Fréttatíminn - 01.04.2016, Qupperneq 52
Þörungar sem styrkja líkamann
Marine Phytoplankton með spirulina og chlorella frá
Natural Health Labs er talin ein hreinasta næring sem
sem völ er á. Marine er öflug blanda af sjávar- og fersk-
vatnsþörungum sem eykur orku, úthald og einbeitingu
auk þess sem hún kemur auknu jafnvægi á líkama og sál.
Marine er ein næringarríkasta ofurfæða jarðar sam-
kvæmt David Wolfe heilsusérfræðingi og var valin ein
mikilvægasta lífvera jarðar af NASA árið 2014.
Öflug vörn gegn flensu og kvefpestum
Marine Phytoplankton styrkir varnir líkamans og
er öflug vörn gegn ýmsum bakteríum, flensu og
kvefpestum. Þörungarnir innihalda náttúrulega
uppsprettu af öllum næringarefnum sem líkaminn
þarfnast og styður við eðlilega starfsemi hans.
Þörungarnir innihalda sérstaklega áhrifaríkar Omega
3 og 6 fitusýrur, lífsnauðsynlegar amínósýrur, alla
vítamínflóruna auk 72 mismunandi steinefna.
Unnið í samstarfi við Balsam
Svandís Birkisdóttir, eigandi Orkuset-ursins, hefur mjög góða reynslu af bæði Marine sjávarþörungnum og Noni ávextinum. Marine byrjaði hún að taka
í september síðastliðnum og hefur tekið inn
sleitulaust síðan. „Áður var hugurinn alltaf
á fleygiferð, ég hugsaði um of marga hluti í
einu. Ég átti það til að fara framúr sjálfri mér
og orkan var alltaf of mikil eða of lítil. Núna er
orkan mun jafnari og ég finn sérstaklega mun
á einbeitingunni, hún er margfalt betri,“ segir
Svandís. Orkusetrið býður upp Ljósbylgju-
tækni til þess að meðhöndla bæði líkamlega
og andlega kvilla og hefur meðferðin ein og
sér gefið góða raun. Þó er Svandís er farin að
mæla með því að fólk í ljósbylgjutæknimeð-
ferð taki inn Marine; árangurinn verður betri
og líðanin eftir því.
Svandís hefur einnig góða reynslu af Noni
sem hún tekur alltaf inn á þeim tíma sem
flensur gera vart við sig. „Ef ég gríp flensu þá
gríp ég hana illa, þannig hef ég alltaf verið. Ég
ákvað að prófa Noni fyrir um ári síðan þegar
ég byrjaði að finna fyrir flensueinkennum og
daginn eftir voru einkennin horfin. Síðan þá
hef ég alltaf tekið inn Noni þegar ég veit að
það eru flensur í kringum mig og hef ekki enn
orðið veik.“
„Umfram allt hjálpa Noni og Marine hjálpa
mér að styrkja ónæmiskerfið og halda mér
hraustri í gegnum daginn.“ segir Svandís.
Bestu stundir segir hún vera þegar hún nær
að eyða tíma með ömmubörnunum sínum
þremur en þau eru miklir orkuboltar. Eftir að
hún hóf inntöku Marine er orkan til þess að
leika við þau margfalt meiri. „Ég get hamast
með þeim allan daginn!“
Sölustaðir: Fáanlegt í öllum apótekum,
Heilsuhúsinu, Orkusetrinu, Heilsuhorninu
Blómavali, Lifandi Markaði, Hagkaupum,
Fjarðarkaupum, Heilsuveri, Heilsulausn.is,
Iceland Engihjalla og hjá Heimkaup.is
Betri einbeiting
og jafnari orka
Laus við flensuna og veikindin með Marine og Noni.
Ofurfæðan Noni
Noni heilsuávöxturinn kemur frá Kyrrahafseyjum og flokk-
ast sem ofurfæða vegna hversu einstaklega næringarríkur
hann er. Hann inniheldur um 150 þekkt næringarefni
sem líkaminn þarf til vaxtar, viðhalds og heilsu. Noni er
auðugur af A, B, C og E-vítamínum, járni, kalki, kalíum,
sinki og inniheldur lífsnauðsynlegar aminósýrur.
Flensu- og veikindabaninn
Noni frá Natural Health Labs styrkir
ónæmis- og varnarkerfi líkamans
sérstaklega vel, auk þess að hann
er talinn bakteríudrepandi. Hann
hefur löngum verið þekktur
sem öflug flensuvörn og
veikindabani. Þá er Noni
þekktur fyrir að auka vel-
líðan þar sem hann ríkari af
pro-xeroníni en aðrir ávextir
sem styður við myndun sera-
tóníns í heila.
Svandís Birkisdóttir, eigandi Orkusetursins.
Til þess að funkera í daglegu
lífi er góður svefn algert lyk-
ilatriði. Mjög margir eiga við
svefnörðugleika að stríða en
þessi atriði er vert að hafa á
hreinu og geta bætt svefninn
töluvert.
1 Ekki horfa á sjónvarpið eða hanga í símanum í rúminu,
rúmið er aðeins fyrir tvennt; svefn
og kynlíf. Gott er að forðast bjarta
skjái síðustu tvo tímana fyrir svefn-
inn. Hins vegar er gott að fá mikinn
birtuskammt yfir daginn, vera mik-
ið í sólarljósi þegar hægt er.
2 Opnaðu gluggann og lækkaðu á ofnunum, hitinn í svefnher-
berginu á aðeins að vera 15-18 gráð-
ur.
3 Þó að ofurdúr (powernap) geti gefið orkuskot getur slíkur
gjörningur haft neikvæð áhrif á
nætursvefninn. Reynið að sleppa
ofurdúrnum en fara frekar fyrr að
sofa ef dagurinn hefur alveg gert út
af við ykkur.
4 Ef þú liggur andvaka skaltu standa upp og fara fram í stofu
eða eldhús, lesa eina blaðsíðu í bók
eða fá þér vatnsglas eða jafnvel hálf-
an banana.
5 Áfengi, reykingar og kaffi gera svefninum ekkert gott. Sumum
gæti þótt róandi að drekka vínglas
eða einn bjór fyrir svefninn og það
getur virkað í smástund en slíkt hef-
ur hins vegar ekki góð áhrif á gæði
svefnsins. Einnig er ekki gott að
borða stóra máltíð rétt fyrir svefn
en sumir gætu þurft smávegis snarl
til að festa svefn. Passið bara að
það sé eitthvað sem er létt í maga
og ekki of salt eða sykrað.
6 Rútína er góð. Miklar sveiflur milli virkra daga og helga í
svefnrútínunni geta sett svefninn í
mikið uppnám.
7Regluleg hreyfing hefur mjög góð áhrif á svefninn.
8 Það er mjög góð regla að drekka 2-3 lítra af vatni á dag.
Hins vegar er ekki endilega snið-
ugt að drekka stóran hluta þess á
kvöldin því að það getur skert gæði
svefnsins að þurfa að vakna oft til
þess að pissa.
8 ráð til að bæta svefninn
52 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016
Kynningar | Heilsutíminn AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is