Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 01.04.2016, Page 27

Fréttatíminn - 01.04.2016, Page 27
var fyrir glufur í skattalögum þar ákváðu lögfræðingarnir þrír að bjóða upp á svipaða þjónustu. Mörg bandarísk fyrirtæki skráðu félög á Bresku Jómfrúaeyjum á árunum eftir. Árið 1981 leist Bandaríkja- stjórn hinsvegar ekki á blikuna og lokaði fyrir það að fyrirtæki gætu hömlulaust stungið undan til Jóm- frúaeyja. En lögfræðingarnir voru ekki af baki dottnir. Í stað þess að styggja hin voldugu Bandaríki væri sniðugra að opna fyrir aflandsvið- skipti þar sem ríkir einstaklingar víða um heim gætu komið fyrir peningum sínum. Þeir höfðu sér- staklega í huga fólk frá viðkvæmum og spilltum þróunarríkjum sem gætu ekki komið í veg fyrir slíkar peningafærslur. Frumvarpið sem flaug í gegn Niðurstaðan var plagg sem fyrr- nefndir lögfræðingar skrifuðu ásamt Richard Peters og Lewis Hunte, dómsmálaráðherra eyjanna: International Business Companies Act. Það var samþykkt sem lög sam- dægurs einróma 15. ágúst 1984 og án umræðu hjá heimastjórninni á eyjunni. „Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta neitt frekar,“ sagði land- stjóri Jómfrúaeyja. Í stuttu máli gerðu lögin mönnum kleift að stofna félög fyrir alþjóðleg viðskipti sem var bannað að taka þátt í viðskiptum á sjálfum eyjaklasanum. Um leið fríuðu Jómfrúaeyjar sig frá allri ábyrgð á þessum félögum. Sem er kannski þögul viðurkenning á því að aflands viðskipti séu slæm. Mjög fáar reglur voru settar fyrir þessi félög. Hamrað var á svo á því að landið væri í ríkjasambandi við Bretland og því væru peningarnir öruggir. Eins og segir í skýrslu Financial Secrecy Index, var sambland þess að fullvissa fjárfesta um stöðug- leika og öryggi á sama tíma og hafa ekkert eftirlit með hegðun þeirra, klassískt viðhorf hjá skattaskjóli. „Við rænum þig ekki – en þykjumst ekki sjá það þegar þú rænir ein- hvern annan!“ 8.8.1988 Á næstu árum fóru fjárfestar frá ýmsum heimshornum að stofna fyrirtæki á Bresku Jómfrúaeyjum. Skipakóngurinn Sir Li Kai-Shing frá Hong Kong, einn ríkasti maður Asíu, ákvað að nota félag á eyjaklas- anum sem eignarhaldsfélag fyrir veldi sitt og nýtti sér þannig hin hagstæðu nýju lög. Klókur braskari frá Hong Kong, Ted Powell, tók eftir því. Hann var einn stærsti heildsali aflandsfélaga í heiminum. Talan átta er helsta lukkutalan í kín- verskri menningu, en hún hljómar líkt og orðið fyrir ríkidæmi. Powell nýtti sér þetta og ákvað að stofna hundruð félaga á Bresku Jóm- frúaeyjum á „heppnasta degi aldar- innar“, 8.8. 1988. Babb kom í bátinn því þessi flotta dagsetning lenti á frídegi á eyj- unum. Powell gafst þó ekki upp og fór ásamt virtum lögmanni á fyrir- tækjaskrána á Tortólu „þar sem þeir grátbáðu, neyddu eða plötuðu“ (heimildum ber ekki saman) hana til að opna fyrir skráningu félaga í andartak þennan merka dag. Það gekk eftir og Powell ávaxtaði sitt pund. Dóppeningar og stórlaxar Mið-Ameríkuríkið Panama hefur lengi verið skattaskjól. Eftir að Bandaríkjamenn réðust inn í Pa- nama árið 1990, meðal annars til að koma í veg fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti, flykktust eigendur aflandsfélaga þar í landi til Bresku Jómfrúaeyja og margir þeirra földu þar ágóða af sölu kókaíns. Upplausn Sovétríkjanna og spillt einkavæðing á fyrirtækjum í rústum þeirra, fjölgaði einn- ig aflandsfélögum á Jómfrúaeyj- um. Og með árunum hefur enn aukist að stórlaxar frá fátækum löndum, auðugum af hrávörum, leggi sína peninga á sama stað. Árið 2013 kom fram í Vanity Fair að 32 íbúðir af 82 í einni dýrustu íbúðablokk heims, One Hyde Park í London, væru í eigu félaga á Jóm- frúaeyjum. Í dag eru Bresku Jómfrúaeyjar, eitt minnsta ríki í heimi, annar stærsti erlendi fjárfestirinn í Kína. Það er auðvitað brella því kín- verskir fjárfestar dæla fjármagninu í gegnum eyjarnar til að næla sér í skattafslætti sem erlendir fjárfestar njóta í Kína. Gegnsýrt ríki af aflandspeningum Eftir fjármálakreppuna 2008 hafa alþjóðastofnanir, á borð við ESB og OECD, reynt að fá Jómfrúaeyjar til að afhenda upplýsingar um aflands- félög og koma böndum á fjármagns- hreyfingar til þeirra. Bankar hafa af þessum sökum margir hætt að opna reikninga fyrir félög á eyjunum. Bresku Jómfrúaeyjum hefur tekist ágætlega að verjast þeim árásum. Stjórnvöld á eyjunum sjálfum virðast ákveðin að viðhalda kerfinu. Eins og kom fram í skólastofusam- talinu í upphafi þessarar greinar er kerfisbundin innræting stunduð á börnum landsins til að þau skilji mikilvægi aflandsfélaganna. Sam- kvæmt nýlegum lögum um tölvu- glæpi er hægt að dæma gagnaupp- ljóstrara í allt að 20 ára fangelsi. Skýrsla Financial Secrecy Index telur að Bresku Jómfrúaeyjar séu svo gegnsýrðar af aflandsfélaga- bransanum að ólíklegt að þær sjálf- ar hætti að veita ríkasta fólki heims þjónustu í bráð. Gefðu sparnað í fermingargjöf Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum Landsbankans. Kynntu þér sparnaðar- leiðir fyrir fermingarbarnið á klassi.is. Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa sparnað í fermingar- gjöf. Ef fermingarbarnið leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað hjá Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag. Þannig getur gjafakortið lagt grunn að góðum fjárhag. Erna Sóley Eyjólfsdóttir Klassafélagi og karate–lærlingur J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Tortóla-blokkin One Hyde Park í London er ein dýrasta fasteign í heiminum. Þar er stór hluti íbúða skráður á eignarhaldsfélög frá Bresku Jómfrúaeyjum. Mynd | Wikipedia |27FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.