Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 01.04.2016, Side 14

Fréttatíminn - 01.04.2016, Side 14
LovefoodHatewaste Frábært og frítt matarsóunarapp sem nýtist við innkaup og elda- mennsku, auk þess sem það finnur leiðir til að nýta afgangana sem best. Appið hefur einnig að geyma helling af grænum og vænum upp- skriftum auk allskyns góðra ráða gegn sóun. Eldað úr öllu Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna, sem Kvenfélagasam- band Íslands rekur, finnast ýmsar uppskriftir og leiðbeiningar um hvernig á að „elda úr öllu“. Þú slærð inn hvað þú átt í ísskápnum og upp koma mögulegar leiðir til eldamennsku. Svín til endurvinnslu Ein áhrifaríkasta leiðin til að end- urvinna matarafganga er að nýta þá í svínin. Í árþúsundir hefur mannkynið fóðrað svín á afgöngum en í dag er svínum gefið fóður, sem kostar vatn, land og eiturefni að fram- leiða, og afgöngum er hent í ruslið þar sem þeir rotna og menga loft- ið. Sameinuðu þjóðirnar áætla að með því að fóðra svín á mataraf- göngum væri hægt að nýta land, að stærstum hluta í Suður-Amer- íku, sem annars fer í framleiðslu á korni og sojabaunum til svínaeldis í Evrópu, til að fæða 3 milljarða manna. Breska átakið The Pig Idea, með fólk eins og Tristram Stuart, Yotam Ottolenghi og Tho- masinu Miers á bak við sig, hvetur stofnanir, bændur og veitingastaði til að mat- arafgangar verði endurnýtt- ir sem svínafóður en í dag bannar Evrópusambandið það með lögum. 40% útlitsgallað Vestrænir neytendur hafa alist upp við að ávextir og grænmeti séu eins í laginu, með fullkomið sköpulag og helst glansandi. Raun- veruleikinn er að sjálfsögðu allur annar. Lönd Evrópu- sambandsins henda samanlagt 89 milljónum tonna af mat árlega, eða um 179 kílóum á hvert manns- barn og tæplega 40% af þessu matarrusli er grænmeti og ávextir sem ekki stóðust útlitspróf neyt- endanna. Í febrúar síðastliðnum urðu Frakkar fyrsta land í heimi til að banna matarsóun stórmarkaða með lögum. Lífrænn úrgangur mengar! Eitt epli á túni brotnar niður og gefur frá sér CO2 en þegar líf- rænum úrgangi er safnað saman á einn lokaðan stað myndast ekki CO2 heldur metangas sem er 21 sinni öflugri gróðurhúsaloftteg- und en CO2. Ein leið til að sporna við þessu er að molta lífrænan úrgang. Vertu vakandi í búðinni Félagasamtökin Vakandi hafa barist ötullega gegn matarsóun á Íslandi með vitundarvakningu. Samtökin vinna nú að heimilda- mynd um matar-og tískusóun í samstarfi við Vesturport, Reykja- víkurborg og Landvernd. Á vefsíðu samtakanna má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar til að sporna gegn sóun. Fyrsta skrefið gegn sóun heimilanna er að vera vakandi við innkaupin: Gerðu mataráætlun fyrir vik- una og innkaupalista. Taktu mynd af ísskápnum áður en þú ferð út í búð Farðu aldrei í búð á fastandi maga. Veldu minni stærð af inn- kaupakörfu eða -vagni. Körfur hafa stækkað síðustu ár svo neytand- inn kaupi meira. Veldu tilboðsvörur á síð- asta söludegi. Forðastu magnafslátt því hvorki líkami þinn né veskið hafa gott af því að kaupa mikið til að spara lítið. Sóun hefur áhrif á kaupmáttinn Hjón með börn Tekjur og útgjöld á mánuði að meðaltali Atvinnutekjur: 930 þúsund krónur Aðrar tekjur: 150 þúsund krónur Skattar: -255 þúsund krónur Húsnæðiskostnaður: -140 þúsund krónur Ráðstöfunartekjur: 685 þúsund krónur Matarinnkaup: -135 þúsund krónur Matarsóun: 40 þúsund krónur Þar af hent á heimilinu: 14 þúsund krónur Einstætt foreldri Tekjur og útgjöld á mánuði að meðaltali Atvinnutekjur: 290 þúsund krónur Aðrar tekjur: 120 þúsund krónur Skattar: -45 þúsund krónur Húsnæðiskostnaður: -83 þúsund krónur Ráðstöfunartekjur: 282 þúsund krónur Matarinnkaup: -84 þúsund krónur Matarsóun: 25 þúsund krónur Þar af hent á heimilinu: 8.500 krónur Barnlaust par Tekjur og útgjöld á mánuði að meðaltali Atvinnutekjur: 595 þúsund krónur Aðrar tekjur: 360 þúsund krónur Skattar: -225 þúsund krónur Húsnæðiskostnaður: -115 þúsund krónur Ráðstöfunartekjur: 615 þúsund krónur Matarinnkaup: -99 þúsund krónur Matarsóun: 30 þúsund krónur Þar af hent á heimilinu: 10 þúsund krónur Einstæðingur