Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 18
Áður en ensk aganefnd
svipti Squier lækningaleyfi
á dögunum hafði breska
dómskerfið nötrað vegna
ásakana hennar um
að helmingur dóma í
barnahristingsmálum væri
rangur.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Í byrjun marsmánaðar komst bresk
aganefnd um störf lækna, The Medi
cal Practitioners Tribunal Service,
MPTS, að því að Waney Squier hefði
afvegaleitt dómstóla með áliti sínu
í nokkrum dómsmálum. Hún hefði
lagt fram óábyrg sönnunargögn
sem ekki væru innan sérfræðisviðs
hennar. Squier hefur skilað mats
gerðum í 150 til 200 dómsmálum
sem tengjast dauða ungra barna frá
því á miðjum tíunda áratugnum.
Nefndin skoðaði álit hennar í
sex dómsmálum þar sem dauðsföll
fimm barna voru til umfjöllunar. Í
öllum málunum var það mat Squier
að börnin hefðu getað látist af öðru
en hristingi af mannavöldum. Nið
urstaða nefndarinnar hefur ver
ið harkalega gagnrýnd í breskum
fjölmiðlum og hafa læknar og sér
fræðingar stigið fram og sagt hana
hræsnislega tilraun til að þagga nið
ur í framsæknum fræðimanni. Vin
ir og samstarfsfélagar Squier hafa
komið henni til varnar og sagt hana
hafa valdið miklum usla í fræðasam
félaginu með fádæma hugrekki sínu.
Hún hafi þorað að taka mið af ný
legum rannsóknum, jafnvel þó þær
kúventu hennar eigin kenningum.
25 læknar, taugasérfræðingar,
lögfræðingar og fræðimenn hafa
risið upp gegn aganefndinni og
skrifað mótmælabréf til fjölmiðla.
Þeir segja að með ákvörðun nefnd
arinnar sé stóraukin hætta á að fólk
sem grunað er um að hafa banað
börnum með hristingi, verði rang
lega sakfellt. Aganefndin hafi það
eina markmið að þagga niður í ein
um merkasta sérfræðingi á þessu
sviði, sem berst fyrir hertri sönnun
arbyrgði í slíkum málum og hefur
fengið fjölmörg mál endurskoðuð í
ljósi nýrra rannsókna. Um deiluna
hefur verið skrifað í öllum stærstu
fjölmiðlum Bretlands á undanförn
um dögum.
Meðal þeirra sem leggja máli
Squier lið, er rannsóknarblaðamað
urinn Susan Goldsmith sem unnið
hefur að heimildarmyndinni The
Syndrome í átta ár en hún verður
frumsýnd í Bretlandi 15. apríl.
„Ég er algjörlega miður mín yfir
þessu,“ sagði Waney Squier í við
tali við breska fréttaskýringaþátt
inn Panorama á BBC fyrr í mán
uðinum. „Ég gerði eins vel og ég
gat og veitti álit sem ég byggði á
áralangri reynslu minni. Ég lagði
fram bestu sönnunargögn sem ég
fann máli mínu til stuðnings. Niður
staða nefndarinnar þýðir að læknar
og aðrir sérfræðingar sem veita álit
við dómsmeðferð, taka stórkostlega
áhættu. Og ef þeir veita umdeilt álit
eiga þeir á hættu að missa vinnuna.“
Naut mikils trausts
Lengi vel þótti hafið yfir allan vafa
að Waney Squier væri einn færasti
sérfræðingur Bretlands til að veita
álit þegar grunsemdir vöknuðu um
að börn hefðu verið hrist til dauða.
Í þrjátíu og fimm ár starfaði hún við
John Radcliff sjúkrahúsið í Oxford
og stundaði rannsóknir á þróun
barnsheilans. Hún var dómkvadd
ur matsmaður í þekktustu Shaken
Baby Syndrome málum sem upp
hafa komið í Bretlandi. Greining á
Shaken Baby Syndrome byggir á
þremur einkennum; bólg um í heila,
blæðing um á milli höfuðkúpu og
heila og blæðing um á sjón himnu.
Slíkt hef ur verið nefnt barna hrist
ing ur á ís lensku.
Squier var aðalsérfræðivitni
ákæruvaldsins í hinu margumtal
aða máli gegn Lorraine Harris árið
2000. Harris var sökuð var um að
hafa hrist Patrick, son sinn fjögurra
og hálfs mánaðar, með þeim afleið
ingum að hann lést. Helsta vopn
ákæruvaldsins í málinu var skýrsla
Waney Squier sem fullyrti að dreng
urinn hefði látist af völdum Shaken
Baby Syndrome eða barnahristings.
Skipti um skoðun á greiningunni
Árið 2001 skipti Waney Squier hins
vegar um skoðun á Shaken Baby
Syndrome greiningum.
Í viðtali við Elínu Hirst, sem birt
ist í Nýju lífi árið 2011, sagði Squier;
„Líftæknilegar rannsóknir hafa sýnt
að áhrif hristings á heila barns eru
mun minni en til dæmis ef barnið
dettur, þrátt fyrir að fallið sé ekki
hátt, eða verður fyrir höggi. Margt
bendir nú til þess að áhrifin af því
að hrista barn geti ekki valdið þeim
skaða innan höfuðkúpunnar sem
áður var talið. Fjölmargir dómar
sem kveðnir hafa verið upp á for
sendum fyrri skilgreininga á Sha
ken Baby Syndrome eru nú til end
urskoðunar í Bretlandi.“
Uppnám í fræðasamfélaginu Sérfræðingur í Shaken Baby Syndrome setti allt á annan endann í Bretlandi.
Kippt úr umferð vegna
sannfæringar sinnar
Waney Squier Breski taugasérfræðingurinn sem nýlega kúventi
dómsmáli íslensks dagföður með áliti sínu, á svakalega sögu í bresku
réttarkerfi. Nú er hart barist um hvort réttmætt hafi verið að svipta
hana lækningaleyfi.
Lorrine Harris.
byko.is
Hjólin
eru
komin!
18 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016