Fréttatíminn - 01.04.2016, Side 50
BLÁR APRÍL
Styrktarfélag barna
með einhverfu
#blarapril
902 1010
Dagur, 9 ára.
Hlaupið um allt
Það er að ýmsu að hyggja þegar
tímabil útihlaupa rennur upp.
Þegar snjóa fer að leysa kemur fiðr-
ingur í marga fætur. Það er freistandi
að stökkva út og byrja bara að hlaupa
um allar trissur eins og þindarlaus létt-
fætt hind en það er ekki mjög raunhæft
fyrir þau sem eru ekki eru í þjálfun.
Hins vegar er hægt að koma sér hægt og
rólega í þannig form að 10 kílómetrarnir
í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar verði
leikur einn. Margt ber þó að varast og að
ýmsu að hyggja. Hér eru nokkur atriði.
■ Fáir byrja strax á því að hlaupa.
Langflestir byrja á kröftugri göngu
og hlaupa á milli. Það er ekki uppgjöf
að stoppa inn á milli og ganga – það
er eðlilegur hluti af ferlinu. Mörg
„öpp“ eru til sem hjálpa þér til við
að komast af stað og halda skrá yfir
hlaupin, til dæmis Runkeeper, Couch
to 5k og Endomondo.
■ Skórnir skipta ótrúlega miklu máli.
Það þarf ekki endilega að kaupa
það nýjasta og besta en það skiptir
máli að þeir passi vel. Þegar þú ert
komin/n í skóinn, en ekki búin/n
að reima að áttu að gera smeygt
hælnum nokkuð auðveldlega upp úr
skónum. Það á ekki að vera þrýst-
ingur á ristina þannig að ef ristin er
há þarf mögulega að kaupa skó sem
henta því fótlagi. Fáið ráðgjöf hjá
vönu fólki í íþróttaverslunum. Það er
ekkert svo gáfulegt að panta
hlaupaskó af netinu – þú þarft að
vera heimsins heppnasti hlaupari ef
það reynist happadrjúgt.
■ Hlaupafötin skipta kannski ekki
alveg eins miklu máli, til að byrja
með í það minnsta. Það þarf bara að
passa að vera ekki í neinu óþægi-
lega víðu sem getur þvælst fyrir
þér á hlaupunum eða of þröngu
sem getur rúllast upp eða niður
á miðjum hlaupum. Það sem er
kannski mikilvægast, hvað fatnað-
inn varðar, er að konur séu í þægi-
legum íþróttatopp til þess að halda
brjóstunum í skefjum.
■ Það er ótrúlegt hvað það getur breytt
miklu að hafa góða tónlist í eyr-
unum sem hefur drífandi áhrif á þig.
Rannsóknir hafa hreinlega sýnt að
örvandi tónlist, sem hlauparanum
þykir skemmtileg og hvetjandi, getur
bætt árangurinn. Ef þið gúgglið „best
running songs“ kemur upp fjöldi lista
yfir lög sem hafa verið kosin bestu
lögin til þess að hlaupa við.
■ Hraðinn er ekki aðalmálið heldur
rétt líkamsstaða og taktur. Farið á
youtube og sláið inn „proper runn-
ing form“ til þess að sjá hvernig best
er að bera sig að.
Það er alltaf gott að vera með markmið
þegar kemur að hlaupum. Margir nota
hin ýmsu skipulögðu hlaup sem gulrót og
reyna að vera búnir að ná ákveðnum ár-
angri á tilsettum tíma. Þeir sem eru lengra
komnir fara stundum til útlanda að keppa
í maraþoni en á Íslandi eru líka fjölmörg
hlaup sem gaman er að taka þátt í.
Á sumardaginn fyrsta, 21 apríl, fer Víða-
vangshlaup ÍR fram. Tveimur dögum síðar
fer Vormaraþon Félags maraþonhlaupara
fram. Þann 7. maí verður mikil hlaupahátíð
þegar Víðavangshlaup Íslands 2016 verður
hlaupið og svo er það að sjálfsögðu Reykja-
víkurmaraþonið þann 20. ágúst en margir
eru nú þegar farnir að æfa fyrir það. Þessi
hlaup eru aðeins lítið brot af þeim hlaupum
sem hlaupin verða í ár og hægt er að velja
um fjölmargar vegalengdir, bæði innan
bæjar og eins uppi um fjöll og firnindi, allt
eftir getu og áhuga hvers og eins. Yfirlit yfir
flest hlaup á Íslandi má finna á hlaup.is.
Komdu þér af stað
Mynd | NordicPhotos/Getty
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
50 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016
Heilsutíminn
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
balsam.is