Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 2
Mynd | Hari
Minna traust en Nixon
Dagana áður en Richard Nixon sagði af sér sem for-
seti Bandaríkjanna árið 1974 sögðust 24 prósent
Bandaríkjamanna styðja hann en 66 prósent sögðust
ekki treysta honum. Þetta er ámóta, en þó heldur
lakari, staða og Bjarni Benediktsson er í samkvæmt
traustmælingu MMR.
Versta staða Bandaríkjaforseta í sögunni var undir
lok ferils George W. Bush þegar fjármálalífið hrundi
yfir bandarískan efnahag og heiminn allan. Þá mæld-
ist traust til Bush 25 prósent en vantraustið 71 pró-
sent. Enginn forseti hefur hrökklast úr embætti við
veikari orðstír en Bush yngri. Hans staða var þó eins
og vorið og sumarið í samanburði við Sigmund Davíð
Gunnlaugsson sem mælist hjá MMR aðeins með 10
prósent traust en 81 prósent vantraust. Það er lakari
staða en Davíð Oddsson mældist með þegar hann
fór úr Seðlabankanum. Þá treystu 11 prósent Davíð
en 78 prósent sögðust ekki treysta honum.
Lilja Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra.
Forystukona úr Evrópusamtök-
unum verður utanríkisráðherra
„Það er söguleg
kaldhæðni að síðasta
verk Sigmundar Davíðs,
áður en örlögin feykja
honum úr stóli forsætis-
ráðherra, skuli vera
tillaga um að fyrrverandi
forystukona í Evrópu-
samtökunum verði
ráðherra fyrir Fram-
sókn.“
Þetta segir Össur Skarphéðins
son um Lilju Alfreðsdóttur,
nýjan utanþingsráðherra
Framsóknarflokksins.
Lilja Dögg var skipuð að
til lögu Sig mund ar Davíðs
Gunn laugs son ar. Hún er dótt
ir Al freðs Þor steins son ar,
fyrr ver andi stjórn ar for manns
Orku veit unn ar og borg ar full
trúa Fram sókn ar flokks ins.
Hún er sögð náin vinkona
Sigmundar Davíðs og hef ur frá
ár inu 2014 starfað sem verk
efna stjóri í for sæt is ráðuneyt
inu en frá 2010 til 2012 starfaði
hún hjá Alþjóðagjald eyr is
sjóðnum í Washington DC.
„Nú geta þeir sem spá í
gang pólitískra himintungla
velt fyrir sér hvort það boði
breytta tíma að ný forysta
Framsóknar skuli taka fyrr
verandi forystukonu úr
Evrópusamtökunum fram
fyrir Ásmund Einar og Vigdísi
Hauksdóttur – tvo fyrrverandi
formenn Heimssýnar,“ segir
Össur Skarphéðinsson á Fa
cebooksíðu sinni. | þká
Farið er yfir feril Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í blaðinu í dag.
Stjórnmál Ný ríkisstjórn fær kaldar kveðjur á Alþingi
Sigmundur hlakkar
til að verja nýju ríkis-
stjórnina vantrausti
Atkvæði verða greidd um
vantrauststillögu stjórnar-
andstöðu á nýtt ráðuneyti
Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar og kröfu um þingrof,
síðdegis í dag, föstudag. Sjö
stjórnarþingmenn þurfa að
styðja vantrauststillöguna
svo hún verði samþykkt.
Nýja ríkisstjórnin tekur við
völdum í skugga mikillar óánægju
í samfélaginu og ólgu innan stjórn
arflokkanna. Stjórnarandstaðan
sættir sig ekki við að flýta kosning
um til haustsins og vill kjósa strax.
Atburðir síðustu daga í pólitíkinni
hafa verið með hreinum ólíkind
um og ráðuneyti nýs forsætisráð
herra fær kaldar kveðjur.
Enginn stjórnarþingmaður
hefur þó sagst ætla að styðja van
traust og þrátt fyrir talsverða
óánægju með þróun mála og er
harla ólíklegt er að tillagan fái
brautargengi. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson sagði eftir ríkis
ráðsfund á Bessastöðum, þar
sem hann lét af embætti, að hann
hlakkaði til að verja ríkisstjórn
Sigurðar Inga Jóhannssonar van
trausti á Alþingi en að því loknu
ætlar hann að taka sér langþráð
frí, ásamt eiginkonu og dóttur.
En það eru sveiflur á fylgi flokk
anna í því samfélagslega uppnámi
sem hefur orðið. Það sýnir ný Gal
lupkönnun. Sjálfstæðisflokkur er
þar með 22 prósent, Framsóknar
flokkur 11 prósent, Píratar eru með
32 prósent og tapa 4 prósentum frá
síðustu könnun. VG stóreykur fylgi
sitt, fær 17 prósent og bætir við sig
6 prósentum frá því í mars. Björt
framtíð fær 5,6 prósent og þar er
landið að rísa. Samfylkingin fær
hinsvegar ekki nema 7,6 prósent
og tapar 2 prósentum frá síðustu
könnun.