Tekjur og útgjöld á mánuði að meðaltali Atvinnutekjur: 200 þúsund krónur Aðrar tekjur: 95 þúsund krónur Skattar: -58 þúsund krónur Húsnæðiskostnaður: -70 þúsund krónur Ráðstöfunartekjur: 167 þúsund krónur Matarinnkaup: -55 þúsund krónur Matarsóun: 16.500 krónur Þar af hent á heimilinu: 5.600 krónur Sigurður Jóhannesson, umhverfis- og auðlindaverk- fræðingur, frumsýnir í apríl heimildamynd sína „Maður- inn sem minnkaði vistsporið sitt“. Í myndinni fylgjumst við með Sigurði sjálfum í sjö mánuði þar sem hann reynir að lifa sjálfbæru lífi í ósjálf- bæru samfélagi. „Þegar ég var í mastersnáminu vor- um við látin mæla vistspor okkar og mitt reyndist vera ansi stórt, þrátt fyr- ir að ég teldi mig vera frekar neyslu- grannan. Ég ákvað því að gera þessa tilraun og kvikmynda ferlið,“ segir Sigurður Jóhannesson. Hann segir erfiðast við tilraunina hafa verið að hætta að borða kjöt, fisk og egg en að minnka matarsóun hafi gengið vel. „Ég var einn í heimili að mestu á meðan tilraunin fór fram og matarsóun mín var nánast núll allan tímann. Sóun af öllu tagi fer í taug- arnar á mér og verð ég að þakka móður minni og hennar ætt það. Þar var fólk sem kunni að nýta hlutina. Það er hinsvegar mun erfiðara að eiga við þetta þegar heim- ilisfólki fjölgar. Ég er þeirrar skoðun- ar að það sem flest okkar gætum gert væri að borða minna – sumsé aldrei að borða nema við séum svöng. Við búum við svo mikla velmegun að við getum verið að borða allt sem okkur langar í hvenær sem við viljum. Slíkar allsnægtir kalla á aga.“ Sigurður segir ferlið hafa sparað sér mikla peninga, korn og grænmeti sé ódýrari matur en kjöt og fiskur auk þess sem hann hafi ekki keypt sér neitt nýtt. Hann segir afstöðu sína til neyslu hafa breyst mikið. „Ég er miklu meðvitaðri um allt sem ég kaupi og í dag þoli ég ekki að kaupa nýja hluti. En ef ég þarf að kaupa eitt- hvað, eins og til dæmis þvottavél sem er eiginlega nauðsynlegt tæki, þá vel ég gott merki sem endist. Það er umhverfisvænna. Ég held að lagasetningar séu nauðsynlegar til að breyta neysluhegðun fólks en þetta eru vandamál sem við höfum öll tekið þátt í að skapa og ef við, sem neyt- endur, gerum ekkert, þá mun ekkert breytast.“ Allsnægtir kalla á aga Hér eru sýnd dæmi af meðaltalsheimilum, sem kannski eru ekki til nema í svona reikningsdæmum. En samkvæmt skattframtölum og könn- unum Hagstofu Íslands eru þetta meðaltekjur og meðalútgjöld þessara fjölskyldugerða til matar, drykkjar og veitingahúsa. Eins og sést vegur meðaltals-matarsóun þungt. Ef fólki tekst að hamla gegn sóun matar getur það bætt kaupmátt sinn nokkuð. Aðgerðir gegn matarsóun geta því ekki aðeins bætt umhverfið, dregið úr hungri í heiminum og brauðfætt komandi kynslóðir heldur bætt lífsafkomu okkar, hvers fyrir sig. Og náttúrlega mest þeirra sem mestu sóa, þau geta stóraukið ráðstöfunarfé sitt. | gse 14 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016 70% Talið er að um 70 prósent alls matar sé borðaður. Af 225 milljarða matarinn- kaupum greiðum við um 67,5 milljarða króna fyrir sóun en 157,5 milljarða króna fyrir matinn sem við borðum. 30% Sóun á öllum stigum matar- framleiðslu, -flutninga, -sölu og –neyslu jafngildir um 67,5 milljörðum króna árlega. Áætla má að um 8.100 milljónir króna tapist vegna sóunar á býlum og bújörðum. Um 16.200 milljónir króna tapast árlega vegna sóunar í matvælaiðnaði. Á hverju ári tapast um 2.700 milljónir króna vegna sóunar við flutninga á matvælum. Telja má að sóun á veitingahúsum jafngildi um 7.425 milljónum króna árlega. Um 10.125 milljónir króna tapast vegna sóunar matvæla í stórmörkuðum. Tíundi hluti alls matar endar í sorptunnum á heimilum landsmanna. Verðmæti þess er um 22.950 milljónir króna. Matarsóun frá býli til borðs Borðum fyrir 157,5 milljarða króna – hendum mat fyrir 67,5 milljarða 3,6% 1,2% 4,5%7,2% 3,3% 10,2% Miðað við áætlaðar tölur má reikna með að sóun í keðjunni frá býli til borðs sé í líkingu við þetta. Samanlagt tapast um 67.5 milljarðar króna sem jafngildir um 3 prósent af landsframleiðslu.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.