Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 9
– hvorki meira né minna –
Farsími Internet Sjónvarp Heimasími
Það sem passar illa,
virkar illa
Þess vegna gerum við meira til að þú fáir
farsíma-, internet- og sjónvarpsþjónustu
sem smellpassar fyrir þitt heimili.
Komdu í Vodafone ONE og njóttu
ávinnings í hverju skrefi
Vodafone
Við tengjum þig
vodafone.is
is
le
ns
ka
/s
ia
.is
V
O
D
7
92
47
0
4/
16
Sven Bergman ásamt samstarfsmönnum sínum Fredrik Laurin og
Joachim Dyfvermark í Uppdrag granskning.
að þeir hafi reynt að sjá fyrir hvað
hann myndi gera. „Við ákváðum
að fara fyrst í almennar opnar
spurningar um hvert viðhorf hans
væri til aflandsfélaga í skattaskjól-
um. Því næst að nálgast hann með
upplýsingarnar um Wintris. Eins
og allir vita nú, brást hann illa við
og ráðgjafar hans voru afar ósátt-
ir.“ Sven segir að Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, hafi orðið mjög reiður
og að samtal þeirra, sem átti sér
stað strax eftir viðtalið, hafi verið
klippt út úr þættinum.
Jóhannes Þór hafi óskað eftir því
að sá hluti viðtalsins þar sem Sig-
mundur Davíð gekk út, yrði ekki
sýndur. Hann hafi einnig rætt við
ritstjóra Uppdrag granskning um
birtingu viðtalsins.
Mörgu enn ósvarað
„Ég skil og virði reiði þeirra. En
við getum samt sagt að við vorum
sátt og örugg með ákvarðanir
okkar. Við buðum forsætisráð-
herra í þrígang að koma í nýtt
viðtal en hann þáði það ekki. Og
við vorum í raun ekki hissa á því.
Hann vildi heldur ekki svara ítar-
legum spurningalista sem við
sendum honum um staðreyndir
málsins. Ekki eru öll kurl komin
til grafar og við höfum ekki enn
fengið svör við öllu. Við höfum
ekki séð skattframtal Sigmundar
Davíðs eða eiginkonu hans. Hún
hefur hinsvegar birt bréf frá
KPMG um sín mál en það sannar
nákvæmlega ekki neitt. Nú snýst
stóra málið um traust.“
Þingforseti Kýpur, Yiannakis L. Omirou, ásamt forseta Al-
þingis, Einari K. Guðfinnssyni. Omirou fékk góðar móttökur
í opinberri heimsókn og sýndi aðstæðum mikinn skilning.
Æsileg heimsókn
þingforseta Kýpur
Forseti þjóðþings Kýpur, Yian-
nakis L. Omirou, fékk heldur betur
hressilega innsýn í störf Alþingis í
opinberri heimsókn sinni þangað
í vikunni. Omirou, sem var hér
í boði forseta Alþingis, Einars K.
Guðfinnssonar, mætti til landsins
á sunnudag, sama dag og Panama-
skjölin voru gerð opinber í Kast-
ljósi. Daginn eftir mætti hann í
Alþingi þar sem hann átti að hitta
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra, sem auðvitað ekkert varð af.
Einnig þurfti að færa til fundi með
forseta Alþingis og formönnum
flokkanna en aftur á móti fékk
Omirou að hitta forsetann, þar sem
hann flaug óvænt heim til að sker-
ast í æsispennandi atburðarás vik-
unnar. Ólafur Ragnar gaf sér tíma
til að hitta Omirou og spjalla við
hann um samstarf smærri þjóða í
Evrópu og málefni flóttafólks.
Samkvæmt heimildum var for-
seta Kýpurþings hvergi brugðið í
öllum æsingnum og sýndi breyt-
ingum á dagskrá mikinn skilning, í
ljósi óvæntra kringumstæðna. | hh
|9FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016