Áframhaldandi mótmæli eru
boðuð við Alþingishúsið næstu
daga þar sem krafist verður nýrra
kosninga. Sögulegt met var slegið í
fjöldamótmælum á laugardag. Það
er líka heimsmet að þrír íslenskir
ráðherrar séu nefndir í Panama
skjölunum. | þká
Mynd | Hari
Panama-skjölin Hluti af lista birtur í Svíþjóð
Lyfjamógull keypti í Actavis
í gegnum aflandsfélag
Vefútgáfa DV birti í gær skjá-
skot úr umfjöllun sænska
fréttaskýringaþáttarins
Uppdrag Granskning um
Panama-skjölin. Þar kemur
fram nafn 31 félags sem eru
í eigu íslenskra aðila, brot af
þeim 800 félögum og 600
einstaklingum íslenskum
sem koma fyrir skjöl-
unum.
Í skjáskotinu má finna nöfn
nokkurra valinkunnra ein
staklinga í íslensku samfé
lagi. Af því má sjá að
lyfjamógúllinn Ró
bert Wessman, sem
rekur nú Alvogen,
keypti hlutabréf í Actavis í gegnum
aflandsfélagið Aceway Corp. Eggert
Skúlason, ritstjóri DV, er á listan
um yfir eigendur aflandsfélaga sem
og framsóknarforkólfurinn Finnur
Ingólfsson. Bogi Pálsson, mágur Sig
mundar Davíðs Gunnlaugssonar, er
ekki eftirbátur systur sinnar, Önnu
Sigurlaugar, og er skráður fyrir einu
slíku í þessu skjáskoti. Þá kemur
nafn hins meinta skriðdrekasölu
manns Lofts Jóhannssonar fyrir í
skjáskotinu.
Sænski þátturinn var sýndur
á RÚV í gærkvöldi en haldið
verður áfram umfjöllun
um Panamaskjölin í Kast
ljósi í næstu viku. | óhþ
Róbert Wessman.
Atvinnuleysi 81 misstu bætur í desember 2014
Ríkið mátti ekki stytta bótatíma
Ákvörðun um að stytta bóta-
tímabílið um sex mánuði var
einungis til að bæta afkomu
ríkissjóðs, að mati Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Íslenska rík inu var óheim ilt að
skerða rétt þeirra sem áttu virk an
rétt til at vinnu leys is bóta 31. des
em ber 2014 með því að stytta bóta
tímabilið um sex mánuði, 81 missti
bætur við þessa breytingu.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
upp þann úrskurð á fimmtudag, en
í dómnum seg ir að sá sem verði at
vinnu laus og fái greidd ar at vinnu
leysisbætur verði að byggja fram
færslu sína á þess um greiðslum og
meðan þeirra nýt ur við á hann al
mennt að geta reitt sig á að njóta
þeirra í sam ræmi við þær regl ur
sem um þær gilda þegar rétt indi
hans urðu virk.
Þá tek ur dóm ur inn einnig und ir
þau rök VR, sem höfðaði málið, að
ríkið hafi ekki getað lagt fram nein
þau gögn sem fært geti viðhlít andi
rök fyr ir því að nauðsyn legt hafi
verið að lækka út gjöld At vinnu leys
is trygg inga sjóðs og seg ir dóm ur inn
að skerðing in hafi þurft að helg ast
af ríkri nauðsyn og mál efna leg um
for send um en ekki verði séð að hún
hafi helg ast af öðru en því að bæta
af omu rík is sjóðs og kem ur fram
í dómn um að það hafi verið um
1,1 millj arður króna. Slíkt rétt læti
ekki aft ur virka skerðingu á stjórn
ar skrár vörðum kröfu rétt ind um
félagsmanna VR. | þká
Torfi Þórhallsson í
InDefence segir vanta
trúverðugar upplýsingar
sem sýni að undanþágur
bankanna gefi rými til að
lyfta gjaldeyrishöftum af
lífeyrissjóðum, atvinnu-
lífi og almenningi.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
telur langt í land að almenn
ingur á Íslandi komist undan
gjaldeyrishöftunum. Þetta
kom fram á fundi sjóðsins
með fulltrúum InDefence.
Torfi Þórhallsson verkfræð
ingur staðfesti þetta en sagðist
ekki geta tjáð sig frekar um
fundinn þar sem hann hefði
verið haldinn í trúnaði. Hann
segir að alltaf hafi verið gert
ráð fyrir því að samningar við
kröfuhafa og stöðugleikaskil
yrði Seðlabankans gengju úr
frá því að unnt yrði að hleypa
fyrirtækjum, almenningi og
lífeyrissjóðunum úr höftum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
er að vinna að árlegri úttekt á
stöðu efnahagsmála á Íslandi,
en fulltrúar sjóðsins voru hér
á landi vegna útgáfunnar.
Skýrslan er trúnaðarmál þar
til í júlí, en fulltrúarnir féllust
þó á að svara spurningum
InDefence um efni hennar.
Hann bendir á að eftir
samninga við kröfuhafa sitji
nýju bankarnir uppi með
220 milljarða sem hafi verið
færðir úr þrotabúunum sem
lán til nýju bankana. Áhætt
an sé því enn til staðar eftir
samningana. Kröfuhafarnir
eigi einfaldlega kröfu á nýju
bankana í stað
þeirra gömlu
ef það komi til
efnahagskreppu í
heiminum.
Hann segir að
þrátt fyrir ítrekaðar
fyrirspurnir InDefence hafi
Seðlabankinn ekki getað
svarað því hversu mikið verði
til ráðstöfunar til fjárfestinga
utan Íslands og engar upplýs
ingar liggi fyrir um tímalín
una, hvenær almenningi verði
hleypt út úr höftum? | þká
Gjaldeyrishöft InDefence átti fund með AGS um gjaldeyrishöftin
AGS telur langt í haftalosun
2 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016