinum í nýja skólanum.
3
Veldu skólann sem þig langar mest að vera í, ekki bara þann sem þú
heldur að þú eigir mesta möguleika að komast í. Þú kemst pottþétt
ekki í skóla drauma þinna ef þú sækir ekki um hann.
4
Veldu skóla eftir náminu, ekki félagslífinu. Raunin er að það er gott
félagslíf í flestöllum skólunum. Ef það eru ekki skemmtileg böll í þín-
um menntaskóla geturðu bara farið á böll hinna skólanna. Ekkert mál!
5
Kíktu í heimsókn í skólana. Ef þú missir af kynningu í skólanum sem
þig langar í, kíktu í heimsókn í skólann, skoðaðu þig um og athugaðu
hvernig þér finnst andrúmsloftið.
6
Mundu að þó þú komist ekki í skólann sem þig langar mest í, er
vel hægt að vinna sig upp í einkunnum á fyrstu önn og skipta yfir í
annan skóla um jólin. Hvort sem þú gerir það eða ekki er gott að vita að
maður er aldrei hlekkjaður niður. | sgþ
Sex ráð við val
á menntaskóla
66 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016